„Óskiljanlegt“ að nær alltaf sé sjálfkjörið í tilnefningarnefndir félaga
Hluthafar skráðra félaga ættu að beita sér mun meira við val á fulltrúum í tilnefningarnefndir, að mati stjórnarformanns Íslandsbanka, sem þykir „óskiljanlegt“ af hverju sé nær undantekningarlaust sjálfkjörið í þær. Framkvæmdastjóri Birtu segir að innkoma tilnefningarnefnda hafi „stórbætt“ fyrirkomulagið um hverjir eigi að taka sæti í stjórnum skráðra félaga.
Tengdar fréttir
Kallar eftir umræðu um hvort stjórnarformenn verði kosnir beint af hluthöfum
Stjórnarformaður eins stærsta lífeyrissjóðs landsins telur rétt að taka umræðu um hvort það eigi að hverfa frá því fyrirkomulagi að stjórnarmenn skráðra félaga ákveði það sjálfur hver gegnir formennsku og þess í stað að fara þá leið að kjósa um stjórnarformann í beinni kosningu á aðalfundum. Þá furðar hann sig á sjónarmiðum sem hafa komið nýlega frá Þorsteini Pálssyni, sem gagnrýndi greinaskrif forstjóra Icelandair og Heima, og segir þau fela í sér ákall um að „afnema mannréttindi stjórnenda“ skráðra félaga til að tjá sig um samfélagsmál.
„Aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum og beinni íhlutun lífeyrissjóða“
Frambjóðandi til stjórnar úr röðum stærstu einkafjárfesta Festar fór hörðum orðum um starfshætti tveggja stórra lífeyrissjóða, sem höfðu lýst yfir óánægju sinni með tilnefningu hans til stjórnar, í ræðu á aðalfundi og sagðist aldrei hafa upplifað önnur eins vinnubrögð og beina íhlutun af hálfu stofnanafjárfesta. Sakaði Þórður Már Jóhannesson, sem dró framboð sitt til baka á fundinum, sjóðina meðal annars um nýta sér glufu í lögum um kynjakvóta sem tæki í „valdabaráttu“ sinni við stjórnarkjörið.
„Feigðarflan“ að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum
Það er feigðarflan að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum, sagði reyndur stjórnarmaður. Ráðgjafi á sviði stjórnarhátta velti því upp hvort það væri óvinnandi fyrir tilnefningarnefndir að stilla upp góðri stjórn. Yfirlögfræðingur lífeyrissjóðs hugnast ekki að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum.
Gildi sér engin rök fyrir nýjum reglum um tilnefningarnefndir
Gildi lífeyrissjóður hallast að því að nýleg lagaákvæði, sem lögfesta setu stjórnarmanns í tilnefningarnefndum banka og fela nefndunum það hlutverk að leggja mat á störf framkvæmdastjóra, þarfnist endurskoðunar. Enginn haldgóður rökstuðningur sé fyrir þessum breytingum og reynslan sýni að almennt sé óheppilegt að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum.
„Stjórnarmenn hafa ekkert að gera í tilnefningarnefndum“
Stjórnarmenn sem sitja í tilnefningarnefnd hjá sama fyrirtæki hafa augljóst forskot á aðra frambjóðendur til stjórnar og beina hagsmuni af tiltekinni niðurstöðu sem fer ekki endilega saman við hagsmuni fyrirtækisins, hluthafa þess eða annarra haghafa. Þetta segir Helga Hlín Hákonardóttir, meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Strategíu, sem hefur um árabil veitt fagfjárfestum, stofnanafjárfestum og hinu opinbera ráðgjöf um stjórnarhætti og stefnumótun.