Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifa 27. október 2026 18:18 Í borgarstjórn eru teknir til starfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem enginn virðist vita hvað vakir fyrir og varla þeir sjálfir. Helstu tillögur þeirra snúa að uppsögnum og niðurskurði og umleitunum á því hvort einkafyrirtæki geti sinnt verkefnum borgarinnar eða jafnvel eignast þau. Þráspurðir um fyrirætlanir sínar, aðgerðir og markmið, geta þeir engu svarað nema að þörf sé á niðurskurði því reksturinn sé í rúst. Um það hafa þessir flokkar reynt að telja borgarbúum trú um lengi en þegar nánar er að gáð, stenst sú fullyrðing enga skoðun. Í fjölmiðlum hafa þessir sömu fulltrúar með ummælum sínum litað líf starfsfólks og borgarbúa óvissu og óöryggi og sýnt störfum fólks í opinberri þjónustu skeytingarleysi. Í tillögum þeirra birtist óbærilegt þekkingarleysi á vinnunni sem það innir af hendi og hver afleidd áhrif verkefnanna sem það sinnir hafa. Þessi vanþekking leiðir af sér óvönduð vinnubrögð sem valda beinum skaða. Sem dæmi hafa þeir sagt upp starfsfólki en áttað sig á því að það þarf að ráða það aftur vegna þess að það er ómissandi. Yfirsjón og mistök af þessu tagi segir okkur að þessi stjórnarmeirihluti vandar ekki til verka og að verkstjórnin skortir alla pólitíska forystu. Í dag urðum við aftur vitni að þessum óvönduðu vinnubrögðum þegar forsvarsfólk Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar reiddi á ný til höggs en í þetta sinn á leynifundi, lokuðum fundi borgarstjórnar, með fordæmalausu fundarboði. Almennt eru borgarstjórnarfundir opnir almenningi og þarf að rökstyðja það sérstaklega eigi fundurinn að vera lokaður. Slíkt var ekki gert fyrir fund. Á fundinum var lögð fram tillaga borgarstjóra um að ráðast í flatan niðurskurð og fela sviðstjórum að útfæra hann með uppsögnum starfsfólks. Það fær mann til að halda að skræfilshátturinn sé alger og að borgarfulltrúar þessara flokka hræðist borgarbúa enda kannski með réttu, því ekki hafa þeir getað sýnt fram á að allur þessi niðurskurður þjóni einhverjum tilgangi eða sé til þess að auka þá samfélagslegu þjónustu sem borgin veitir. Í Reykjavík er nú skorið niður til þess eins að skera niður og haka við eitthvert markmið á verkefnalista. Með þessu er verið að setja á svið leikrit og blekkja borgarbúa. Borgarbúum er talið að hér séu komnir flokkar sem ætla heldur betur að taka til í rekstrinum og auka þjónustu við þá en í sömu andrá munda þeir niðurskurðarhnífinn. Og þetta er ekki búið enn. Þrátt fyrir fyrirheit um að þetta sé síðasta niðurskurðarhrinan þá hafa þessir flokkar sammælst um að fara í skipulagsbreytingar og rýna aðra þætti í starfsemi Reykjavíkur. Það mun líklega hafa í för með sér frekari niðurskurð með tilheyrandi uppsögnum. Það sem eftir stendur er að öllum verkefnum fylgir ábyrgð. Að hlúa að og vera í forsvari fyrir samfélag krefst auðmýktar og skilnings og það þarf að afla sér þekkingar á því, þar sem hana brestur. Við kjósum okkur forystufólk í Reykjavík til þess að bera þessa pólitísku ábyrgð. Það er hins vegar orðið ljóst að nú hafa flokkar komist til valda sem nenna því ekki. Þeir hafa snúið öllu á hvolf í umræðunni og þykjast boða stórsókn í hinum ýmsu málum á meðan þeir skera niður að illa athuguðu máli í gangverki borgarinnar. Niðurskurður er ekki náttúrulögmál. Hann er pólitískt val, byggt á ákveðinni hugmynd um hlutverk borgarinnar. Reykjavík er samfélag. Meirihlutaflokkarnir líta hins vegar á hana sem rekstrareiningu og hagfræðilegt viðfangsefni og opinber þjónusta og samfélagsleg ábyrgð eru látin víkja. Þegar niðurskurður er sífellt kynntur sem óhjákvæmileg nauðsyn er hætt við að sú hugmyndafræði sem liggur að baki honum verði ósýnileg. Þá er ekki lengur rætt um hvaða borg við viljum byggja, heldur aðeins hvað eigi að skera niður. Það er grundvallarmunur á því að glíma við fjárhagslegan vanda og að gera niðurskurð að sjálfstæðu pólitísku markmiði. Borgin verður ekki aðeins metin í krónum og aurum, heldur líka í þeirri þjónustu sem hún veitir, þeim störfum sem þar eru unnin og þeim lífsgæðum sem hún skapar. Og um þetta stendur Vinstrið vörð, gegn hugmyndafræði hægrisins – hér eftir sem hingað til og því greiddum við atkvæði gegn tillögu borgarstjóra í dag. Höfundar eru borgarfulltrúar Vinstrisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun