Joao Felix tryggði sigurinn gegn gömlum liðsfélögum Barcelona sótti dýrmæt þrjú stig úr viðureign sinni gegn Atletico Madrid. Joao Felix skoraði eina mark leiksins gegn sínum gömlu félögum. Fótbolti 3. desember 2023 22:00
Allt stefndi í fall en Haugesund hélt sér uppi Þrjú íslensk mörk litu dagsins ljós í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar. Bodø/Glimt hafði þegar tryggt sér titilinn en staðan var enn óráðin í fallbaráttunni og Haugesund tókst með ótrúlegum hætti að tryggja áframhaldandi sæti í efstu deild. Fótbolti 3. desember 2023 18:35
Kristian fremstur í flokki á uppleið Ajax Kristian Hlynsson skoraði annan leikinn í röð þegar Ajax lagði NEC Nijmegen 2-1 að velli. Alfons Sampsted fagnaði 3-1 sigri með Twente gegn Willumi Þór og félögum í Go Ahead Eagles. Fótbolti 3. desember 2023 17:57
Lærisveinar Pirlo steinlágu fyrir Birki og félögum í Brescia Birkir Bjarnason setti annað mark sitt í síðustu þremur leikjum þegar Brescia lagði Sampdoria örugglega að velli. Lærisveinar Andrea Pirlo klóruðu í bakkann undir lokin eftir algjöra yfirburði Brescia og minnkuðu muninn í 3-1, sem urðu lokatölur leiksins. Fótbolti 3. desember 2023 17:27
Tíu leikmenn Chelsea héldu út gegn Brighton Chelsea vann mikilvægan 3-2 sigur er liðið tók á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 3. desember 2023 16:11
Mögnuð endurkoma Liverpool í ótrúlegum leik Liverpool vann ótrúlegan 4-3 sigur er liðið tók á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 3. desember 2023 16:06
Kolbeinn lagði upp og skoraði í Íslendingaslag Kolbeinn Finsson lagði upp fyrra mark Lyngby og skoraði það seinna er liðið vann 2-0 sigur gegn Silkeborg í Íslendingaslag dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Fótbolti 3. desember 2023 15:00
Tíu leikmenn PSG kláruðu Le Havre Frakklandsmeistarar PSG unnu sterkan 0-2 sigur er liðið heimsótti Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Gestirnir frá París þurftu þó að leika stærstan hluta leiksins manni færri. Fótbolti 3. desember 2023 14:09
Arsenal tekur á móti Liverpool í stórleik þriðju umferðar Arsenal og Liverpool munu eigast við í þriðju umferð FA-bikarsins í knattspyrnu sem leikin verður fyrstu helgi næsta árs. Fótbolti 3. desember 2023 13:52
UEFA rannsakar stunurnar sem trufluðu dráttinn Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, segist vera að rannsaka kynlífsstunurnar sem heyrðust á meðan dregið var í riðla EM í Þýskalandi sem fram fer á næsta ári. Fótbolti 3. desember 2023 11:31
Þorleifur og félagar misstu af sæti í úrslitum Þorleifur Úlfarsson og félagar hans í Houston Dynamo eru úr leik í úrslitakeppni MLS-deildarinnar í knattspyrnu eftir 2-0 tap gegn Los Angeles FC í undanúrslitum í nótt. Fótbolti 3. desember 2023 11:00
Jóhannes Karl býst við að fara í viðtal í vikunni Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, reiknar með að funda með forráðamönnum sænska efstu deildarfélagsins IFK Norrköping í vikunni. Fótbolti 3. desember 2023 07:00
Vitum hversu mikið við leggjum á okkur fyrir hvorn annan „Frábær sigur í dag. Hefur verið risastór vika fyrir okkur, góð augnablik og sum erfið sem við fórum í gegnum sem lið,“ sagði Anthony Gordon eftir 1-0 sigur Newcastle United á Manchester United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gordon skoraði sigurmark leiksins. Enski boltinn 2. desember 2023 23:01
Guðlaugur Victor hélt hann hefði tryggt sigurinn Guðlaugur Victor Pálsson skoraði það sem virtist ætla að vera sigumarkið í leik Eupen og Kortrijk í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gestirnir jöfnuðu metin á þriðju mínútu uppbótartíma. Fótbolti 2. desember 2023 22:45
Newcastle upp fyrir andlaust lið Man United Newcastle United vann Manchester United 1-0 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn var síst of stór. Enski boltinn 2. desember 2023 22:00
Stunur trufluðu dráttinn Dráttur í riðla Evrópumeistaramótsins 2024 í Hamborg í dag var truflaður af kynferðislegum stunum. Stunurnar heyrðust fyrst eftir að Sviss hafði dregist í riðil með Skotlandi, Ungverjalandi og gestgjöfunum, Þýskalandi. Sport 2. desember 2023 21:01
