Skoðun

Leik­skóli á að vera réttur allra barna

Dagur B. Eggertsson skrifar

Er ekki undarlegt að leikskólinn hafi um árabil verið skilgreindur í lögum sem fyrsta skólastigið, án þess að öllum börnum hafi jafnframt verið tryggður réttur til leikskólavistar frá tilteknum aldri? Við lítum á það sem sjálfsögð réttindi barna að fá að ganga í grunnskóla og síðar framhaldsskóla. En þegar kemur að fyrsta skólastiginu er enn gat í réttindum þeirra í lögum og ábyrgðin á að tryggja þennan rétt er óljós.

Þessu er löngu tímabært að breyta.

Ég ásamt sjö öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar hef lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um lögfestingu réttar barna til leikskólavistar. Markmiðið er að öllum börnum verði tryggður réttur til leikskóla þegar fæðingarorlofi lýkur, óháð búsetu eða efnahag foreldra.

Þetta er að okkar mati eðlilegt og mikilvægt framfaraskref í þróun íslensks mennta- og velferðarkerfis. Ég er raunar sannfærður um að stór hluti þingheims, og samfélagsins, er sömu skoðunar.

Réttindi barna – ekki biðlistar og óvissa

Í dag er enginn lögbundinn réttur barna til leikskólavistar frá tilteknum aldri. Aðgangur að leikskólum er að verulegu leyti háður aðstæðum í hverju sveitarfélagi. Þess vegna getur verið verulegur munur á því hvenær börn fá leikskólapláss eftir því hvar þau búa.

Umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er ábyrgðargat í íslensku velferðarkerfi. Þegar fæðingarorlofi lýkur tekur ekki sjálfkrafa við tryggður réttur til leikskólavistar. Foreldrar verða sjálfir að finna lausn, með tilheyrandi óvissu og oft verulegum fjárhagslegum afleiðingum.

Þetta hefur líka mikil áhrif á jafnrétti kynjanna. Rannsóknir sýna að það eru oftar en ekki mæður sem draga úr starfshlutfalli eða fresta endurkomu á vinnumarkaðinn þegar leikskólapláss vantar. Lögfesting réttar til leikskólavistar er því einnig mikilvægt jafnréttismál.

En fyrst og fremst snýst þetta um börnin sjálf. Leikskólinn er ekki fyrst og fremst þjónusta sem gerir foreldrum kleift að vinna. Hann er menntastofnun þar sem börn þroska félagsfærni, málþroska, sjálfstæði og samskiptahæfni, svo fátt eitt sé nefnt. Vandað leikskólastarf hefur sérstaklega mikið gildi fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning eða búa við félagslega erfiðari aðstæður.

Það er því mikilvægt að líta á leikskólavist sem réttindi barnsins sjálfs, en ekki aðeins þjónustu við foreldra þess eða atvinnulíf.

Ísland taki næsta skref

Á hinum Norðurlöndunum hefur almennt verið tryggður lögbundinn réttur barna til dagvistunar við eða skömmu eftir lok fæðingarorlofs. Þar er litið á samfellda þjónustu við börn og fjölskyldur sem sjálfsagðan hluta velferðarkerfisins.

Ísland hefur byggt upp öflugt leikskólastig og mikla atvinnuþátttöku beggja foreldra, en við höfum ekki stigið þetta mikilvæga skref í réttindum barna.

Í desember síðastliðnum skilaði aðgerðahópur stjórnvalda, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins mikilvægri skýrslu með tillögum um hvernig brúa mætti umönnunarbilið. Þar var lagt til að réttur barna til leikskólavistar yrði lögfestur í áföngum og að full samfella milli fæðingarorlofs og leikskóla yrði tryggð fyrir árið 2030. Þeirri áfangaskiptingu er í meginatriðum fylgt í þingsályktunartillögunni til að stuðla að sem breiðastri sátt um málið.

Í skýrslunni kemur einnig fram að samfélagslegur ábati af því að tryggja börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur gæti numið um 11 milljörðum króna á ári. Það undirstrikar að hér fara saman félagslegt réttlæti, jafnrétti og mikilvægir þjóðhagslegir hagsmunir.

Réttindunum þarf að fylgja raunveruleg ábyrgð

Í þingsályktunartillögu okkar er lagt til að réttur barna til leikskólavistar frá 18 mánaða aldri verði tryggður eigi síðar en árið 2028 og að öll börn eigi rétt á leikskólavist að loknu fæðingarorlofi eigi síðar en árið 2030. Mikil uppbygging í leikskólamálum undanfarin ár, meðal annars í Reykjavík, gerir að verkum að þetta er fyllilega raunhæft.

Jafnframt verði ríki og sveitarfélög að semja um fjármögnun, uppbyggingu og ábyrgð á framkvæmdinni.

Lögfesting ein og sér byggir auðvitað ekki leikskóla eða tryggir starfsfólk. Þess vegna leggjum við líka til að samhliða frumvarpsgerðinni verði unnin tímasett áætlun um uppbyggingu, styrkingu leikskólastigsins og mönnun þess. Það þarf að tryggja að réttindin verði raunveruleg í lífi barna og foreldra, ekki aðeins falleg orð á blaði.

Við höfum áður stigið stór skref í íslensku samfélagi með því að tryggja almennan rétt til menntunar og byggja upp þjónustu sem áður var háð aðstæðum fólks. Lögfesting réttar barna til leikskólavistar er rökrétt framhald þeirrar þróunar.

Hún felur ekki í sér skyldu foreldra til að senda börn sín í leikskóla, heldur tryggir þeim og börnum þeirra þann rétt og það val sem í dag skortir.

Það á ekki að vera háð búsetu, fjárhag eða tilviljunum hvenær barn fær tækifæri til að hefja leikskólagöngu.

Við höfum fyrir löngu viðurkennt leikskólann sem fyrsta skólastigið. Nú er tímabært að taka næsta skref og tryggja öllum börnum rétt til þess í lögum.

Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga

Tengill á þingsályktunartillögu um lögfestingu sveitarstjórnarstigsins.




Skoðun

Sjá meira


×