„Ekki einn maður haldið því fram að þetta sé sanngjarnt“ Lögmaður hjóna sem fögnuðu sigri í deilu við Íbúðalánasjóð vegna uppgreiðslugjalds sem metið var ólögmætt í héraðsdómi í desember segir nýfallinn dóm fullskipaðs Hæstarétts í málinu mikil vonbrigði. Dómurinn féll Íbúðalánasjóði í vil. Innlent 27. maí 2021 16:21
Viðsnúningur í Hæstarétti vegna uppgreiðsluþóknunar Íbúðalánasjóðs Hæstiréttur sýknaði í dag Íbúðalánasjóð í einu máli er varðaði uppgreiðsluþóknun sjóðsins og ómerkti dóm í öðru og vísaði til meðferðar í héraði á nýjan leik. Héraðsdómur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að uppgreiðsluþóknun Íbúðalánasjóðs hefði verið ólögmæt. Innlent 27. maí 2021 14:38
Skrautlegri sögu félags forstöðumanns Zuism lokið Einkahlutafélagið RH16 sem var í eigu Ágústs Arnars Ágústssonar, forstöðumanns trúfélagsins Zuism, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það var meðal annars notað til að taka á móti fjármunum sem Ágúst Arnar er sakaður um að hafa tekið sér úr sjóðum félagsins, Viðskipti innlent 26. maí 2021 19:58
Satanisti einu skrefi nær draumanafninu Lúsífer Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úr gildi úrskurð mannanafnanefndar um að Ingólfur Örn Friðriksson mætti ekki bera nafnið Lúsífer. Innlent 26. maí 2021 15:24
Sannfærður um spillingu í Hæstarétti: Ný kynslóð elítu í dómskerfinu Skúli Gunnar Sigfússon, oftast kenndur við skyndibitakeðjuna Subway, kveðst sannfærður um að vinfengi Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns hafi ráðið úrslitum í dómi sem féll gegn honum í vetur. Hann er viss um að mikil spilling þrífist í íslenska dómskerfinu. Innlent 26. maí 2021 07:02
„Sveinn Andri Sveinsson og Benni Boga eru saman” Það mátti greina glott á íhyglislegu andliti Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, þegar hann las upp dóm yfir mér í Hæstarétti í vetur leið, þar sem mér var gert að greiða um hálfan milljarð til þrotabús EK 1923 ehf. (áður Eggert Kristjánsson hf. heildsala). Skoðun 26. maí 2021 07:01
Ríkissaksóknari fær ekki svör og segist ekki geta sinnt eftirlitsskyldum sínum Lögregla og héraðssaksóknari óskuðu 314 sinnum eftir heimild dómstóla til að beita rannsóknarúrræðum árið 2020 í alls 76 málum. Óskað var 413 aðgerða en 388 voru nýttar. Í 25 tilvikum var ekkert framkvæmt. Innlent 26. maí 2021 06:53
Dæmdur nauðgari fær ekki áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað beiðni karlmanns um áfrýjunarleyfi sem sakfelldur var fyrir nauðgun á tveimur dómstigum. Rétturinn telur málið ekki hafa verulega almenna þýðingu eða að meðferð málsins fyrir dómum hafi verið stórlega ábótavant. Innlent 25. maí 2021 11:24
„Mjög sterk og ákveðin sýkna“ Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Sigur Rósar, segir kærkomið og löngu tímabært að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið sýknaðir fyrir dómstólum af ásökunum um skattalagabrot. Innlent 25. maí 2021 11:06
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að ganga í skrokk á eiginkonu sinni Karlmaður var dæmdur í 2,5 árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir stórfellda líkamsárás á eiginkonu sína á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar. Innlent 25. maí 2021 10:26
Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun fjóra liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar af ákæru um stórfelld skattsvik. Viðskipti innlent 25. maí 2021 10:10
Angjelin játar en segist hafa verið einn að verki Angjelin Serkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann réð Armando Beqirai bana í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 25. maí 2021 08:40
Atburðarásinni í Rauðagerðismálinu lýst í ákæru Morðið á Armando Beqirai var skipulagt og fylgst var með ferðum hans kvöldið sem hann var myrtur, ef marka má ákæru héraðssaksóknara í Rauðagerðismálinu svokallaða. Innlent 25. maí 2021 07:22
Ákærðu krafin um tæplega 70 milljónir í bætur Þau fjögur sem ákærð eru fyrir að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn eru sameiginlega krafin um rúmlega 68 milljónir í bætur ásamt vöxtum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur fjórmenningunum sem Vísir hefur undir höndum. Innlent 24. maí 2021 15:46
Sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti Karlmaður var sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti í gær. Dómararnir voru þó ekki allir sammála um niðurstöðu í málinu en einn þeirra skilaði inn sératkvæði. Málinu var skotið til landsréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn sekan í febrúar á síðasta ári. Innlent 22. maí 2021 09:43
Kristján Einar sýknaður af ákæru um líkamsárás Kristján Einar Sigurbjörnsson, unnusti söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur, var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás í Landsrétti. Dómi héraðsdóms í málinu var þannig snúið við en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Kristján Einar fyrir líkamsárásina í desember 2019. Innlent 21. maí 2021 20:41
