Snorri Steinn sáttur með sigurinn gegn Ítalíu
„Ég er bara mjög ánægður með liðið. Mér fannst þetta frábær leikur og góður sigur af okkar hálfu“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir mjög öruggan 39-26 sigur gegn Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM. Hann byrjar nú að undirbúa liðið fyrir næsta leik gegn Póllandi en það verður eilítið erfitt.