Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar 26. október 2026 08:47 Í kjölfar nýjustu frétta frá meirihluta borgarinnar um rýningu á rekstri Borgarbókasafnsins hefur mér hlýnað mjög um hjartarætur að lesa pistla allra þeirra sem lagt hafa orð í belg á samfélagsmiðlum. Einkum hefur mér þótt vænt um að heyra raddir þeirra sem hafa starfað um skemmri eða lengri tíma í deild miðlunar og nýsköpunar sem ég hef stýrt um árabil. Á Borgarbókasafninu er enginn dagur eins, tíminn líður hratt og þótt ég sé búin að starfa þar í fjölda ára hlakka ég alltaf til að mæta í vinnuna og takast á við verkefni dagsins. Ég vinn með framúrskarandi hæfu, hugmyndaríku og skapandi fólki sem er tilbúið að leggja mikið á sig í störfum sínum fyrir safnið. Ég verð að viðurkenna að síðustu vikur og mánuðir hafa reynt á. Niðurskurður í rekstri safnsins er ekki nýr af nálinni og þegar maður heldur að nú sé ekki af meiru að taka þá er haldið áfram að kroppa innan úr skelinni. Þrátt fyrir það höfum við unnið að metnaðarfullum framtíðarplönum og fylgt í fótspor þeirra höfuðborgarsafna sem hafa snúið vörn í sókn með því að hugsa stórt og setja markið hátt. Í Helsinki, Osló, Árósum og fleiri menningarborgum hafa stjórnvöld séð ástæðu til þess að gera bókasöfnunum hátt undir höfði og lagt mikinn metnað í að gera þau að aðalkennileitum borganna. Og árangurinn blasir við með margfaldri aukningu á aðsókn og útlánatölum í þessum söfnum. Með þessi dæmi að leiðarljósi hefur verið unnið að endurhönnun og -byggingu Grófarhúss. Vinnan hófst árið 2018 og hefur verið vandað mjög til verka. Búið er að teikna og hanna húsið af frábærum arkitektum og gengið er út frá að taka allt húsið í notkun auk viðbyggingarinnar sem staðið hefur tóm í mörg ár. Fagleg undirbúningsvinna hefur farið fram í nánu samráði við notendur og hagsmunaaðila safnsins til að tryggja að húsið muni þjóna starfseminni sem allra best. Þarna er um að ræða fjárfestingu til framtíðar fyrir borgarbúa og það væri skammarleg sóun á skattfé að hætta við þessa framkvæmd sem búið er að leggja svo mikla vinnu og fjármagn í að undirbúa. En tölum aðeins um tölfræði, krónur og aura þegar kemur að því að skapa líf og stemningu á söfnunum, veita innblástur, miðla þekkingu og upplýsingum til ólíkra hópa barna og fullorðinna. Kíkjum á nokkur dæmi… Á síðasta ári var boðið upp á 153 viðburði fyrir börn og fjölskyldur á átta söfnum Borgarbókasafnsins. Útlagður kostnaður var 3,6 milljónir. Auk kostaðra viðburða sér starfsfólk safnanna um fjölda viðburða og fastra dagskrárliða. Hlutfall svokallaðra hýsingarviðburða hefur hækkað jafnt og þétt á síðustu árum en þeim fylgir heilmikið utanumumhald og þjónusta. Fjöldi slíkra viðburða fyrir börn og ungmenni voru 70 talsins 2025 og stefna í að verða helmingi fleiri í ár. Aðsókn á viðburði fyrir börn og fjölskyldur er almennt mjög góð og oft komast færri að en vilja. Á söfnunum er líka boðið upp á fjölbreytta fræðslu og lestrarhvetjandi verkefni fyrir öll skólastig árið um kring og fjöldi barna og ungmenna sem komið hafa í skipulagðar skólaheimsóknir hafa verið á bilinu 8 – 10 þúsund ár hvert. Árið 2025 voru haldnir 89 bókmenntatengdir viðburðir fyrir fullorðna sem kostuðu samtals 4,8 milljónir sem voru að mestum hluta styrkir. Mikil eftirspurn er eftir slíkum viðburðum og notendakannanir sýna að fólk er mjög ánægt með dagskrána en vill gjarnan geta sótt fleiri viðburði að svipuðum toga. Mikil vinna er einnig lögð í miðlun safnkosts eins og heimasíðan okkar ber sér. Borgarbókasafnið hefur til margra ára verið leiðandi á sviði inngildingar og hefur lagt mikinn metnað í að þróa verkefni sem hverfast um samsköpun, félagslega nýsköpun, samtal og samstarf við fjölda aðila til að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu og auka aðgengi þeirra að því sem safnið hefur upp á að bjóða. Eins og mörg hafa bent á í pistlum sem birst hafa á síðustu dögum eru bókasöfn samtímans mjög dýrmæt almenningsrými þar sem ólíkir hópar geta komið saman á jafnréttisgrundvelli og óhætt er að fullyrða að bókasöfnin eru sem aldrei fyrr ein af mikilvægustu grunnstoðum lýðræðisins. Stærstur hluti verkefna á sviði inngildingar hafa verið fjármögnuð með styrkjum og þau sem náð hafa hvað mestu flugi hafa ratað inn í fjárhagsáætlun síðustu