Íslenski boltinn

Víkingar láta Einar Guðna fara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Einar Guðnason var þjálfari kvennaliðs Víkings í eitt og hálft tímabil en lætur nú af störfum.
Einar Guðnason var þjálfari kvennaliðs Víkings í eitt og hálft tímabil en lætur nú af störfum. Vísir/Hulda Margrét

Einar Guðnason verður ekki áfram þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi en félagið hefur ákeðið að segja honum upp.

Einar Guðnason var kallaður á fund í dag þar sem niðurstaðan var að hann yrði ekki áfram þjálfari liðsins.

Vísir fékk þetta staðfest hjá forsvarsmönnum félagsins í kvöld sem og það að leit standi yfir að næsta þjálfara liðsins. 

Víkingskonur féllu úr Bestu deildinni eftir tap á móti Þór/KA í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni um áframhaldandi veru í deildinni.

Einar hafði tekið við Víkingskonum í erfiðri stöðu og fallsæti í júní 2025 og kom liðinu upp í efri hlutann.

Einar skrifaði undir þriggja ára samning í fyrrasumar samkvæmt frétt á miðlum Víkinga en lætur nú af störfum.

Nýr þjálfari fær það verkefni að koma Víkingskonum aftur upp í Bestu deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×