Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 10:01 Jake Paul ræddi komandi bardaga og að venju vantaði ekki yfirlýsingarnar. Jake Paul/Youtube Boxbardagi Jake Paul á aðfangadag gæti verið sá síðasti á ferlinum ef marka má orð hans sjálfs. Paul lofar að „leggja hanskana á hilluna“ ef hann tapar fyrir Cedric Doumbe sem er fyrrverandi heimsmeistari í sparkboxi.
Paul mun mæta Doumbe í viðurkenndum tíu lotu bardaga í léttþungavigt 24. desember í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta verður fyrsti bardagi hins 29 ára gamla Pauls síðan hann kjálkabrotnaði þegar hann var rotaður af Anthony Joshua í desember í fyrra.„Ef hann vinnur legg ég hanskana á hilluna og læt þetta gott heita,“ sagði Paul í myndbandi sem birtist á YouTube-rás hans. „En ef hann tapar, þá verður maðurinn sem kallar sig „þann besta“ barinn í klessu af YouTube-stjörnu með títankjálka. Svo, Cedric Doumbe – ég, Jake Joseph Paul, mun rota þig, niðurlægja þig og sigra þig á aðfangadag. Þessi bardagi fer ekki allar loturnar og einhver verður svæfður í Mið-Austurlöndum, og það er ekki jólasveinninn,“ sagði Paul. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=ZIZwZ0hlG_g">watch on YouTube</a> Doumbe, sem er frá Frakklandi, er fyrrverandi heimsmeistari í sparkboxi og með 6-1 feril sem atvinnumaður í blönduðum bardagaíþróttum. Hann hefur aðeins einu sinni keppt í hnefaleikum sem atvinnumaður og fagnaði þá sigri árið 2015. Hinn 34 ára gamli Doumbe hefur ekki keppt í neinni bardagaíþrótt síðan í maí 2024.Paul viðurkenndi að hann hefði íhugað að hætta á síðasta ári í kjölfar kjálkameiðslanna, sem kröfðust nokkurra skurðaðgerða í desember og febrúar.„Satt best að segja, eftir Joshua hugsaði hluti af mér um að hætta og keppa aldrei aftur í hnefaleikum,“ sagði Paul. „Hann braut á mér kjálkann. Ég er með tvær títanplötur í munninum. Ég gat ekki borðað í margar vikur. Ég gat ekki einu sinni talað eða brosað að bankayfirlitunum mínum. Ég lá bara í rúminu kvöld eftir kvöld og spurði sjálfan mig: „Vil ég enn þá gera þetta?“ Já, auðvitað vil ég enn þá gera þetta. Ég er enginn aumingi.“
Box Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Sjá meira