Framúrskarandi fyrirtæki

Framúrskarandi fyrirtæki

Framúrskarandi fyrirtæki er vottun fyrir íslensk fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um heilbrigðan rekstur og sterkar stoðir. Öll umfjöllun á Vísi er unnin í samstarfi við Creditinfo.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026

Nói Síríus hlýtur hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu á sviði sjálfbærni árið 2026 fyrir markvisst og árangursríkt starf að félagslegri sjálfbærni. Með því að aðlaga verkefni, þjálfun og vinnuumhverfi að þörfum einstaklinga með frábrugðna starfsorku hefur fyrirtækið skapað varanleg störf innan hefðbundinnar framleiðslu.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Fór úr sjúkra­þjálfun og stofnaði fyrir­tæki í kringum ást­ríðuna

Formus er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Harpa Gunnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Formus, segir viðurkenninguna hafa komið skemmtilega á óvart enda hafi markmiðið aldrei sérstaklega verið að komast á listann. Áherslan hafi einfaldlega verið á að vanda til verka, sinna viðskiptavinum vel og byggja upp traustan rekstur.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Jafn­rétti í stjórnum skil­yrði fyrir Fram­úr­skarandi fyrir­tæki

Eitt helsta mælitæki á góðan rekstrarárangur, stöðugleika, þrautseigju og sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er vottunin Framúrskarandi fyrirtæki. Einungis um 2,5% allra fyrirtækja landsins standast skilyrðin ár hvert. Creditinfo hefur nú hert skilyrðin, þau fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutfall í stjórn þurfa að fylgja þeim lögum til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Frá löngum gát­lista yfir í flennigír og fögnuð

Haustinu og upphafi vetrar fylgir árleg spenna og tilhlökkun í höfuðstöðvum Creditinfo í Reykjavík. Þá fer vinnan við Framúrskarandi fyrirtæki á fullt og nú er í sautjánda sinn unnið hörðum höndum að listanum. Þótt verkefnið sé löngu orðið fastur liður á þessum árstíma virðist spennan og eftirvæntingin ekkert hafa minnkað með árunum.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrir­tæki skara raun­veru­lega fram úr

Aðeins um tvö prósent íslenskra fyrirtækja komast árlega á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Til þess þarf ekki aðeins að sýna fram á góðan rekstur og hagnað ár eftir ár heldur þurfa fyrirtækin einnig að standast kröfur um lánshæfi, eiginfjárhlutfall og fleiri þætti. Kröfurnar hafa auk þess verið hertar á undanförnum árum.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Fjöl­skyldu­fyrir­tæki sem heldur vélunum gangandi

Aflvélar hafa hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki sjö ár í röð, en að sögn Friðriks Inga Friðrikssonar framkvæmdastjóra felst gildi hennar í trausti og trúverðugleika. Fyrirtækið hefur þróast úr smáum handverksrekstri yfir í öflugan innflutnings- og söluaðila tækja sem þjónar bæði flugvöllum, verktökum og bændum um land allt.

Framúrskarandi kynning
Fréttamynd

Hvað er eigin­lega í vatninu á Höfn í Horna­firði?

Höfn í Hornafirði sannar enn og aftur að margur sé knár þótt hann sé smár. Þegar Creditinfo birti nýlega árlegan lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins vakti athygli að í þessu rúmlega 1.800 manna bæjarfélagi eiga sautján Framúrskarandi fyrirtæki aðsetur. Til samanburðar eru 16 slík fyrirtæki í Vestmannaeyjum (um 4.470 íbúar), 19 á Akranesi (um 8.300 íbúar) og 26 í Mosfellsbæ (13.715 íbúar).

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Erfiður vetur fram­undan en ís­lensk fyrir­tæki ráði við á­skoranirnar

Hátt í tólfhundruð fyrirtæki teljast Framúrskarandi samkvæmt Creditinfo í rekstrarumhverfi sem hefur sjaldan verið jafn krefjandi. Hvaða brekkur bíða fyrirtækja sem vilja komast á listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki eða halda sæti sínu þar? Er allt í volli, verðbólga, skattar, vörugjöld og vesen eða er ljós við enda ganganna? Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka fer hér yfir áskoranir framundan.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Eld­móðurinn slokknar ekki þótt kertin séu orðin sjö­tíu

Flestir Íslendingar hætta að vinna kringum 67–70 ára aldurinn en það á þó alls ekki við um alla. Sumir finna enn djúpan tilgang, gleði og orku í starfi sínu, jafnvel löngu eftir að hefðbundnum eftirlaunaaldri er náð. Margir sem halda áfram að vinna eftir sjötugt búa yfir ómetanlegri reynslu, þrautseigju og yfirvegun sem nýtist bæði viðkomandi fyrirtækjunum og samstarfsfólki þeirra.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fréttamynd

Brim hlaut sjálf­bærnis­verð­launin

Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2025 var birtur í gær við hátíðlega athöfn í Laugardalshöll. Þar hlaut sjávarútvegsfyrirtækið Brim hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, fyrir framúrskarandi framlag til sjálfbærrar þróunar og þá einkum fyrir metnaðarfulla endurfjármögnun að fjárhæð 33 milljarða króna. 

Framúrskarandi fyrirtæki
  • «
  • ‹
  • 1
  • 2
  • ›