Öll neituðu sök

Öll sex sem eru ákærð fyrir að hafa beitt mann stórfelldu ofbeldi, frelsissvipt og fjárkúgað í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. Þingfesting var í Reykholtsmálinu í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Aðeins tveir hinna ákærðu voru á staðnum en aðrir sakborningar notuðu fjarfundarbúnað og þar af einn sem var á fangelsinu á Hólmsheiði.

13
00:56

Vinsælt í flokknum Fréttir