Birna Berg: Það þýðir ekkert að hætta núna Birna Berg Haraldsdóttir og félagar hennar í ÍBV-liðinu hafa byrjað frábærlega í sumar en nýliðarnir í Pepsi-deild kvenna eru með fullt hús eftir fyrstu þrjár umferðirnar. ÍBV vann 2-0 sigur á Breiðabliki í Kópavoginum í kvöld en hafði unnið tvo 5-0 sigra í fyrstu tveimur umferðunum. Íslenski boltinn 1. júní 2011 21:01
Greta Mjöll: Þurfum bara að spila eins og við getum Greta Mjöll Samúelsdóttir og félagar hennar í Breiðablik náðu ekki að nýta sér gott spil út á velli á móti nýliðum ÍBV á heimavelli sínum í kvöld. ÍBV vann leikinn 2-0 og eru Blikakonur því aðeins með eitt stig af níu mögulegum en nýliðarnir eru einir á toppnum með fullt hús. Íslenski boltinn 1. júní 2011 20:55
Þórhildur: Ekkert leiðinlegt að skoða töfluna núna Þórhildur Ólafsdóttir, fyrirliði ÍBV, var að sjálfsögðu mjög sátt eftir 2-0 sigur á Breiðabliki í Kópavogi í kvöld en eftir leikinn eru nýliðarnir með fullt hús á toppnum eftir þrjár umferðir. Íslenski boltinn 1. júní 2011 20:48
Eyjastúlkur áfram með fullt hús eftir sigur á Blikum Nýliðar ÍBV héldu sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild kvenna og tryggðu sér aftur toppsætið með 2-0 sigri á Breiðabliki í Kópavogi í kvöld. Eyjakonur eru eina liðið í deildinni með fullt hús eftir þrjár umferðir og tók toppsæti aftur af Íslandsmeisturum Vals sem höfðu tekið það af þeim í gær. Blikakonur sitja hinsvegar áfram í hópi neðstu liða með aðeins eitt stig í húsi af níu mögulegum. Íslenski boltinn 1. júní 2011 19:56
Hildur: Stressið fer þegar leikurinn byrjar Hildur Antonsdóttir átti mjög góðan leik á miðju Valsliðsins í kvöld þegar Íslandsmeistararnir unnu 2-1 sigur á Stjörnunni í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 31. maí 2011 22:54
Kristín Ýr: Mjög gott að fá þrjú stig í svona leik Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði seinna mark Vals með þrumuskalla þegar Íslandsmeistararnir unnu 2-1 sigur á Stjörnunni í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Íslenski boltinn 31. maí 2011 22:43
Gunnhildur: Við erum þungar á grasinu Sex leikja sigurganga Stjörnukvenna endaði í kvöld þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Íslandsmeisturum Vals í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 31. maí 2011 22:24
Mist: Þetta var ekki búið að vera nógu gott hjá okkur Mist Edvardsdóttir, skoraði mikilvægt mark fyrir Val í kvöld þegar hún kom liðinu í 1-0 á 30. mínútu í 2-1 sigri Vals á Stjörnunni í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 31. maí 2011 22:05
Þorlákur: Við áttum ekki góðan dag Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar, sá sínar stelpur tapa sínum fyrsta leik síðan í byrjun apríl þegar Stjörnuliðið tapaði 2-1 fyrir Íslandsmeisturum Vals á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Íslenski boltinn 31. maí 2011 22:01
Hlynur Svan tekur við kvennaliði Þórs/KA Knattspyrnudeild Þórs tilkynnti í kvöld að þeir Viðar Sigurjónsson og Siguróli Kristjánsson hefðu látið af störfum sem þjálfarar Þórs/KA. Íslenski boltinn 31. maí 2011 21:59
Valskonur unnu toppslaginn á móti Stjörnunni Valskonur urðu fyrstar til að taka stig af Stjörnukonum í Pepsi-deild kvenna í sumar þegar þær unnu 2-1 sigur í toppslagnum á Hlíðarenda í kvöld. Valur komst með sigrinum í toppsætið deildarinnar en Eyjaliðið fær tækifæri til að endurheimta það í Kópavoginum á morgun. Íslenski boltinn 31. maí 2011 21:08
Stórleikur í kvennafótboltanum í kvöld - Valur og Stjarnan mætast Það verður stórleikur í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar Íslandsmeistarar Vals fá Stjörnuna í heimsókn á Vodafonevöllinn að Hlíðarenda. Valur tapaði óvænt tveimur stigum í síðustu umferð en Stjarnan er annað tveggja liða með fullt hús eftir fyrstu tvær umferðirnar. Íslenski boltinn 31. maí 2011 16:45
Besta byrjun nýliða í áratug Nýliðar ÍBV í Pepsi-deild kvenna hafa vakið mikla athygli með því að byrja Íslandsmótið á því að vinna 5-0 sigra á bæði Þór/KA og Aftureldingu í fyrstu tveimur umferðunum. Íslenski boltinn 26. maí 2011 06:00
Versta byrjun Blikakvenna í 34 ár Kvennalið Breiðabliks hefur aðeins fengið eitt stig út úr fyrstu tveimur umferðum Pepsi-deildar kvenna og er í sjötta sæti deildarinnar. Það þarf að fara alla leið aftur til ársins 1977 til þess að finna samskonar byrjun hjá kvennaliði Breiðabliks. Íslenski boltinn 25. maí 2011 18:15
ÍBV og Stjarnan með fullt hús stiga Annarri umferð Pepsi-deildar kvenna lauk í gær með fjórum leikjum og var nokkuð um óvænt úrslit. Fylkir gerði 1-1 jafntefli við Íslands- og bikarmeistara Vals á heimavelli og þá vann KR 2-1 sigur á Breiðabliki. Íslenski boltinn 25. maí 2011 06:00
