Skoðun

Hita­veitan er ekki af­láts­bréf: For­feðurnir voru braut­ryðj­endur, af hverju hikum við?

Sveinn Atli Gunnarsson skrifar

​Aðalsteinn Júlíus Magnússon, fjármálahagfræðingur, kynnir áhugaverða nálgun á hagfræði og loftslagsmálum í grein á Vísi. Röksemdarfærslan er í grófum dráttum þessi: Vegna þess að breski efnaframleiðslurisinn INEOS losar meira en öll íslenska þjóðin til samans, og af því að stjórnarformaður félagsins hefur keypt jarðir og veiðiréttindi í Vopnafirði, þá sé ómarkvisst og ósanngjarnt að íslenskir bíleigendur greiði kolefnisgjald af jarðefnaeldsneyti. Já, ég veit, þetta er ruglingslegt.

​Röksemdafærsluna má kalla heillandi ef maður er áhugamaður um skapandi skrif. Með sömu aðferðafræði mætti líka spyrja sig hvers vegna lögreglan sé að amast við hraðakstri á Reykjanesbrautinni á meðan ökuþórar í Formúlu 1 aka miklu hraðar. Af hverju að sekta mig fyrir að aka á 110 km hraða þegar Max Verstappen þeysist um á 300? Hvers vegna er ég gerður að blóraböggli?

Vandinn við þessi rök er einfaldur: Það að einhver annar geri meira af einhverju breytir ekki ábyrgð okkar sjálfra.

​Heimsmeistarar í losun, þrátt fyrir hitaveituna

Greinarhöfundur telur okkur óhætt að slá slöku við af því að við nýtum jarðhita og vatnsafl. En hér sleppir hann mikilvægustu staðreyndinni: Þrátt fyrir að eiga einstakt orkukerfi þar sem nær öll raforka og húshitun er endurnýjanleg, erum við Íslendingar enn á meðal þeirra þjóða sem losa hvað mest af gróðurhúsalofttegundum á hvern íbúa. ​Þegar horft er á losun á mann trónum viðí efstu sætum meðal ríkja heims. Hvernig máþað vera, ef við erum svona græn? Jú, af því að við brennum gríðarlegu magni af jarðefnaeldsneyti í samgöngum, fiskveiðum og flugi, auk þess sem losun frá stóriðnaði, landnotkun og landbúnaði er mikil.

​Að nota hitaveituna sem afsökun fyrir því að draga ekki úr brennslu jarðefnaeldsneytis er því eins og að stæra sig af því að vera í hreinum jakkafötum, en líta aldrei niður á drullugu stígvélin. Kolefnisgjöld eru enda ekki lögð á heita vatnið eða rafmagnið. Þau eru lögð á innflutt jarðefnaeldsneyti (ótrúlegt nokk). Sá sem notar endurnýjanlegu orkuna okkar til að knýja bílinn sinn borgar ekki krónu í kolefnisgjald. Hvatinn er einmitt sá: að beina fólki að þeim grænu lausnum sem við höfum þegar yfir að ráða.

Þetta er ekki séríslensk uppfinning til að refsa þjóðinni fyrir að vera dugleg í hitaveitumálum. Þetta er grundvallarhugmynd í umhverfishagfræði.

​Afvegaleiðing ársins: Laxveiðar í Vopnafirði

Eignarhald erlendra auðmanna á íslenskum jörðum og veiðiréttindum er fullgilt og mikilvægt umræðuefni, sem gjarnan má ræða á málefnalegan hátt. En að tvinna nágrannadeilur um girðingar í Þistilfirði saman við losunarbókhald Íslands er óvenju skapandi tilraun til að dreifa athyglinni frá stærsta verkefni mannkyns nú um stundir.

​Höfundur virðist auk þess ganga út frá því að starfssemi INEOS starfi í stjórnlausu mengunartómarúmi. Svo er alls ekki. Evrópskur stóriðnaður fellur undir losunarkvótakerfi ESB (ETS), sem er eitt strangasta mengunareftirlit heims. Þar þurfa fyrirtæki Ratcliffe að fara að reglum um losun og greiða fyrir hvert einasta tonn sem þau blása út. Ratcliffe fær engan afslátt í Evrópu þótt hann eigi jörð á Íslandi, rétt eins og bíleigandi á Íslandi fær ekki afslátt af mengun sinni af því að Bretar framleiða plast.

