Íslenski boltinn

Marc McAusland tekur við Njarð­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Marc McAusland er nýr þjálfari Njarðvíkur.
Marc McAusland er nýr þjálfari Njarðvíkur. Njarðvík

Skotinn Marc McAusland er nýr þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í fótbolta. Hann tekur við af Davíð Smára Lamude.

McAusland hefur verið hér á landi um nokkurra ára skeið og þekkir vel til á Reykjanesi. Hann samdi við Keflavík sumarið 2016 og lék þar í þrjú sumur áður en hann varð leikmaður Grindavíkur í eitt sumar 2019 og var svo leikmaður Njarðvíkinga 2020 til 2024.

Hann lék með ÍR sumrin 2024 og 2025 en var í sumar spilandi þjálfari Víðis í Garði sem er í 3. deild.

Víðir vann þriðju deildina undir stjórn Skotans sem var bæði fyrirliði og þjálfari liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×