„Þetta er bara einn leikur í einu“ Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur. Sport 21.10.2026 21:44
Dazia skoraði 46 stig fyrir KR KR vann þrettán stiga sigur á Ármanni, 102-89, í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. KR hafði tapað fyrsta leiknum á tímabilinu í leiknum á undan en komst aftur á sigurbrautina í Vesturbænum í kvöld. Körfubolti 21.10.2026 21:08
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Grindavíkurkonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld með sannfærandi fjórtán stiga sigri á nágrönnum sínum úr Keflavík, 89-75. Körfubolti 21.10.2026 18:46
„Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Ármann tapaði gegn Val 78-89 á heimavelli. Leikurinn var jafn og spennandi í fjórða leikhluta þar sem forskot Vals fór minnst niður í þrjú stig. Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari liðsins, var ansi svekktur eftir leik. Sport 13. október 2026 21:43
Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Valur vann ellefu stiga sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll 78-89. Valskonur voru 22 stigum yfir í hálfleik en heimakonur sýndu mikinn karakter og minnkuðu forskot Vals minnst niður í þrjú stig en Valskonur höfðu betur að lokum. Körfubolti 13. október 2026 21:00
„Erum að slípa saman liðið“ Njarðvík vann átján stiga sigur gegn KR 97-115. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar ánægður eftir leik og tók undir að þetta hafi verið besti leikur liðsins á tímabilinu. Sport 12. október 2026 22:30
Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Stjörnukonur unnu Hauka í spennuleik í Ólafssal í kvöld, í 3. umferð Bónus-deildarinnar í körfubolta. Keflavík vann stórsigur á heimavelli gegn Fjölni og Grindavík gerði slíkt hið sama gegn Tindastóli á Sauðárkróki. Körfubolti 12. október 2026 21:06
Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu 18 stiga sigur gegn KR-ingum 97-115. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar settu í annan gír í seinni hálfleik sem skilaði sigri. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Körfubolti 12. október 2026 21:00
Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Nýtt tímabil hefst í Bónus-deild karla í kvöld og nýju tímabili fylgja breyttar áherslur og reglugerðarbreytingar. Körfubolti 8. október 2026 13:32
Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Íslandsmeistararnir í Njarðvík tóku á móti nágrönnum sínum og Bikarmeisturum í Keflavík í 2. umferð Bónus deild kvenna í kvöld. Eftir mikla baráttu eru það Njarðvíkingar sem eiga montréttinn eftir fjögurra stiga sigur 83-79. Körfubolti 7. október 2026 21:50
Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Fjölnir tók á móti Tindastóli í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Nýliðarnir í Fjölni áttu erfitt með gestina frá Sauðárkróki og vann Tindastóll á endanum 101-67 sigur. Körfubolti 7. október 2026 20:57
Leikmaður ársins missir af landsleikjum Danielle Rodriguez, leikmaður Njarðvíkur, meiddist í leik liðsins gegn Val í Bónus-deild kvenna. Hún er nýkomin til baka úr meiðslum og fær önnur meiðsli beint í bakið. Körfubolti 7. október 2026 20:05
Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Bónus-deild kvenna á sviðið í kvöld á sportrásum Sýnar en þar eru tveir leikir á dagskrá og svo uppgjörsþátturinn Körfuboltakvöld. Körfubolti 7. október 2026 06:28
Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Grindavík tók á móti Haukum í 2. umferð Bónus deild kvenna í kvöld. Bæði lið hafa byrjað deildina sterkt og því var ljóst að hart yrði barist í HS Orku-höllinni í kvöld. Eftir frábæran lokasprett var það Grindavík sem hafði betur með tíu stigum 81-71. Körfubolti 6. október 2026 21:35
KR vann erkifjendurna sannfærandi Valur tók á móti KR í sannkölluðum Reykjavíkurslag í Bónus-deild kvenna í körfubolta. KR náði að vinna erkifjendurna á útivelli og endaði leikurinn 84-68. Körfubolti 6. október 2026 21:08
Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Stjarnan tók á móti Ármanni í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Stjarnan byrjaði vel og náði að viðhalda forskotinu og sigldi heim sigri þar sem leikurinn endaði 80-62. Körfubolti 6. október 2026 20:17
Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson er byrjaður að dæma sitt fertugasta tímabil í efstu deild. Hann hóf störf í efstu deild kvenna árið 1987 og þetta tímabil leggst vel í einn af okkar bestu dómurum. Körfubolti 5. október 2026 12:17
Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Valur fékk Íslandsmeistara Njarðvík í heimsókn í N1 höllina í kvöld þegar síðustu leikir fyrstu umferðar Bónus deild kvenna fóru fram. Eftir jafnan leik framan af stigu Valskonur á bensíngjöfina í fjórða leikhluta og fóru að lokum með öruggan og óvæntan þrettán stiga sigur 77-64. Körfubolti 30. september 2026 21:50
„Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Valskonur unnu gríðarlega öflugan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í fyrstu umferð Bónus deild kvenna 77-64. Jamil Abiad þjálfari Vals var að vonum sáttur í leikslok. Sport 30. september 2026 21:32
Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Haukar tóku á móti Fjölni í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna þar sem Haukar unnu stórsigur 96-65. Nýliðarnir í Fjölni áttu erfiða byrjun og sá liðið aldrei til sólar eftir það. Körfubolti 30. september 2026 21:03
Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur Pálína Gunnlaugsdóttir spáði silfurliði Hauka aðeins sjötta sæti í Bónus-deild kvenna í körfubolta í vetur þegar hún fékk það hlutverk að staðsetja Haukaliðið í upphitunarþætti Körfuboltakvölds. Körfubolti 30. september 2026 15:00
„Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda. Körfubolti 30. september 2026 12:46
„Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var sáttur við sóknarleikinn en ósáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Stjörnuna að velli í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 29. september 2026 22:29
„Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með vinnuframlag leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Ólafur Jónas segir aftur á móti verk að vinna að fínpússa ákveðna hluti á báðum endum vallarins. Körfubolti 29. september 2026 22:26
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti