Íslenski boltinn

Gylfi tekur við Víkingi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gylfi Tryggvason er nýr þjálfari kvennaliðs Víkings.
Gylfi Tryggvason er nýr þjálfari kvennaliðs Víkings. Víkingur

Gylfi Tryggvason er nýr þjálfari kvennaliðs Víkings í fótbolta. Hann tekur skref niður um deild til að taka við nýföllnu Víkingsliði.

Gylfi skrifaði undir tveggja ára samning við Víking en félagið greindi frá ráðningunni í dag. Hann tekur við af Einari Guðnasyni sem var sagt upp í Víkinni í miðri viku í kjölfar þess að liðið féll úr Bestu deild kvenna í haust.

Gylfi kemur frá Grindavík/Njarðvík sem hann þjálfaði í tvö ár. Á fyrra árinu kom hann liðinu upp í Bestu deildina og það hélt sæti sínu örugglega í deild þeirra bestu í ár. Grindavík/Njarðvík fór jafnframt í bikarúrslit í ár en tapaði þar fyrir Þrótti.

„Gylfi hefur sýnt að hann býr yfir hæfni til að byggja upp lið, þróa unga leikmenn og skapa sterka liðsheild,“ segir í yfirlýsingu Víkings þar sem segir jafnframt:

„Ráðning Gylfa markar mikilvægt skref í þeirri vegferð og ríkir mikil ánægja innan knattspyrnudeildarinnar með að hafa tryggt krafta hans til næstu tveggja ára.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×