Enn ein Blikastúlkan með slitið krossband Óheppnin virðist elta Blikastúlkur þegar kemur að krossbandaslitum því það lítur út fyrir að Hildur Sif Hauksdóttir sé sjötti leikmaður kvennaliðs Breiðabliks á þremur árum sem slítur krossband í hné. Íslenski boltinn 20. maí 2011 21:15
Eyjastúlkur rakleitt á toppinn Nýliðar ÍBV byrja glæsilega í Pepsi-deild kvenna en liðið lagði Þór/KA á Akureyri með fimm mörkum gegn engu. Íslenski boltinn 14. maí 2011 17:58
Sigurður Ragnar: Verður sumar ungu stelpnanna Valskonur hafa unnið Íslandsmeistarabikarinn fimm ár í röð og tvöfalt undanfarin tvö tímabil. Stóra spurningin fyrir tímabilið í Pepsi-deild kvenna er því eins og áður hvort að einhverju lið takist að velta Valsstúlkum af toppnum. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur fylgst vel með undirbúningstímabilinu og hann hefur mikla trú á því að Stjörnustúlkur geti gert titilbaráttuna virkilega spennandi í sumar. Íslenski boltinn 14. maí 2011 07:00
Valskonur meistarar meistaranna fimmta árið í röð Íslands- og bikarmeistarar Vals eru meistarar meistaranna í kvennafótboltanum eftir 3-1 sigur á Þór/KA í Meistarakeppni kvenna í Kórnum í dag. Valskonur voru manni færri síðasta hálftímann í leiknum. Íslenski boltinn 7. maí 2011 16:02
Stjörnukonur slógu Þór/KA út fyrir norðan Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í fótbolta með 3-1 sigri á Þór/KA í Boganum á Akureyri í kvöld. Þór/KA var yfir í hálfleik en Stjörnukonur skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleiknum. Fótbolti 29. apríl 2011 19:58
Hallbera skaut Valskonum í úrslitaleikinn Hallbera Guðný Gísladóttir tryggði Val 2-1 sigur á Breiðabliki í undanúrslitaleik Lengjubikars kvenna á gervigrasinu á Hlíðarenda í kvöld en Valsliðið mætir annaðhvort Þór/KA eða Stjörnunni í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Valur hefur titil að verja eftir að hafa unnið Fylki í úrslitaleiknum í fyrra. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 21:16
Gunnar Rafn: Missum leikmenn á hverju ári Gunnar Rafn Borgþórsson er nýr þjálfari Vals en liðinu var í dag spáð sigri í Pepsi-deildar kvenna á árlegum kynningarfundi deildarinnar. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 18:15
FH og Valur verða Íslandsmeistarar í sumar FH-ingum er spáð sigri í Pepsi-deild karla í fótbolta og Valskonum er spáð sigri í Pepsi-deild kvenna í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna tólf í deildinni en þetta kom fram á kynningarfundi Pepsi-deilda karla og kvenna sem fór fram í Háskólabíói í dag. Nýliðum Víkings og Þór Akureyri er spáð falli hjá körlunum en Grindavík og Þróttur munu falla hjá konunum. Íslenski boltinn 28. apríl 2011 16:30
Hrefna Huld farin í Mosfellsbæinn Markadrottningin Hrefna Huld Jóhannesdóttir skrifaði í gær undir samning við Aftureldingu. Hrefna Huld verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá liðinu sem er þjálfað af John Andrews. Íslenski boltinn 17. mars 2011 10:30
KSÍ áminnti hóp dómara: Busavígsla á árshátíð fór yfir strikið Hópur knattspyrnudómara var tekinn á teppið hjá framkvæmdastjóra KSÍ í gær. Þeir voru ávíttir fyrir að ganga of langt í busavígslu sem fór úr böndunum á árshátíð félags deildardómara í Úthlíð. Íslenski boltinn 16. mars 2011 20:59
Kristín Ýr með fimmu í fyrsta leik - Fylkir vann Fjölni 13-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði fimm mörk í fyrsta mótsleik Íslands- og bikarmeistara Vals á árinu 2011. Valur vann 8-0 sigur á Þrótti sem eru nýliðar í Pepsi-deild kvenna næsta sumar. Þetta var fyrsti leikur Valsliðsins undir stjórn Gunnars Rafns Borgþórssonar. Íslenski boltinn 23. janúar 2011 12:30
Fyrirliðinn yfirgefur Val Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðsins hefur ákveðið að kveðja Val að sinni og ganga til liðs við sænska liðið Djurgården. Á vefsíðu Vals kemur fram að Katrín hyggi á framhaldsnám í læknisfræði í haust og þetta sé liður í þeim áformum. Íslenski boltinn 19. janúar 2011 10:09
Dóra María til Svíþjóðar Þó svo Dóra María Lárusdóttir hafi hafnað Rayo Vallecano á dögunum mun hún samt spila erlendis á næstu leiktíð. Hún er nefnilega búin að semja við sænska félagið Djurgarden. Fótbolti.net greinir frá þessu. Íslenski boltinn 10. janúar 2011 16:45
Dóra María hafnaði Rayo Vallecano Landsliðskonan Dóra María Lárusdóttir, sem var valinn besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna, síðasta sumar mun ekki ganga í raðir spænska liðsins Rayo Vallecano. Íslenski boltinn 5. janúar 2011 19:01