Fyrsti bloggarinn til að gera fatalínu á Íslandi
Vinsælir tískubloggarar erlendis hafa hannað fatalínur fyrir þekkt fyrirtæki og í dag var fyrsta slíka íslenska samstarfið kynnt. Elísabet Gunnarsdóttir, viðskiptafræðingur, byrjaði að blogga árið 2009 og hafa skrifin fært henni tækifæri sem hana óraði ekki fyrir, nú síðast eigin fatalínu í Gallerí 17. Ísland í dag hitti Elísabetu í vikunni og afraksturinn má sjá í spilaranum að ofan.