Baldvin á samningi hjá Nike
Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Nike. Samningurinn gerir það að verkum að Baldvin getur haft hlaupin að atvinnu en fyrir ekki svo löngu síðan, eftir streð, íhugaði hann að draga saman seglin.