Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. Viðskipti innlent 20.2.2026 07:49
Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Vegagerðin hefur lagt fram tillögu um gjaldskrá fyrir nýja Ölfusárbrú, þar sem lagt er til að stakt gjald fyrir ferð um brúna yrði 495 krónur. Miðað er við verðlag í október 2028, þegar stefnt er að því að opna brúna. Innlent 20.2.2026 06:44
Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli Framkvæmdir standa nú yfir á fullum krafti við byggingu nýs leikskóla á Selfossi en skólinn, sem er sex deilda í dag verður tólf deilda og þar með stærsti 12 deilda leikskóli landsins undir sama þaki. Fulltrúar leikskólabarnanna hjálpuðu fullorðna fólkinu við að taka fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni. Innlent 19.2.2026 20:03
Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. Menning 10. febrúar 2026 10:02
Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028. Innlent 9. febrúar 2026 19:45
Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins hefur verulegar áhyggjur af atvinnuleysi ungs fólks á Íslandi, sem er nú um 10 prósent. Hún hefur líka áhyggjur af því að á sumum leikskólum úti á landi talar enginn starfsmaður íslensku. Innlent 8. febrúar 2026 13:03
Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi. Lífið 7. febrúar 2026 13:03
Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. á Selfossi var haldinn í vikunni. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis, nýjan fimm ára þjónustusamning milli Árborgar og félagsins. Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi og öflugu samstarfi aðila. Innlent 7. febrúar 2026 10:17
Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi „Þessi stækkun mun gjörbreyta aðstæðum hjá okkur. Húsnæðisþörfin hefur lengi verið aðkallandi þar sem starfsemin hefur vaxið hratt og er orðin mjög aðþrengd. Þá er endurnýjunarþörf uppsöfnuð og vegna aldurs húsnæðisins uppfyllir skipulag og hönnun þess ekki lengur nútímakröfur um öryggi og gæði. Næstu skref eru að fara í útboð á fyrsta áfanga framkvæmda og síðan heldur þetta áfram koll af kolli,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands aðspurð um viðbrögð vegna nýrrar 5.200 fermetra viðbyggingar við húsnæði stofnunarinnar á Selfossi. Innlent 6. febrúar 2026 10:06
Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Einn er enn í haldi Lögreglunnar á Suðurlandi vegna slagsmála á Selfossi í gær. Lögreglan á Suðurlandi mun ekki fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Innlent 4. febrúar 2026 11:55
Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Kylfu var beitt í slagsmálum sem skárust upp í íbúð að Álftarima á Selfossi í dag. Einn maður var handtekinn og annar liggur á spítala. Samkvæmt heimildum fréttastofu urðu slagsmálin milli tveggja gestkomandi manna. Innlent 3. febrúar 2026 19:28
Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Hið minnsta einn var handtekinn í aðgerðum lögreglu og sérsveitar í fjölbýlishúsi á Selfossi um klukkan 15 í dag. Tilkynnt var um slagsmál þar sem vopni var mögulega beitt og er málið rannsakað með líkamsárás. Innlent 3. febrúar 2026 15:25
Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Fyrrverandi landgræðslustjóri gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hugsa lítið sem ekkert um fæðuöryggi þjóðarinnar eins og þessum stríðstímum, sem eru núna í heiminum. Innlent 2. febrúar 2026 20:04
Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar. Lífið 1. febrúar 2026 10:31
Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Mikill áhugi er hjá foreldrum, sem eiga börn á Hjallastefnu leikskóla á Selfossi að næsti grunnskóli, sem verður byggður í bæjarfélaginu verði Hjallastefnuskóli. Undirskriftarlisti þess efnis hefur verið afhentur bæjaryfirvöldum í Árborg. Innlent 31. janúar 2026 14:04
Jói Fel málar með puttunum Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum. Lífið 30. janúar 2026 21:05
Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Fjöldi starfsmanna í Ráðhúsi Árborgar á Selfossi er orðinn það mikill að flytja þarf 10 starfsmenn í annað húsnæði rétt hjá ráðhúsinu því þeir komast ekki fyrir í núverandi húsnæði. Innlent 30. janúar 2026 10:03
28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Gleðin var við völd hjá embætti Ríkislögreglustjóra yfir leiknum, enda er ríkislögreglustjóri sjálfur mikill handboltasérfræðingur. Hann segir oft stutt í að hann missi kúlið yfir skjánum, en reynir að halda andliti fyrir framan starfsfólk sitt. Innlent 28. janúar 2026 21:13
Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Ný þýsk heimildarmynd sýnir frá daglegu lífi fanga og fangavarða á Litla-Hrauni. Meðal fanga sem birtast í myndinni eru dæmdir morðingjar og fangar sem hlotið hafa þunga dóma fyrir gróf ofbeldisbrot. Innlent 27. janúar 2026 20:13
Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Þrátt fyrir að Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Rangárþingi ytra sé orðinn 92 ára gamall þá er hann enn að ganga með fram vegum og tína upp einnota umbúðir, dósir og flöskur. Hann hefur safnað tæplega 30 milljónum á síðustu 20 árum og gefið meira og minna íþróttafélaginu í sveitinni hans allan peninginn. Innlent 26. janúar 2026 20:05
Allir hafi áhuga á Íslandi Hugvit og tækni er orðin stór hluti af starfsemi Íslandsstofu þar sem vaxtatækifærin felast meðal annars í lífvísindum, hugbúnaðarþróun og matvæla- og sjávartækni. Markhópar eru erlendir fjárfestar, erlendir sérfræðingar og erlend fyrirtæki í leit að lausnum. Innlent 24. janúar 2026 13:03
Tvær akgreinar í hvora átt frá Rauðavatni að Markarfljóti Á ársþingi Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var 23 – 24 október 2025 komu saman kjörnir fulltrúar allra sveitarfélaga á Suðurlandi. Ársþingið er vettvangur þar sem sameiginleg sýn sveitarfélaga er lögð fram ásamt áherslumálum þar sem sameiginlegur flötur hefur náðst. Skoðun 15. janúar 2026 10:32
Sérsveitaraðgerð á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra þegar tveir voru handteknir á Selfossi í kvöld. Innlent 11. janúar 2026 18:57
„Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss „Þetta var bara klikkað. Við vorum á leiðinni í bæinn en sáum þessi norðurljós rétt fyrir utan Selfoss, þannig við stoppuðum og fylgdumst með þessu,“ segir Sif Baldursdóttir, sem fangaði sjónarspilið á myndskeiði. Innlent 10. janúar 2026 21:55