Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. Erlent 14.2.2026 10:40
WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Íslenski fjárfestirinn Auðunn Már Guðmundsson hefur unnið dómsmál í Bretlandi þar sem fyrrverandi eiginkona hans, breska listakonan Hsiao-Mei Lin, reyndi að halda eftir fasteign þeirra hjóna. Dómari við efra dómstig (e. High Court of Justice) í Lundúnum komst að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboð frá Auðuni Má væru ekki löglega bindandi og gætu því ekki talist framsal á hans hluta í eigninni. Innlent 14.2.2026 08:02
Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. Lífið 13.2.2026 07:00
Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC. Erlent 8. febrúar 2026 21:26
Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. Erlent 8. febrúar 2026 16:00
Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins. Lífið 8. febrúar 2026 15:47
Alan Carr á Íslandi Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga. Lífið 6. febrúar 2026 11:39
Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Þrýstingur eykst nú á Keir Starmer forsætisráðherra Breta en lægra settir þingmenn í Verkamannaflokki hans eru sagðir afar ósáttir við hvernig foringi þeirra tók á máli Peters Mandelsons fyrrverandi ráðherra og sendiherra Breta í Bandaríkjunum sem nú hefur verið rekinn úr flokknum. Erlent 5. febrúar 2026 07:30
Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Erlent 4. febrúar 2026 08:42
Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Vopnaður ræningi sem reyndu að komast inn í svefnherbergi bandarísku leikkonunnar Anya Taylor-Joy og eiginmanns hennar Malcom McRae hefur verið úrskurðaður í fangelsi. Erlent 3. febrúar 2026 22:58
Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Sjónvarpskonan Maya Jama og fótboltamaðurinn Rúben Dias lentu í miður skemmtilegu atviki þegar brotist var inn í heimili þeirra í Cheshire í norðvesturhluta Englands. Lífið 30. janúar 2026 17:06
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. Erlent 30. janúar 2026 09:07
„Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. Neytendur 30. janúar 2026 06:30
Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Samstarf sem hófst í Reykjavík varð kveikjan að endurkomu einnar þekktustu jaðarrokkhljómsveitar Bretlands, Arcane Roots. Þar er íslenski tónlistarmaðurinn Bjarni Biering í lykilhlutverki en blaðamaður tók púlsinn á honum og hljómsveitinni. Tónlist 28. janúar 2026 20:02
Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. Erlent 27. janúar 2026 22:50
Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Victoria Hart, 33 ára gömul þriggja barna móðir frá Bretlandi, var stungin til bana á heimili sínu á Spáni um helgina. Börn hennar voru heima þegar móður þeirra var ráðinn bani, en elsti sonur hennar sem er ellefu ára, mun hafa kallað eftir aðstoð. Sex ára tvíburadætur Hart voru einnig í húsinu en meintur árásarmaður er sagður hafa sjálfur gefið sig fram við lögreglu. Erlent 26. janúar 2026 11:41
Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Plötusnúðurinn sem þeytti skífum í brúðkaupi Brooklyns Beckham og Nicolu Peltz hefur sagt upplifun sína af fyrsta dansi brúðgumans við móður sína, Victoriu Beckham. Rétt áður hafði brúðurin hlaupið grátandi út og aðstæður verið vandræðalegar fyrir alla í salnum. Lífið 23. janúar 2026 16:58
Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi. Gagnrýni 23. janúar 2026 07:01
Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð „Þeir hafa aldrei beðist afsökunar með neinum sérstökum formlegum hætti og breskir embættismenn og stjórnmálamenn segja það fullum fetum í mín eyru að þetta hafi verið efnahagsleg hernaðaraðgerð sem breska ríkið beitti Ísland.“ Innlent 21. janúar 2026 23:16
Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Tónlistarkonan Lily Allen hefur greinilega valið sér fylkingu í deilum innan Beckham-fjölskyldunnar sem hafa gerjast um nokkurra ára bil og sprungu í loft upp þegar Brooklyn Beckham, frumburður Victoriu og Davids, sagðist ekki vilja sættast við fjölskyldu sína. Lífið 20. janúar 2026 10:26
Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Brooklyn Beckham, frumburður Davids og Victoriu Beckham, birti langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sakar foreldra sína um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Þá hafi þau verið illviljuð gagnvart eiginkonu Brooklyn. Lífið 19. janúar 2026 20:45
Fagna tíu árum af ást Heimsfræga og stundum umdeilda ofurparið Meghan Markle og Harry Bretaprins fagna tíu árum af ást í ár. Þegar þau felldu hugi saman átti bókstaflega allt eftir að breytast í lífi þeirra en ástin virðist blómstra sem aldrei fyrr. Lífið 19. janúar 2026 16:03
Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Talsmaður Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að forsætisráðherrann hafi talað við Donald Trump Bandaríkjaforseta í síma í dag. Ráðherran hafi sagt að það væri „rangt“ að leggja tolla á bandamenn sína fyrir það eitt að reyna að tryggja öryggi á norðurslóðum. Erlent 18. janúar 2026 20:20
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18. janúar 2026 13:58