Nágrannarnir fylgdust með hörmungum í næsta garði Bjarki Sigurðsson skrifar 29. mars 2023 15:43 Magnús Aron Magnússon í dómsal í dag. Vísir/Vilhelm Nágrannar Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson við Barðavog í Reykjavík í fyrrasumar lýstu því fyrir dómi hvernig þau sáu Magnús traðka á Gylfa á meðan hann lá meðvitundarlaus fyrir utan hús sitt. Magnús sagðist fyrir dómi ekki hafa snert manninn eftir að hann féll á jörðina meðvitundarlaus.
Aðalmeðferð í máli gegn Magnúsi Aroni Magnússyni sem hefur verið ákærður fyrir að hafa veist að nágranna sínum Gylfa Bergmann Heimissyni með þeim afleiðingum að Gylfi lést á vettvangi hófst í dag. Í morgun greindi Vísir frá skýrslu Magnúsar sem og skýrslu frá manni sem bjó í sama húsi og Magnús og Gylfi. Gylfi fannst meðvitundarlaus á vettvangi eftir að Magnús hafði hringt sjálfur á lögregluna. Endurlífgunartilraunir báru engan árangur en Gylfi lá fyrir framan húsið og Magnús skömmu frá á sömu lóð. Gylfi lá þannig að höfuð hans var á grasbala, háls við steyptan kant og restin af líkama hans á malarplani. Sagði fullt af dældum vera í grasinu Í grasinu, undir þar sem höfuð Gylfa var, var mikil dæld. Aðspurður hvort dældin hafi komið í grasið vegna átaka þeirra sagði Magnús að hún væri ekki fullkomin, það hafi verið fleiri dældir á svæðinu. Þegar hann lýsti átökum þeirra fyrir dómi sagðist hann hafa slegið Gylfa í andlit svo hann féll niður og rotaðist. Eftir nokkrar tilraunir dómara við að fá staðfest hvort Gylfi hafi verið liggjandi eða standandi þegar rothöggið barst sagðist Magnús staðfesta að Gylfi hafi verið standandi. Eftir það hafi hann gengið í burtu, hringt á neyðarlínuna og beðið eftir lögreglu. Þá sagðist hann ekki hafa veitt honum nein högg eftir að hafa rotað hann. Sáu Magnús traðka á Gylfa Nágrannar sem urðu vitni að átökunum voru ekki sammála Magnúsi með það. Um er að ræða hjón sem búsett eru í húsinu við hliðina á þar sem atvikið átti sér stað. Maðurinn lýsti þessu sem svo að hann hafi staðið úti að grilla þegar hann heyrði skarkala úr húsinu við hliðina á. Reyndi hann að sjá hvað væri að gerast en sá ekki neitt. Hann fór inn í sitt hús en aftur út skömmu síðar. Þá sá hann Magnús og Gylfa. Segir hann Gylfa hafa verið liggjandi og Magnús vera að traðka á brjóstkassa Gylfa. „Ég hljóp inn og lét hringja á lögregluna. Kom aftur og sá að hinn var hættur að hreyfast. Sá síðan manninn sem var að stappa á honum labba í kring og sparka í hausinn á honum. Hélt hann á síma en vissi ekki hvort hann hafi verið að taka myndir eða hvað. Svo fylgdist öll fjölskyldan með. Maðurinn var enn með meðvitundarlausa manninum og var þannig þar til lögregla kom,“ sagði maðurinn. Aðspurður segist hann hafa séð Magnús traðka með einhverju afli. Gylfi hafi allan tímann verið hreyfingarlaus. Magnús notaðist einungis við fæturna, gekk í kring og ýtti í höfuð hans. Sá mörg spörk Eiginkona mannsins tók undir vitnisburð hans. Hún sagðist hafa verið að horfa á fréttirnar þegar maðurinn hljóp inn og bað hana um að hringja á lögregluna. Á meðan hún hafi verið að gera það hafi eiginmaðurinn komið aftur og beðið hana um að biðja um sjúkrabíl, hann haldi að þarna sé verið að drepa mann. „Ég var inni allan tímann og sé vel yfir. Ég sá mörg spörk. Það var sparkað af afli. Sá enga hreyfingu. Sá þegar lögregla kom á vettvang og sá manninn sem var að sparka handtekinn,“ sagði konan sem var ekki kunnugt um deilur aðila í húsinu. Hún hafi þó orðið var við það að lögregla kom þangað kvöldið áður. Sonur hjónanna sem einnig varð vitni að atvikinu tók undir frásagnir foreldra sinna að mestu. Hann hafði þó ekki tekið eftir neinu traðki, einungis að Magnús hafi ýtt í höfuð á Gylfa á meðan hann lá þarna meðvitundarlaus. Lögreglukona hjá tæknideild lögreglunnar sagði að dældin undir höfði mannsins hafi ekki verið eins og hver önnur dæld. Ofan í henni hafi verið blóðpollur og mótaði hún fyrir höfðinu á honum. Dældin hafi ekki getað orðið til nema ef miklu afli er beitt.
Manndráp í Barðavogi Dómsmál Reykjavík Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Fleiri fréttir Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Sjá meira