ára. Árið 2025 var útlagður kostnaður um 5 milljónir fyrir 83 viðburði en stærsta einstaka verkefnið var Spjallað með hreim, þar sem boðið er upp á óformlega íslenskukennslu. Boðið er upp á vikulega viðburði yfir vetrartímann og um 50 manns mæta að meðaltali í hvert sinn og ljóst er að þörfin er mikil og með auknu fjármagni væri hægt að efla þennan þátt starfseminnar svo um munar. Önnur dæmi um nýsköpun er Framtíðarfestivalið, viðburðaröð sem hefur hlotið mikla athygli og einnig má nefna verkefnið Kærleiksorðræðan. Þessi og fleiri verkefni af svipuðum toga hafa vakið ómælda athygli innanlands sem utan, fyrir spennandi hugmyndafræði og nálgun. Verkefnin hafa verið kynnt víða, á ráðstefnum víða um heim, fyrir háskólasamfélaginu á Íslandi og starfsfólki bókasafna í öðrum löndum sem vilja sækja sér innblástur. Öll þessi verkefni hafa laðað að fjölda nýrra notenda og fengið heilmikla umfjöllun í fjölmiðlum. Grænu verkefnin hafa líka verið áberandi í starfsemi Borgarbókasafnsins og laðað að enn fjölbreyttari hóp notenda. Fríbúðin í Gerðubergi hefur slegið í gegn, alls konar skiptimarkaðir eru sívinsælir og tekist hefur að auka fjölda viðburða sem snúast um græn málefni verulega með þátttöku í Evrópuverkefninu make-a-thek. Á síðasta ári var boðið upp á 27 viðburði og stefna í að verða mun fleiri í ár. Hér hafa aðeins verið nefnd örfá dæmi en þess ber að geta að ráðstöfunarfé til viðburðahalds á síðasta ári var um 15 milljónir og til viðbótar tókst starfsfólki að fá rúmar 11 milljónir í styrki, þar af 4,5 milljónir í verkefnið Læsi á stöðu og baráttu kvenna sem Borgarbókasafnið leiddi í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands í samstarfi við fjölda bókasafna um land allt. Lauslega talið þá var heildarfjöldi viðburða, fastra dagskrárliða og hýsingarviðburða um 900 talsins á árinu 2025. Og þá er kannski forvitnilegt fyrir ykkur að vita hvað safnið hefur mikið fé til ráðstöfunar í kynningarmálin. Nú myndu kannski einhver halda að það kostaði mikið að kynna alla þessa viðburði auk þeirrar fjölbreyttu þjónustu sem í boði er. Við gætum vissulega þegið að hafa úr meiru að moða en á síðustu árum hefur sífellt verið þrengt meira að kynningarmálunum. Á síðasta ári höfðum við einungis úr að spila 800 þúsundum í auglýsingar og 2,2 milljónum í prentkostnað. Þau sem þekkja til á þessu sviði sjá á augabragði að þetta eru ekki háar tölur. Hér hefur aðeins verið tæpt á brotabroti af víðtækri starfsemi Borgarbókasafnsins með áherslu á viðburðahald og kynningarmál sem heyra undir mitt verksvið. Ég hvet ráðamenn til að lesa stefnu Borgarbókasafnsins og fylgjast með lífinu á söfnunum með því að nýta sér safnkostinn, kíkja á viðburði og skoða heimasíðu og samfélagsmiðla Borgarbókasafnsins sem gefa skýra mynd af iðandi mannlífinu á söfnunum og því fjölbreytta og skapandi starfi sem þar fer fram alla daga ársins. Þrátt fyrir þær erfiðu og sársaukafullu áskoranir sem við stöndum nú frammi fyrir er ég bjartsýn að eðlisfari og fagna umræðunni um gildi og hlutverk bókasafna í samfélagi nútímans. Hugmyndir um að bókasöfn snúist eingöngu um útlán bóka eru löngu úreldar, starfsemin er jú miklu víðtækari en svo. Ef hlutverið væri svo einfalt gætum við bara sett upp bókasjálfsala í Kringlunni. #meiraenbækur En að öllu gamni slepptu þá skulum við ekki gleyma því að hér erum við að ræða um lögbundna þjónustu og eitt mikilvægasta almenningsrýmið sem allir borgarbúar hafa aðgang að, allt sitt æviskeið. Ég óska þess að stjórnendur og starfsfólk Borgarbókasafnsins fái tækifæri til að taka samtalið við ráðamenn borgarinnar þegar ráðist verður í greiningu á starfseminni svo við getum í sameiningu unnið að því að gera bókasafn borgarbúa enn öflugra en það er í dag. Eins og dæmin sanna laða öflugar menningarborgir að sér fleiri íbúa sem og ferðalanga og því vil ég leggja mitt af mörkum til að að Borgarbókasafnið verði HJARTAÐ í öllum hverfum Reykjavíkur til framtíðar og að Grófarhús verði eitt af kennileitum miðborgarinnar. Kíkið á heimasíðuna til að fá yfirlit yfir umfang starfseminnar: https://borgarbokasafn.is/ Hér má lesa stefnu og aðgerðaráætlun Borgarbókasafnsins 2025-2028. https://issuu.com/.../stefna_og_adgerdaaaetlun_bbs_2025 Höfundur er deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun