Ætlar að gefa pabba Prins póló frá Donald Tusk
Kristrún Frostadóttir var í skýjunum þegar Donald Tusk forsætisráðherra Póllands færði henni Prins Póló súkkulaðistykki að gjöf. Kristrún minntist stunda í æsku með pólska súkkulaðinu sem er í uppáhaldi hjá pabba hennar.