Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. október 2026 07:51 Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Arnar Heilsugæslur víða um landið standa nú í stórræðum við að bólusetja forgangshópa vegna inflúensu. Börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára eru hinsvegar ekki sprautuð í ár heldur boðið upp á nefúða. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir um glænýja tækni að ræða, sem virki eins vel og stunga.
Rætt var við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Bítinu í morgun. Í þessari viku og í næstu standa yfir bólusetningar á forgangshópum, börnum, sextíu ára og eldri og fólki með undirliggjandi sjúkdóma. Ragnheiður segir að hægt sé að panta tíma í gegnum Heilsuveru og svo muni bólusetningar opna fyrir almenning þann 9. nóvember. Opið hús fyrir tveggja til fjögurra ára „Svo er mjög spennandi og gaman að segja frá því, af því að það vill enginn fá inflúensu og allra síst viljum við að litlu börnin fái inflúensu og það er leiðinlegt að þurfa að stinga litlu börnin, að nú er kominn nefúði sem virkar jafnvel og stungan og það er kjörið að nota þetta efni fyrir börnin. Þetta er bara smá dropi í nefið sem er gefinn í sitthvora nösina. Við ætlum að gefa börnum tveggja til fjögurra ára þetta, börnum sem eru fædd '22, '23 og fram til loka október '24.“ Ragnheiður segir rennt blint í sjóinn með hvernig efninu verði komið út, enda í fyrsta sinn sem sé boðið upp á nefúða. „Við ætlum að hafa opið hús í næstu viku á milli 15:00 til 17:00 á öllum okkar heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og víða um land líka. Við hugsuðum þetta þannig að fólk gæti komið við á leiðinni heim úr leikskólanum.“ Ragnheiður segir viðbrögðin við því þegar dropa er veitt í nösina ekki mikil. Um svo lítið magn sé að ræða, bara smá sprey. Hún segir að ekki sé hægt að bjóða yngri krökkum, sex mánaða til tveggja ára upp á þessa leið, þann aldurshóp þurfi að bólusetja með hefðbundnum hætti. Auk þess sýni rannsóknir fram á að nefspreyið virki ekki eins vel á fullorðna. Það henti auk þess ekki fyrir ónæmisbæld börn og ekki börnum með eggjaofnæmi. „Við ætlum að bjóða upp á kósý stemningu. Það má endilega taka bangsann með og hann má fá sprey líka, þó það sé ekki alveg það sama. Bangsinn má ekki veikjast heldur. Þetta kostar ekki neitt, er allt frítt, það þarf bara að gefa upp kennitölu og við skráum þetta.“ Ragnheiður segir í Bítinu að ekki sé hægt að sjá fyrir hversu skæð inflúensan verði í ár. Eina leiðin til að fylgjast með því sé að fylgjast með innlögnum á spítala. Íslendingar séu almennt duglegir að nýta sér bóluefni gegn inflúensu, um níutíu þúsund skammtar séu mættir til landsins.
Heilsa Bólusetningar Bítið Börn og uppeldi Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Sjá meira