Verður ekki sendur aftur heim þar sem hann var pyntaður Hælisleitandi frá Sri Lanka, sem synjað var um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi í ágúst 2018, mun ekki þurfa að fara úr landi. Þetta dæmdi Landsréttur í dag. Maðurinn er talinn í verulegri hættu í heimalandi sínu en hann tilheyrir þar minnihlutahópi og segist hafa verið pyntaður í haldi yfirvalda. Innlent 21. maí 2021 16:04
Jón Ársæll sýknaður í máli vegna Paradísarheimtar Jón Ársæll Þórðarson, Steingrímur Jón Þórðarson og Ríkisútvarpið hafa verið sýknuð í einkamáli sem viðmælandi í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt höfðaði á hendur þeim. Var krafist fjögurra milljóna króna miskabóta og sagði konan viðtöl við sig hafa verið birt án samþykkis hennar. Innlent 20. maí 2021 12:26
Í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Augustin Dufatanye í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu. Hann verður þá að greiða út tæpa fimm og hálfa milljón vegna málsins, þar á meðal 1,8 milljón til konunnar í miskabætur og tæpar fjórar milljónir fyrir allan sakarkostnað. Innlent 19. maí 2021 18:44
Kröfu um vanhæfni meðdómsmanns í morðmáli hafnað Hæstiréttur hefur hafnað kröfu verjanda mannsins, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi í héraði fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði í fyrra, um að sérfróður meðdómsmaður viki sæti í málinu fyrir Landsrétti. Verjandinn taldi tengsl meðdómsmannsins við þá sem hafa komið að dómi og rannsókn málsins, þar á meðal réttarmeinafræðingsins sem krufði konuna. Innlent 19. maí 2021 17:51
Ábyrgðarmaður hafði betur gegn Menntasjóði námsmanna Ábyrgðarmaður námsláns hjá Menntasjóði námsmanna, áður Lánasjóði íslenskra námsmanna, ber ekki ábyrgð á öllu láninu heldur einungis þeim hluta sem var í vanskilum við gildistöku nýrra laga um Menntasjóð námsmanna. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur en dómur þess efnis var kveðinn upp í dag. Innlent 19. maí 2021 14:43
Dró sér þrjár milljónir frá húsfélaginu Kona var í gær dæmd, í Héraðsdómi Reykjavíkur, til þess að greiða húsfélaginu í Efstasundi 100 rétt rúmar 2,8 milljónir króna. Hún var ákærð fyrir að hafa, sem formaður húsfélagsins, dregið sér fé af reikningum húsfélagsins. Innlent 19. maí 2021 10:32
MDE staðfesti dóm Hæstaréttar í máli kvenna sem nutu aðstoðar staðgöngumóður Mannréttindadómstóll Evrópu hefur staðfest úrskurð Hæstaréttar þess efnis að Þjóðskrá þurfi ekki að skrá tvær íslenskar konur, sem eignuðust dreng með aðstoð erlendrar staðgöngumóður, sem foreldra hans. Úrskurður þess efnis var birtur í dag. Innlent 18. maí 2021 10:49
Kýldi konu algjörlega að tilefnislausu í Hveragerði Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kýlt konu að tilefnislausu í Hveragerði í desember 2019. Þá þarf hann að greiða henni 300 þúsund krónur í bætur. Innlent 17. maí 2021 10:57
„Af hverju ekki bara trúa konu sem kveður mann hafa nauðgað sér?“ Hæstaréttarlögmaðurinn Einar Gautur Steingrímsson hefur gert nýjustu bylgju MeToo-byltingarinnar að viðfangsefni sínu í pistli á Facebook-síðu sinni, sem hann áætlar að verði einn af mörgum. Hann hyggst þó ræða málin út frá lagalegu sjónarhorni og reynslu sinni af málaflokknum og réttarkerfinu í heild. Innlent 14. maí 2021 21:00
Sýknaður af bótakröfu fyrir gáleysi á Bitruhálsi Landsréttur hefur staðfest eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir 64 ára karlmanni sem sýndi af sér gáleysi þegar hann ók á gangandi vegfaranda á gangbraut á Bitruhálsi í Reykjavík þann 4. desember 2017. Innlent 14. maí 2021 15:01
Lögreglumaður dæmdur fyrir meðferð á gesti á Irishman Landsréttur staðfesti í dag 45 daga fangelsisdóm yfir rúmlega þrítugum lögreglumanni fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Innlent 14. maí 2021 14:31
Björn Ingi dæmdur til að greiða áttatíu milljónir króna Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, sem í seinni tíð hefur verið kenndur við Viljann, hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Pressunnar ehf. áttatíu milljónir króna. Viðskipti innlent 14. maí 2021 14:12
Telur það ekki mistök að hafa tekið þátt í myndbandinu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa skoðun á því að myndbandið „Ég trúi“ hafi verið fjarlægt eftir að sögur sem tengdust fólki í myndbandinu fóru af stað í kjölfar birtingar þess. Hún telji þó ekki mistök að hafa tekið þátt í gerð myndbandsins. Innlent 14. maí 2021 11:29
Hefði getað farið mjög illa á Smiðshöfða Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu sagðist telja að mjög illa hefði getað farið ef eldur hefði kviknað í iðnaðarhúsnæði þar sem eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob lét smíða búseturými. Eigandinn er ákærður fyrir að stefna heilsu og lífi starfsmanna sem bjuggu í húsnæðinu í augljósan háska. Innlent 13. maí 2021 20:05