Eldur í kjallaraíbúð í Kópavogi
Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 16 vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi í Kópavogi við Fossvog. Upp kom eldur í kjallaraíbúð, Furugrund 42 en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna eldsins.