Handbolti

Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyja­manna síðan í septem­ber

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magnús Dagur Jónatansson var hetja Eyjaliðsins en hann skoraði sigurmarkið í blálokin.
Magnús Dagur Jónatansson var hetja Eyjaliðsins en hann skoraði sigurmarkið í blálokin. ÍBV handbolti

Eyjamenn sóttu tvö stig í Safamýrina í kvöld þegar þeir unnu Víkinga í lokaleik áttundu umferðar Olís deildar karla í handbolta.

ÍBV vann leikinn á endanum með aðeins eins marks mun, 30-29, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 14-13. Magnús Dagur Jónatansson var hetja Eyjaliðsins en hann skoraði sigurmarkið í blálokin og var markahæstur með átta mörk.

ÍBV var 27-24 yfir en Víkingar náðu að jafna í 27-27 og lokamínúturnar urðu æsispennandi.

Kristófer Ísak Bárðarson skoraði sex mörk fyrir ÍBV og þeir Atli Steinn Arnarson, Haukur Leó Magnússon og Andri Magnússon voru allir með þrjú mörk.

Ásgeir Snær Vignisson skoraði mest fyrir Víkinga eða sex mörk en þeir Kristján Helgi Tómasson og Ísak Óli Eggertsson komu næstir með fimm mörk. Ísak átti líka átta stoðsendingar og kom því með beinum hætti að þrettán Víkingsmörkum í kvöld.

Þetta var langþráður útisigur fyrir Eyjamenn en þeir höfðu unnið sinn eina deildarsigur á Fram 17. september síðastliðinn fyrir næstum því einum og hálfum mánuði.

ÍBV er áfram í sjötta sæti en nú með átta stig og þremur stigum á eftir FH sem situr í fimmta sætinu.

Víkingar eru í tíunda sæti með tvo sigra í fyrstu átta leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×