Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Nico O'Reilly var hetja Manchester City í sigrinum á Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins og hann vonast til að þetta högg fyrir topplið ensku úrvalsdeildarinnar muni hafa jákvæð áhrif fyrir City-menn í titilbaráttunni. Enski boltinn 24.3.2026 06:01
Sjötti leikmaður Arsenal missir af landsleikjum í mars Varnarmaður Arsenal, Gabriel Magalhães, hefur dregið sig úr brasilíska landsliðshópnum vegna hnémeiðsla eftir tapið gegn Manchester City í deildabikarnum. Enski boltinn 23.3.2026 19:01
„Arteta skuldar Kepa ekki neitt heldur stuðningsmönnum Arsenal“ Jamie Carragher var ekki hrifinn af þeirri ákvörðun Mikels Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, að stilla Kepa Arrizabalaga upp á milli stanganna í úrslitaleik enska deildabikarsins gegn Manchester City. Carragher segir að Arteta skuldi Kepa ekki neitt. Enski boltinn 23.3.2026 11:32
Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Það voru skoruð frábær mörk þegar fjögur lið komust áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Fótbolti 18. mars 2026 09:02
„Ég er gjörsamlega búinn á því“ Declan Rice skoraði seinna mark Arsenal í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar með 2-0 sigri á þýska liðnu Bayer Leverkusen. Fótbolti 17. mars 2026 22:29
Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Arsenal er komið áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á þýska liðinu Bayer Leverkusen á Emirates-leikvanginum í kvöld. Fótbolti 17. mars 2026 21:51
Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. Enski boltinn 15. mars 2026 09:33
Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði hinum sextán ára gamla Max Dowman í hástert eftir að strákurinn varð yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar að hann gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur gegn Everton. Enski boltinn 14. mars 2026 23:01
Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Topplið Arsenal vann dramatískan sigur á Everton er liðin mættust á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld. Lokatölur 2-0 sigur Arsenal, bæði mörk leiksins komu á lokamínútum hans. Hinn sextán ára gamli Max Dowman gulltryggði sigurinn og varð þar með yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 14. mars 2026 19:31
Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal David Moyes, stjóri Everton, sparaði ekki hrósið í garð kollega síns hjá Arsenal, Mikels Arteta, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Enski boltinn 13. mars 2026 14:30
Sjáðu þrennu þess vanmetna, Bodö-gleði, horn í síðu Arsenal og markaveislu í París Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eru hálfnuð eftir að fjórir leikir fóru fram í gær. Real Madrid, Paris Saint Germain og Bodö/Glimt eru í góðum málum eftir fyrri leikinn en Arsenal náði ekki að fagna sigri í fyrsta sinn í keppninni á þessu tímabili. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Fótbolti 12. mars 2026 08:15
Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Það er allt jafnt í einvígi Leverkusen og Arsenal, 1-1, eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Þýskalandi í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 17:16
Dagskráin í dag: Risa leikir í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar Meistaradeild Evrópu í fótbolta á sviðið á sportrásum Sýnar í dag og óhætt er að segja að stórleikir séu á dagskrá deildarinnar. Hæst ber leikur Real Madrid og Manchester City á Santiago Bernabeu. Sport 11. mars 2026 06:01
City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Manchester City og Liverpool eigast við í stórleik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Dregið var í kvöld. Enski boltinn 9. mars 2026 20:19
Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Arsenal sótti 1-2 sigur gegn C-deildarliði Mansfield í sextán liða úrslitum FA bikarsins. Heimamenn Mansfield voru hættulegir en gæðaskot Noni Madueke og Eberechi Eze tryggðu sigurinn. Enski boltinn 7. mars 2026 11:30
Robertson sá um að hefna Liverpool er komið í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta eftir 3-1 útisigur gegn Wolves í kvöld. Fótbolti 6. mars 2026 19:32
Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Arsenal er ekki bara á toppnum í ensku úrvalsdeildinni heldur tryggði félagið sér einnig toppsætið á listanum yfir það lið sem hefur tekið sér mestan tíma í öll föst leikatriði í einum leik á tímabilinu. Enski boltinn 6. mars 2026 13:45
„Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Þetta var gott gærkvöld fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann sinn leik á meðan Manchester City tapaði tveimur stigum á heimavelli. Arsenal er því komið með sjö stiga forskot á toppnum en gagnrýni á spilmennsku liðsins minnkar ekkert eftir frammistöðuna í 1-0 sigri á Brighton. Enski boltinn 5. mars 2026 12:03
Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Arsenal er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir hagstæð úrslit í leikjum gærkvöldsins en nú má horfa á mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Enski boltinn 5. mars 2026 08:17
Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Arsenal sótti gríðarmikilvægan 0-1 sigur gegn Brighton. Toppliðið tók sjö stiga forystu á Manchester City með þessum sigri, þökk sé marki Bukayo Saka. Enski boltinn 4. mars 2026 21:40
Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Baráttan um Englandsmeistaratitilinn nær brátt hámarki. Þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni berjast Arsenal og Manchester City um titilinn. Skytturnar hafa verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið og eru í leit að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í rúmlega tuttugu ár á meðan City-menn freista þess að verða meistarar í sjöunda sinn á síðustu tíu árum. Enski boltinn 4. mars 2026 09:01
Gullit er hættur að horfa á fótbolta Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit segist vera búinn að fá nóg af spilamennskunni í fótboltanum í dag og lýsti því yfir að hann muni ekki horfa lengur á fótboltaleiki. Enski boltinn 4. mars 2026 07:33
Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Fabian Hurzeler, knattspyrnustjóri Brighton, gagnrýndi það hversu langan tíma topplið Arsenal tekur í að framkvæma hornspyrnur í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal og Brighton mætast í kvöld í deildinni. Enski boltinn 4. mars 2026 07:02
„Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði frammistöðu David Raya í 2-1 sigri Arsenal á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær en markvörðurinn hans varði mikilvægt skot í uppbótartíma til að halda Arsenal í fimm stiga forystu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 2. mars 2026 10:02