Tjónið hleypur á hundrað milljónum króna

Eldur kom upp í timburkurlara Sorpu á Álfsnesi um hádegisbil í dag en tjónið hleypur á hundrað milljónum króna. Eldsupptök eru ókunn og að sögn Gunnars Dofra Ólafssonar, sviðsstjóra hjá Sorpu, eru þau viss ráðgáta enda varð eldsins fyrst vart um hálftíma eftir að slökkt hafði verið á umræddri vinnuvél. Hann hrósar slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í hástert fyrir snör handtök á vettvangi brunans enda hefði eldurinn hæglega getað læst sig í nærliggjandi timbur á athafnasvæði Sorpu.

29
00:33

Vinsælt í flokknum Fréttir