Fótbolti

Arnar kynnti landsliðshópinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn Vísir/Getty

Arnar Gunnlaugsson opinberaði landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki í Þjóðadeild karla í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Vísir var í beinni frá fundinum og fékk Arnar svo í viðtal í beinni útsendingu beint í kjölfarið. Upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.

Kristian Nökkvi Hlynsson snýr aftur í hópinn eftir meiðsli og Daníel Leó Grétarsson er einnig í hópnum, eftir að hafa verið frá keppni með liði sínu AGF af persónulegum ástæðum. Arnar sagði Daníel koma til með að meta það sjálfur hvort hann yrði með í báðum leikjum, öðrum þeirra eða hvorugum.

Fram undan eru tveir síðustu leikir Íslands í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Ísland sækir fyrst Búlgaríu heim og fær svo Lúxemborg í heimsókn á Laugardalsvöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×