Real gerði nóg Real Madríd vann 2-0 sigur á Granada í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fótbolti 2. desember 2023 20:00
EM 2024: Ísland myndi vera með Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu í riðli Búið er að draga í riðla fyrir Evrópumót karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Komist Ísland á mótið munu strákarnir vera í E-riðli ásamt Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu. Fótbolti 2. desember 2023 18:05
Jón Daði gerði þrennu í fyrri hálfleik Jón Daði Böðvarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Bolton Wanderers þegar liðið fékk Harrogate Town í heimsókn í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Jón Daði gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleik en leiknum lauk með 5-1 sigri Bolton. Enski boltinn 2. desember 2023 17:30
Skytturnar með fjögurra stiga forystu eftir sigur á Úlfunum Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Arsenal, var á leið að vinna þægilegan 2-0 heimasigur á Wolves þangað til gestirnir skoruðu undir lok leiks. Nær komust þeir ekki og unnu Skytturnar 2-1 sigur í dag. Enski boltinn 2. desember 2023 17:05
Jóhann Berg kom inn af bekknum í stórsigri Burnley Burnley vann Sheffield United örugglega í nýliðaslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir frá Sheffield voru manni færri allan síðari hálfleik og það nýttu lærisveinar Vincents Kompany sér. Enski boltinn 2. desember 2023 17:00
Leik Bayern frestað vegna gríðarlegrar snjókomu Leik Þýskalandsmeistara Bayern München og Union Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu átti að fara fram í dag en vegna gríðarlegrar snjókomu í Bæjaralandi var leiknum frestað. Fótbolti 2. desember 2023 16:46
Jóhannes Karl meðal fárra sem eru taldir líklegir að taka við Norrköping Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er meðal fárra sem eru taldir líklegir að taka við sænska efstu deildarliðinu IFK Norrköping. Frá þessu greinir Anel Avdić, blaðamaður á Sport Expressen í Svíþjóð. Fótbolti 2. desember 2023 16:11
Ísak spilaði allan leikinn í stórsigri Ísak Bergmann Jóhannesson spilaði allan leikinn í stórsigri Dusseldorf í annarri deildinni í þýska fótboltanum í dag. Fótbolti 2. desember 2023 14:06
UEFA skoðar að stofna Evrópudeild kvenna UEFA íhugar sterklega að setja á fót Evrópudeild kvenna til hliðar við Meistaradeildina. Málið verður rætt á fundi framkvæmdastjórnar UEFA auk breytinga á núverandi fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar. Fótbolti 2. desember 2023 08:00
Umfjöllun: Wales - Ísland 1-2 | Harðneita að kveðja hóp þeirra bestu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sendi Wales niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA með 2-1 útisigri í Cardiff í kvöld. Sigurinn þýðir að Ísland endar í 3. sæti síns riðils í A-deild, og fer í umspil í lok febrúar um að halda sér þar. Fótbolti 1. desember 2023 21:57
Þorsteinn skaut á ráðherra: „Hann hefur aldrei mætt á landsleik“ Þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var kátur eftir sigurinn góða hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta gegn Wales í kvöld. Hann skaut hins vegar um leið föstum skotum á Ásmund Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, vegna stöðunnar á þjóðarleikvangi Íslands. Fótbolti 1. desember 2023 21:43
Skoraði afar óheppilegt sjálfsmark í toppslagnum Daniel Heuer skoraði eitt óheppilegasta sjálfsmark sem sést hefur, í toppslag næstefstu deildar í Þýskalandi, Hamburg SV gegn St. Pauli. Fótbolti 1. desember 2023 21:42
Segir Þorstein ekki rétta manninn til að stýra landsliðinu Guðbjörg Gunnarsdóttir er markmannsþjálfari u-18 ára landsliðs Svíþjóðar sem mætir Íslandi í tveimur æfingaleikjum á dögunum. Hún gaf sig til tals við Ríkharð Óskar Guðnason fyrir komandi leiki, þegar talið barst að íslenska A-landsliðinu sagði hún erfitt að sjá leikplan þjálfarans Þorsteins Halldórssonar og viðurkenndi að hún teldi hann ekki rétta manninn til að stýra liðinu. Fótbolti 1. desember 2023 19:05
Þorsteinn stillir upp sama byrjunarliði og í síðasta leik Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur ákveðið að stilla upp sama byrjunarliði í kvöld og í tapleiknum á móti Þýskalandi í síðasta glugga. Fótbolti 1. desember 2023 18:05