Viðskipti erlent

Bjóða fjórðungi starfs­fólks Micros­oft starfs­loka­samninga

Kjartan Kjartansson skrifar
Microsoft hefur eins og önnur tæknifyrirtæki lagt allt kapp á gervigreind undanfarin misseri. Fyrirtækið hefur meðal annars þröngvað Copilot-gervigreindartólinu upp á alla notendur Windows-stýrikerfa.
Microsoft hefur eins og önnur tæknifyrirtæki lagt allt kapp á gervigreind undanfarin misseri. Fyrirtækið hefur meðal annars þröngvað Copilot-gervigreindartólinu upp á alla notendur Windows-stýrikerfa. Vísir/EPA

Tæknirisinn Microsoft hefur boðið ríflega fjórðungi allra starfsmanna fyrirtækisins starfslokasamninga. Á sama tíma eyðir fyrirtækið hundruðum milljarða dollara í þróun gervigreindartækni.

Starfslokasamningarnir standa um sextíu þúsund starfsmönnum Microsoft í Kanda, Indlandi, Bretlandi og Bandaríkjunum til boða samkvæmt bloggfærslu „yfirmanneskjustjóra“ (e. chief people officer) stórfyrirtækisins í gær.

AP-fréttastofan segir að um 223.000 manns hafi verið í fullu starfi hjá Microsoft í lok júní. Um 27 prósentum þeirra hefur nú verið að boðið að hætta gegn greiðslu.

Hlutabréfaverð í Microsoft er nú í sögulegum hæðum og það hækkaði um prósentustig í gær. Fyrirtækið birtir afkomutölur á morgun.

Áætlað er að Microsoft hafi fjárfest í gagnaverum fyrir gervigreind fyrir um sjö hundruð milljarða dollara í ár, jafnvirði rúmra 86 þúsund milljarða íslenskra króna.

Microsoft tilkynnti fyrr á þessu ári um fyrirhugaða starfslokasamninga til starfsmanna. Stór hluti starfsmanna við Xbox, leikjatölvuarm fyrirtækisins, fékk reisupassann í júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×