Gerði undantekningu og endaði með ælu í handtöskuna hjá móður Grealish Rúben Dias, miðvörður Manchester City, drekkur ekki áfengi en gerði undantekningu fyrst lið hans varð Englands-, Evrópu og bikarmeistari nýverið. Það endaði vægast sagt illa fyrir bæði hann sem og handtöskuna sem móðir Jack Grealish var með. Enski boltinn 16. júní 2023 15:00
Vinícius mun leiða nefnd sem berst gegn kynþáttaníði Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins – FIFA, hefur staðfest að Vinicíus Júnior, framherji Real Madríd, muni leiða nefnd skipaða af leikmönnum. Markmið nefndarinnar er að berjast gegn kynþáttaníði. Fótbolti 16. júní 2023 14:31
Vonast til að hárið á Hamsik fái fólk á völlinn Landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta vill ekki að Marek Hamsik og Milan Skrniar, tvær af skærustu stjörnum Slóvakíu, spili leikinn gegn Íslandi bara því þeir séu ekki í sínu besta standi. Hann segir þó að Hamsik geti trekkt fólk að. Fótbolti 16. júní 2023 13:23
Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Slóvakíu Blaðamannafundur fyrir leik Íslands og Slóvakíu í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu fór fram klukkan 12.45 í Laugardal í dag. Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum og sjá má upptöku af fundinum hér að neðan. Fótbolti 16. júní 2023 13:15
Arnór meiddur og ekki með Arnór Sigurðsson hefur þurft að draga sig út úr landsliðshópnum í fótbolta og verður ekki með í leikjunum gegn Slóvakíu og Portúgal í undankeppni EM 2024. Fótbolti 16. júní 2023 13:01
Lars horfði á lokaæfinguna fyrir Slóvakíuleikinn Lars Lagerbäck var á Laugardalsvelli í hádeginu og fylgdist með síðustu æfingu íslenska karlalandsliðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2024. Fótbolti 16. júní 2023 12:21
Sjáðu Lindex-mótið: Hafa gaman og skora mörk er það skemmtilegasta við fótbolta Lindex-mótið á Selfossi fór fram um liðna helgi þar sem stelpur í 6. flokki léku listir sínar. Svava Kristín Grétarsdóttir var á svæðinu og gerði mótinu góð skil. Fótbolti 16. júní 2023 11:01
Rauð spjöld og níðsöngvar er Bandaríkin fóru í úrslit Bandaríkjamenn unnu öruggan 3-0 sigur er liðið mætti Mexíkó í undanúrslitum Þjóðardeildar Norður- og Mið-Ameríku í nótt. Það eru þó ekki úrslit leiksins sem vekja mesta athygli, heldur lætin sem áttu sér stað á meðan leik stóð. Fótbolti 16. júní 2023 10:31
Úkraínumaðurinn Zinchenko vill banna allt íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko, vinstri bakvörður enska knattspyrnufélagsins Arsenal, vill banna allt íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Þá segist hann tilbúinn að berjast fyrir land sitt. Fótbolti 16. júní 2023 10:00
Þjálfari Slóvakíu segir Ísland með sterka liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik Francesco Calzona, þjálfari Slóvakíu, er spenntur fyrir leik Íslands og Slóvakíu þann 17. júní. Hann segir íslenska liðið spila sem eina liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik. Fótbolti 16. júní 2023 09:01
Lagerbäck búinn að ræða við Gylfa Þór „Ef hann kýs að koma aftur myndi það hafa ótrúlega jákvæð áhrif á landsliðið,“ segir Lars Lagerbäck, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, um möguleikann á því að Gylfi Þór Sigurðsson snúi aftur í liðið. Fótbolti 16. júní 2023 08:30
Hættir að grípa bolta í von um að grípa ástina Markvörðurinn Scott van-der-Sluis hefur ákveðið að segja upp samningi sínum hjá írska knattspyrnufélaginu Shelbourne Football Club þar sem hann er að fara taka í hinum fræga raunveruleika þætti Love Island. Fótbolti 16. júní 2023 07:30
Lagerbäck: „Afar góð ákvörðun hjá KSÍ að ráða Åge til starfa“ Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, er spenntur fyrir stjórnartíð Åge Hareide með liðið. Aðstæður nú séu að mörgu leiti ansi svipaðar þeim sem voru til staðar þegar Lars tók við liðinu á sínum tíma. Fótbolti 16. júní 2023 07:00
Harry Kane færði liðsfélögum sínum brotna plötu að gjöf Harry Kane varð í vor markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins. Harry veit vel að enginn maður er eyland og færði félögum sínum í landsliðinu því brotna plötu sem þakklætisvott fyrir stuðninginn. Fótbolti 15. júní 2023 23:31
Telma Ívarsdóttir: Erum á góðum stað Breiðablik vann Þrótt með þremur mörkum gegn engu í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld. Agla María Albertsdóttir skoraði þrjú mörk en Telma Ívarsdóttir markvörður var engu síður mikilvæg í sigrinum en Þróttarar fengu mjög mörg færi sem Telma sá við alltaf. Henni fannst Blikar komast inn í leikin mjög vel eftir stirða byrjun. Íslenski boltinn 15. júní 2023 22:18
