Íslenski boltinn

Upp­aldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val

Valur Páll Eiríksson skrifar
Fáir uppaldir leikmenn eru í aðalliðshópi Vals. Tryggvi Hrafn er á leið aftur í sitt uppeldisfélag, ÍA.
Fáir uppaldir leikmenn eru í aðalliðshópi Vals. Tryggvi Hrafn er á leið aftur í sitt uppeldisfélag, ÍA.

Hlutfallslega spiluðu uppaldir leikmenn stærst hlutverk hjá liði Þórs frá Akureyri í Bestu deild karla í fótbolta á tímabilinu. Minnst spiluðu slíkir hjá Val.

Þór birti tölfræði yfir mínútur sem uppaldir leikmenn spiluðu á Facebook-síðu yngri flokka félagsins í dag og vísuðu í tölfræði veitunnar Ordio. Þór bjargaði sæti sínu í Bestu deildinni með sigri á FH í lokaumferð deildarinnar á laugardaginn var.

Fram kemur að uppaldir Þórsarar hafi spilað 77 prósent allra mínútna hjá liðinu í sumar sem er lang hæsta hlutverk allra liða. Næst komu uppaldir Blikar með 63 prósent og svo KR-ingar með 40 prósent.

Lang minnst spiluðu uppaldir leikmenn hjá Val, 1 prósent allra mínútna. Þar fyrir ofan er Keflavík með 15 prósent og meistarar Víkings með 19 prósent.

Tölurnar má sjá á meðfylgjandi mynd.

Hlutfall mínútna sem uppaldir leikmenn léku fyrir félög í Bestu deild karla í sumar.Þór/Ordio



Fleiri fréttir

Sjá meira


×