Ísland í dag - „Ég vissi ekki að þetta væri til“

Þorsteinn Elfar er sjö ára bráðsnjall og lífsglaður drengur. Hann lýkur viðhaldsmeðferð í desember eftir langa og hetjulega baráttu við hvítblæði. Hann kýs þó ekki að líta á sig sem hetju heldur skilgreinir hann sig sem illmenni sem notar brosið til að drepa krabbameinið. Við ræðum bataferlið við hann og móður hans. Afmælisdaginn á Þorláksmessu á skurðdeild, kjötbollur eftir svæfingu í öndunarvél og vöfflur með kokteilsósu settu svip sinn á vegferðina.

1422
18:33

Vinsælt í flokknum Ísland í dag