Dæmdur í 4 mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvítugan karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og að framvísa fölsuðum lyfseðli í apóteki. Líkamsárásin átti sér stað í september á síðasta ári þegar maðurinn réðst á annan fyrir utan Félagsheimilið Festi í Grindavík og sló hann í andlitið þannig að kinnbein brotnaði. Innlent 28. október 2004 00:01
Geðsjúkur fangi í einangrun Færa þurfti mjög geðsjúkan fanga frá Sogni í einangrun á Litla - Hrauni, þar sem hann dvaldi í átta daga. Fangelsismálastofnun segir að erfitt sé að fá fanga vistaða á geðdeildum. Þeir hafi jafnvel verið sendir til baka þegar vistun hafi verið reynd. </font /></b /> Innlent 27. október 2004 00:01
Stal páskaeggi og átti hass Í Héraðsdómi Reykjavíkur var nítján ára piltur dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi og sextán ára piltur dæmdur í tveggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Mál þriðja piltsins var skilið frá þessu máli. Innlent 26. október 2004 00:01
Kærði viku eftir árásina Í dómnum er látið að því liggja að kona hafi unnið til áverkanna," segir Jónína Bjartmarz, alþingismaður og lögfræðingur, um dóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku þar sem refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað. Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, dæmdi málið. Innlent 26. október 2004 00:01
Komst ekki hjá sektinni Fertugur karlmaður var, í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur til að greiða 50 þúsund króna sekt í ríkissjóð, fyrir hraðakstur. Innlent 26. október 2004 00:01
Braut gegn fósturdóttur sinni Maður var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa haft samfarir og önnur kynferðismök við fósturdóttur sína. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa káfað á vinkonu hennar og fyrir vörslu barnakláms. Innlent 25. október 2004 00:01
Rannsókn lokið í Hagamelsmálinu Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á því þegar móðir varð dóttur sinni að bana á heimili þeirra við Hagamel í sumar. Dóttirin var á tólfta ári og var henni banað þar sem hún lá í rúmi sínu og eldri bróðir hennar særður. Innlent 23. október 2004 00:01
Tveir síbrotamenn dæmdir Tveir síbrotamenn voru í morgun dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til fangelsisvistar og er hvorugur dómurinn skilorðsbundinn. Innlent 22. október 2004 00:01
Ákærður fyrir manndrápstilraun Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot. Innlent 22. október 2004 00:01
Stefán dæmdur í 3 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson, annan „Skeljagrandabróðurinn“, í þriggja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Milta mannsins rifnaði svo hann hlaut innvortis blæðingu. Innlent 22. október 2004 00:01
Deilan um landið á tímamótum Jarðeigendur í uppsveitum Biskupstungna halda jörðum sínum óskertum en afréttur sem þeir gerðu kröfu til verður að þjóðlendum samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Ríkið gerði kröfu um hluta jarðanna. Með dómnum er staðfestur úrskurður óbyggðanefndar frá því árið 2000. Þetta er fyrsti dómur Hæstaréttar í þjóðlendumáli. Innlent 21. október 2004 00:01
Krefst tveggja ára fangelsisdóms Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu. Innlent 19. október 2004 00:01
2 1/2 árs fangelsi hæfilegt Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi. Innlent 19. október 2004 00:01
Héraðsdómur viðurkennir kröfuna Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag stærstan hluta kröfu Jónasar Kristjánssonar í þrotabú DV sem forgangskröfu. Jónasi var sagt upp störfum sem ritstjóra blaðsins í desember árið 2001 og telur hann sig eiga inni ógreidd laun, bæði frá tímabili uppsagnarfrests og fyrri hluta árs 2001. Innlent 19. október 2004 00:01
Hressir eftir að Vaidas dó Jónas Ingi Ragnarson og Tomas Malakauskas virtust hressir og kátir og alls ekki áhyggjufullir, eftir að Vaidas Jucevicius lést í Kópavogi og þar til honum var komið fyrir í sjóinn við netagerðabryggjuna í Neskaupstað, að sögn vitna í aðalmeðferð Líkfundarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 18. október 2004 00:01
Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 18. október 2004 00:01
Vissi ekki af líkinu Einn sakborninganna í líkfundarmálinu segist ekki hafa haft hugmynd um að lík væri vafið í teppi og geymt aftur í, í jeppa sem hann ók um 700 kílómetra leið austur á firði. Hinir sakborningarnir tveir staðhæfa að allir þrír hafi átt þátt í að koma líkinu fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 18. október 2004 00:01
Álitshnekkir fyrir Hæstarétt Kjartan Ásmundsson segir það sorglegt að menn þurfi að fara út fyrir landsteinana til að leita réttar síns gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi íslenska ríkið til að greiða honum bætur í gær eftir að Héraðsdómur og Hæstiréttur höfðu dæmt Kjartani í óhag. Kjartan segir dóm Mannréttindadómstólsins álitshnekki fyrir Hæstarétt. Innlent 13. október 2004 00:01
Enn í stofufangelsi í Texas Bandarísk stjórnvöld hafa enn ekki svarað beiðni íslenskra stjórnvalda um að tvítugur Íslendingur, sem haldið hefur verið föngnum í Texas í sjö ár, fáist framseldur til Íslands. Hann var 13 ára dæmdur fyrir kynferðisbrot sem hann er sagður hafa framið þegar hann var 11 ára. Innlent 10. október 2004 00:01
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi Ragnar Sigurjónsson, sem var framseldur frá Taílandi fyrr á árinu, var í dag dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjársvik. Þar af eru fjórir mánuðir skilorðsbundnir. Ákæruvaldið krafðist fimm mánaða fangelsisvistar. Innlent 8. október 2004 00:01
Gæsluvarðhald framlengt Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rann út í dag og varð Héraðsdómur við kröfu lögreglunnar í Reykjavík um tveggja vikna framlengingu. Innlent 8. október 2004 00:01
Axarmaðurinn játar brot sitt Ungur maður játaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa rænt Landsbankaútibúið við Gullinbrú, vopnaður öxi. Ránsfengnum var líklega komið til fíkniefnasala sem hann skuldaði fé. Gjaldkeri í bankanum sagðist hafa verið miður sín í langan tíma á eftir. Innlent 7. október 2004 00:01
Sýknaður af skjalafalsi Rúmlega fimmtugur maður var sýknaður, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af ákæru um skjalafals. Maðurinn var ákærður fyrir að skrifa nafn annars manns á tilkynningu sem hann framvísaði hjá Umferðarstofu um sölu bifreiðar hans. Innlent 6. október 2004 00:01
Mæðgur í fangelsi Fanta Sillah, 26 ára kona frá Sierra Leone, sem í Héraðsdómi Reykjaness var dæmd í fimm ára fangelsi fyrir e-töflusmygl í lok júlí, eignaðist stúlkubarn fyrir um mánuði síðan. Dóttir Fanta dvelur nú með henni í kvennafangelsinu í Kópavogi og heilsast báðum vel að sögn lögmanns Fanta. Innlent 5. október 2004 00:01
Játaði sök sem burðardýr Rúmlega tvítugur maður frá Litháen var ákærður sem burðardýr í stóru kókaínmáli í gær. Han játaði sök. Innlent 4. október 2004 00:01
Hafnar kröfu um frávísun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfum manns sem ákærður er fyrir að hafa numið dóttur sína á brott og flutt hana til Frakklands um að málinu verði vísað frá dómi. Rök mannsins eru þau að hann sætir sömu ákæru í Frakklandi. Innlent 4. október 2004 00:01
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður um þrítugt var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni, amfetamíni og LSD. Þar með sitja sjö í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi og tveir í Hollandi. Innlent 30. september 2004 00:01
Máli Hannesar vísað frá Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær. Innlent 30. september 2004 00:01
Krefst fjögurra ára fangelsis Sækjandi í sakamáli gegn Stefáni Loga Sívarssyni krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir sem hann er sakaður um að hafa framið á tveimur dögum í apríl. Innlent 30. september 2004 00:01
Lögbannið fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi lögbann við að Siðanefnd Háskóla Íslands fjalli um vinnubrögð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar þegar hann reit fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness í fyrra. Innlent 30. september 2004 00:01