Bíó og sjónvarp

Orð­rómur um ástir breskra Traitors-stjarna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kenny og Maya saman í Skotlandi við tökur á Celebrity Traitors.
Kenny og Maya saman í Skotlandi við tökur á Celebrity Traitors.

Þrálátur orðrómur er nú uppi um að bresku stjörnurnar Maya Jama og Kenny Oghenovo séu farin að stinga saman nefjum. Þau tóku bæði þátt í nýjustu seríunni af Celebrity Traitors sem nýlega var sýnd í breska ríkissjónvarpinu.

Breska götublaðið Metro greinir frá því að Kenny sem er samfélagsmiðlastjarna hafi eytt tveimur nóttum í íbúð sjónvarpskonunnar Mayu í London. Hann hafi svo fengið boð í Hrekkjavökuteiti hjá henni í íbúðinni sem er í norðurhluta London. Maya sem þekktust er hér á landi fyrir að stýra raunveruleikaþáttunum Love Island heldur teitið ár hvert og býður nokkrum stærstu stjörnum Bretlands.

Kenny og Maya hafa birt töluvert af efni saman á samfélagsmiðlum tengt þáttunum.

Samkvæmt umfjöllun miðilsins þekktust þau Kenny og Maya ekki áður en þau eyddu mörgum dögum saman í skoskum kastala við tökur á þáttunum sem hafa öðlast heimsfrægð á undanförnum árum. Í þáttunum koma keppendur saman í skoskum kastala og eru tveir til þrír útnefndir svikarar. Svikarar geta myrt aðra keppendur í skjóli nætur sem þurfa að taka á hinum stóra sínum við hringborð hvert einasta kvöld þar sem einn keppandi er úthýst úr kastalanum með atkvæðagreiðslu.

Kenny klæddi sig í appelsínugulum fangabúning í Hrekkjavökuteitinu á meðan Maya Jama brá sér í búning breska ólympíukeppandans Mo Farrah. Samkvæmt breska blaðinu hafa þó nokkrar myndir birst af þeim Kenny og Maya Jama sem virðast hafa verið teknar í sama rýminu, líklega íbúðinni hennar. Það hafi ekki verið til þess að róa æsta aðdáendur sem vonast til þess að eitthvað sé til í orðrómi um ástir stjarnanna.

Alvöru metnaður í búningagerð hjá Maya Jama.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.