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Breiðablik 0-3 | Breiðablik bókaði sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins Í stórleik átta liða úrslita Mjólkurbikarsins á milli Þróttar og Breiðabliks gerðu gestirnir út um leikinn í fyrri hálfleik með þremur mörku frá Öglu Maríu Albertsdóttur. Þar með var sætið í undanúrslitum bókað fyrir Blikana. Leikurinn var frábær skemmtun en það voru Blikar sem skoruðu mörkin og það er það sem skiptir máli. Íslenski boltinn 15. júní 2023 21:50
Fjölnir á toppinn eftir sigur í Grindavík | Auðvelt hjá Fylki í Árbænum Grindvíkingar töpuðu þremur dýrmætum stigum í toppbaráttu Lengjudeildarinnar í kvöld þegar Fjölnismenn komu í heimsókn á Stakkavíkurvöllinn. Með sigri hefði Grindavík jafnað Fjölni að stigum í 2. sæti. Fótbolti 15. júní 2023 21:29
Síðbúið mark frá varamanninum Joselu tryggði Spáni sæti í úrslitum Spánverjar eru á leið í úrslitaleik Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 sigur á Ítalíu í kvöld. Varamaðurinn Joselu tryggði Spánverjum sigurinn með marki á 88. mínútu í aðeins sínum þriðja landsleik. Fótbolti 15. júní 2023 21:00
„Auðvitað er þetta gríðarlega mikilvægur leikur í riðlinum“ Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður OH Leuven í Belgíu og íslenska landsliðsins, segist fullur tilhlökkunar fyrir komandi landsliðverkefni í undankeppni EM. Ísland mætir Slóvakíu á sjálfan þjóðarhátíðardaginn, 17. júní kl. 18:45. Fótbolti 15. júní 2023 20:31
FH með öruggan sigur í Eyjum í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins FH sóttu góðan 1-3 sigur til Vestmannaeyja í kvöld í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarins. Þær enduðu leikinn manni færri en það kom ekki að sök þar sem þær komust í 1-3 strax á 53. mínútu. Markaskorarinn Shaina Faiena Ashouri fékk svo að líta rauða spjaldið á þeirri 80. Fótbolti 15. júní 2023 19:34
Kristianstad fikrar sig nær Meistaradeildarsæti Lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur unnu góðan 3-1 sigur á Vaxjo í sænsku úrvalsdeildinni nú rétt í þessu. Þegar deildin er hálfnuð er Kristianstad í 4. sæti, einu stigi á eftir Pitea, en þrjú efstu sætin veita keppnisrétt í umspili Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 15. júní 2023 19:04
Lionel Messi aldrei verið sneggri að skora en í dag Lionel Messi, sem fagnar 36 ára afmæli sínu eftir níu daga, er greinilega ekki dauður úr öllum æðum enn. Í vináttulandsleik Argentínu og Ástralíu sem fram fór fyrr í dag skoraði hann eftir aðeins 81 sekúndu leik, og hefur aldrei verið sneggri að koma boltanum í markið. Fótbolti 15. júní 2023 18:30
Vieira vill stýra Bandaríkjunum á HM á heimavelli Patrick Vieira hefur áhuga á að taka við bandaríska karlalandsliðinu í fótbolta. Fótbolti 15. júní 2023 16:00
Hjörtur gæti fært sig um set á Ítalíu Knattspyrnumaðurinn Hjörtur Hermannsson, leikmaður Pisa á Ítalíu, gæti verið á förum frá félaginu fyrir annað lið í Serie B. Fótbolti 15. júní 2023 15:31
„Áttum okkur á að leikurinn á laugardag er mjög mikilvægur upp á framhaldið“ Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er spenntur fyrir leik Íslands og Slóvakíu á Laugardalsvelli á laugardaginn kemur. Hann segir mikilvægt að einbeita sér fyrst að þeim leik áður en horft til leiksins gegn Portúgal þremur dögum síðar. Fótbolti 15. júní 2023 14:00
Hamrarnir vilja meira fyrir Rice en Skytturnar eru að bjóða Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur neitað fyrsta tilboði Arsenal í enska miðjumanninn Declan Rice. Englandsmeistarar Manchester City fylgjast náið með gangi mála. Enski boltinn 15. júní 2023 13:31
Gordon McQueen látinn Fyrrverandi knattspyrnukappinn Gordon McQueen er látinn sjötugur að aldri. Hann var greindur með heilabilun snemma árs 2021. Enski boltinn 15. júní 2023 13:10
„Dagurinn sem ég geng í raðir besta knattspyrnufélags í sögu leiksins“ Jude Bellingham var í dag kynntur til leiks sem nýr leikmaður spænska stórveldisins Real Madrid. Fótbolti 15. júní 2023 12:31
Manchester United gefst upp á að eltast við Kane Svo virðist sem forráðamenn Manchester United séu búnir að gefast upp á því að eltast við enska landsliðsfyrirliðann Harry Kane, framherja Tottenham. Fótbolti 15. júní 2023 10:01
Meistararnir byrja titilvörnina gegn Jóa Berg og félögum Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínum fyrsta leik í endurkomu sinni í ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili. Greint var frá leikjaniðurröðun næsta tímabils nú fyrir skemmstu og Burnley tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City í opnunarleik tímabilsins. Fótbolti 15. júní 2023 09:01