Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kjartan Kjartansson skrifar 28. október 2026 08:02 Guðmundur Björgin Helgason, ríkisendurskoðandi, (t.v:) segir Sigríði Auði Arnardóttur (t.h.) ekki koma nálægt stjórnsýsluúttekt á loftslagsmálum því hún var ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins. Undirmenn Sigríðar Auðar sem vinna úttektina séu ekki vanhæfir til verksins þó að hún nái utan um embættisverk núverandi yfirmanns þeirra. Vísir Fyrrverandi ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins stýrir sviði hjá Ríkisendurskoðun sem vinnur nú stjórnsýsluúttekt sem nær til starfa hans fyrir ráðuneytið. Ríkisendurskoðandi telur undirmenn fyrrverandi ráðuneytisstjórans hæfa til þess að fjalla um fyrri störf yfirmanns síns.
Ríkisendurskoðun tilkynnti fyrir tæpu ári að stofnunin ætlaði að ráðast í stjórnsýsluúttekt á stjórnsýslu loftslagsmála. Tilkynningin kom í kjölfar frétta um að íslensk stjórnvöld hefðu um árabil misskilið eðli samstarfs síns við Evrópusambandið um Parísarsamkomulagið. Misskilningurinn leiddi til þess að íslensk stjórnvöld vísuðu til losunarmarkmiðs Evrópusambandsins sem síns eigin þegar þau sendu inn yfirlýst framlög sín til Parísarsamkomulagsins. Það var ekki fyrr en fulltrúar Evrópusambandsins byrjuðu að gera athugasemdir við skilning íslenskra stjórnvalda á samstarfinu að ríkisstjórnin skilaði inn leiðréttu landsákvörðuðu framlagi til Parísarsamningsins síðasta haust. Úttekt Ríkisendurskoðunar átti upphaflega að liggja fyrir í vor. Hún reyndist hins vegar tímafrekari en áætlað var í upphafi og var henni frestað fram á haust. Nú er stefnt að því að ljúka henni fyrir árslok. Sviðsstjórinn stýrði ráðuneytinu stóran hluta úttektartímabilsins Úttektin á einkum að beinast að skipulagi, árangri, upplýsingamiðlun og fjármögnun á tímabilinu 2018-2025 samkvæmt bréfi sem Ríkisendurskoðun sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í nóvember. Sigríður Auður Arnardóttir hefur verið sviðsstjóri stjórnsýslu- og lögfræðisviðs Ríkisendurskoðunar frá því í október í fyrra, rétt áður en ráðuneytinu var tilkynnt um úttektina. Sigríður Auður Arnardóttir þegar hún var ráðuneytisstjóri þess sem þá hét umhverfis- og auðlindaráðuneytið árið 2021. Hún stýrði ráðuneytinu frá 2015 til 2022 en á þeim tíma gekkst Ísland undir Parísarsamkomulagið sem íslensk stjórnsýsla virðist hafa misskilið í grundvallaratriðum.Vísir/Vilhelm Hún var ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins frá 2015 til 2022. Parísarsamkomulagið var undirritað síðla árs 2015 og hófst misskilningur íslenskra stjórnvalda á skuldbindingum sínum gagnvart honum þannig á meðan Sigríður Auður stýrði ráðuneytinu. Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, segir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að Sigríður Auður hafi ekki haft aðkomu að úttektinni frá því að hún tók við stjórnsýslu- og lögfræðisviðinu. Vísar hann til hæfisákvæðis laga um ríkisendurskoðanda sem útilokar að starfsmenn Ríkisendurskoðunar gaumgæfi aðila sem þeir tengjast. „Er úttektin og vinnsla hennar alfarið á ábyrgð ríkisendurskoðanda og lúta störf úttektarteymisins í þessu tilviki stjórn hans,“ segir í svari Guðmundar Björgvins. Engin áhrif á stöðu starfsfólks sem vinnur að úttektinni Öðru máli gegnir um undirmenn Sigríðar Auðar sem vinna að úttektinni, að mati ríkisendurskoðanda. „Er það mat ríkisendurskoðanda að fyrri störf Sigríðar Auðar hafi engin áhrif á hæfi sérfræðinga stjórnsýslu- og lögfræðisviðs í úttektarvinnunni,“ segir í svari hans til Vísis. Jafnvel þó að það teljist ekki lögum samkvæmt vanhæfi, er það ekki ankannaleg staða fyrir þá starfsmenn sem vinna að úttektinni að þeir þurfi að leggja mat á stjórnsýslu sem núverandi yfirmaður þeirra bar að stórum hluta ábyrgð á? „Fátt er mikilvægara í öllum störfum Ríkisendurskoðunar en sjálfstæði og óhæði, sem eru leiðarljós í allri úttektarvinnu embættisins. Það fyrirkomulag sem gildir um þessa tilteknu úttekt hefur engin áhrif haft á framgang hennar eða stöðu þess starfsfólks sem að henni vinnur,“ segir í svari Guðmundar Björgvins við framhaldsspurningu Vísis. Nýráðin á sviðið tekur þátt í úttektinni Á meðal sérfræðinga sviðsins sem vinna að úttektinni á loftslagsstjórnsýslunni er Ingibjörg Halldórsdóttir. Hún starfaði tímabundið hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í fyrra. Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi ráðherra, skipaði Ingibjörgu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs árið 2022, sama ár og Sigríður Auður réð sig til starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ingibjörg Halldórsdóttir vann fyrir umhverfisráðuneytið í fyrra en vinnur við nú úttekt á stjórnsýslu þess og annarra í loftslagsmálum.Stjórnarráðið Ingibjörg sótti áfram um stöðu framkvæmdastjóra þjóðgarðsins í fyrra en hlaut ekki hnossið. Í kjölfarið var hún ráðin í sérverkefni hjá ráðuneytinu. Guðmundur Björgvin, ríkisendurskoðandi, segir að Ingibjörg hafi ekki starfað við loftslagsmál hjá umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Að hans mati sé hún hæf til þess að koma að úttekt embættisins á stjórnsýslu loftslagsmála.
Stjórnsýsla Ríkisendurskoðun Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Sjá meira