​Vatnsgufan dregin upp úr hattinum

Það er líka sérstakt að sjá fjármálahagfræðinginn grípa til gamalkunns bragðs úr efasemdabókmenntum og kvarta yfir því að vatnsgufu sé sleppt úr losunartölum. Vatnsgufa er vissulega gróðurhúsalofttegund, en hún stjórnast af hita andrúmsloftsins og rignir niður á nokkrum dögum. Hún safnast ekki upp í aldaraðir eins og koltvísýringur sem dælt er upp úr jörðu. Að nota eðlilega hringrás vatnsins til að draga dul á áhrif jarðefnaeldsneytis stenst enga vísindalega skoðun. Svona rökbragfræði hef ég áður aðeins séð hjá örgustu afneiturum loftslagsvísinda.

Kolefni er ekki bara kolefni

Þess má geta að í umræðunni gleymist oft grundvallarmunurinn á náttúrulegri kolefnishringrás og brennslu jarðefnaeldsneytis. Í lífríkinu er í gangi stöðug hringrás: jurtir og lífverur binda kolefni og losa það aftur við rotnun eða öndun, og náttúrulegt innstreymi kemur til dæmis frá eldfjöllum. Þetta er hringrás sem jörðin er vön að jafna. En kolefnið í jarðefnaeldsneyti er allt annars eðlis. Það er kolefni sem jarðfræðileg ferli höfðu læst djúpt í iðrum jarðar fyrir hundruðum milljóna ára. Þegar við dælum því upp og brennum því, erum við ekki að taka þátt í eðlilegri hringrás heldur að dæla hreinni viðbót út í lofthjúpinn. Kolefni er því ekki bara kolefni, rétt eins og það að bæta stöðugt vatni í fullt baðkar er ekki það sama og að láta vatnið renna í hring. Þessi mikilvægi munur gleymist iðulega hjá þeim sem afgreiða málið sem léttvægt með því að „gróður þurfi nú líka koltvísýring til að dafna“.

​Hver á að borga reikninginn?

Það að 400 þúsund manna samfélag losi minna í heildartölum en alþjóðleg risasamsteypa er ekki röksemd gegn loftslagsaðgerðum, það er einfaldlega einfalt skólabókardæmi. Ef öll smærri samfélög og svæði heims segðu sig frá ábyrgð vegna þess að einhver annar er stærri, væri stór hluti heimslosunarinnar látin óáreittur; um 30 prósent af losun heimsins kemur frá þjóðum sem hver um sig losar lítið í heildarsamhenginu.

​En stóra hagfræðispurningin sem brennur á er þessi: Ef við afnemum mengunarskattana, hver á þá að borga reikninginn?

​Ísland er bundið af alþjóðlegum samningum. Ef við drögum ekki úr losun jarðefnaeldsneytis þarf ríkissjóður að kaupa losunarheimildir erlendis frá fyrir milljarða króna. Munurinn er sá að ef við leggjum niður mengunargjöldin lendir sá reikningur á öllum almenningi í gegnum almenna skatta eða niðurskurð í velferðarkerfinu. Mengunarbótareglan snýst einfaldlega um það að sá sem raunverulega kaupir mengunina og brennir olíunni greiði fyrir hana en ekki skattgreiðendur almennt.

​Eigum við að lifa á fornri frægð eða sýna sömu framsýni?

Hitaveituvæðingin og virkjun vatnsaflsins á síðustu öld urðu ekki til af sjálfu sér. Þau kröfðust gríðarlegs pólitísks þors, fjárfestinga og skýrrar stefnu í miðjum olíukreppum. Þar voru líka efasemdarmenn sem töldu framkvæmdirnar of dýrar, tæknilega ómögulegar og áhættusamar. En forfeður okkar létu ekki deigan síga, tóku af skarið og urðu brautryðjendur á heimsvísu. Sú framsýni tryggði okkur ómæld lífsgæði, orkuöryggi og gríðarlegan efnahagslegan sparnað áratugum saman.

​En af hverju ættum við skyndilega að hætta að vera frumkvöðlar í dag? Erum við orðin duglausir heiglar sem ekkert geta lengur?

​Í stað þess að líta á orkuskiptin sem óþægilega skattheimtu eða nota forna frægð sem afsökun fyrir því að draga lappirnar, ættum við að spyrja: Ef við gátum leyst húshitunina og raforkuna, af hverju sýnum við ekki sömu framsýni og þor til að taka þátt í að leysa loftslagsvandann?

​Með því að klára orkuskiptin erum við ekki að gera umheiminum greiða eða friða samvisku erlendra iðnjöfra, við erum að losa okkur undan oki innflutts jarðefnaeldsneytis, auka efnahagslegt sjálfstæði landsins og byggja upp tækniþekkingu sem nýtist inn í framtíðina.

​Ef við ætlum að heiðra þá sem byggðu upp græna Ísland síðustu aldar gerum við það ekki með því að verja bensíndæluna með kjafti og klóm, heldur með því að sýna sömu framsýni og þá var gert og klára verkið.

Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um málefni tengd ESB .




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×