„Þetta er algjörlega óviðunandi“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. október 2026 19:01 Halla Þorvaldsdóttir segir mikilvægt að reyna að ná til kvenna með erlent ríkisfang sem eru búsettar hér á landi. Aðeins ein af hverjum fjórum mætir í brjóstaskimun. Vísir Aðeins fjórða hver kona með erlent ríkisfang tekur þátt í brjóstaskimun, samanborið við rúmlega sjö af hverjum tíu konum með íslenskt ríkisfang. Svipaður munur er á þátttöku í leghálsskimunum. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins hefur miklar áhyggjur af stöðunni og segir brýnt að ná betur til kvenna af erlendum uppruna, ekki síst þar sem nýgengi brjóstakrabbameins fer vaxandi. Samkvæmt tölum embættis landlæknis var þátttaka kvenna með erlent ríkisfang í boðuðum brjóstaskimunum aðeins 25 prósent á síðasta ári, samanborið við rúmlega 70 prósent meðal kvenna með íslenskt ríkisfang. Í leghálsskimunum tóku um átta af hverjum tíu konum með íslenskt ríkisfang þátt en aðeins ríflega þriðjungur erlendra kvenna. Samkvæmt Hagstofu Íslands búa ríflega 30 þúsund konur með erlent ríkisfang hér á landi. BrjóstaskimanirÞátttökuhlutfall eftir ári og ríkisfangiBrjóstaskimanirLeghálsskimanir Telur stöðuna óviðunandi Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins hefur miklar áhyggjur af stöðunni. „Við sjáum að það er alveg gríðarlegur munur á þátttöku kvenna eftir því hvort þær eru með íslenskt eða erlent ríkisfang. Þetta er algjörlega óviðunandi,“ segir Halla. Hún telur skýringarnar margar. Konur sem flytji til Íslands þekki heilbrigðiskerfið síður og hafi ekki alltaf aðgang að sömu upplýsingum og þær sem hér eru fæddar og uppaldar. „Það hefur ekki tekist að koma upplýsingum um mikilvægi brjóstaskimana og aðgengi að þeim nægilega vel til þessara kvenna.“ Vinnuaðstæður geti einnig haft áhrif. „Mögulega eiga þær líka erfiðara með að vera að losa sig frá vinnu til þess að komast í skimanirnar og það getur verið fleira en þetta er mikið áhyggjuefni,“ segir Halla. Þátttaka erlendra kvenna tvöfaldaðist á Suðurnesjum Halla bendir á átak sem fór fram á Suðurnesjum á síðasta ári þar sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum tóku höndum saman um að auka þátttöku í brjóstaskimunum. „Þátttaka í brjóstaskimunum á Suðurnesjum jókst úr 40 prósentum árið 2022 í 55 prósent árið 2025. Á sama tíma tvöfaldaðist þátttaka kvenna af erlendum uppruna,“ segir Halla. Samstarfsaðilarnir hlutu samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins í vor fyrir árangurinn. Halla segir að nú sé unnið að fjáröflun fyrir brjóstamyndatökutækjum sem komið yrði fyrir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að bæta aðgengi enn frekar. „Það skiptir mjög miklu máli að auka aðgengið svo konur þurfi ekki að ferðast langa leið til að komast í skimun. Skoðunin sjálf tekur svo bara sáralítinn tíma,“ segir Halla. Meinvörp mun algengari þegar krabbamein greinist utan skimunar Halla bendir á upplýsingar úr gæðaskrá krabbameina sem sýna mikilvægi þess að greina krabbamein snemma. Samkvæmt þeim greindust meinvörp innan fimm ára hjá sjö prósentum þeirra sem greindust með krabbamein í skimun, samanborið við 18 prósent þeirra sem greindust utan skimunar. „Þetta er svo mikill munur að það er afar brýnt að konur nýti boðið þegar það berst. Við þurfum virkilega að taka höndum saman og reyna að ná til þeirra kvenna sem hafa komið hingað erlendis frá,“ segir Halla. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort brjóstakrabbamein sé algengara meðal kvenna með erlent ríkisfang hér á landi. Halla telur mikilvægt að geta greint hvort ákveðnir hópar séu í meiri áhættu en aðrir til að beina forvörnum betur að þeim. Nýgengi aukist Nýgengi brjóstakrabbameins hefur farið vaxandi hér á landi undanfarna áratugi. Árið 2025 var það 157 tilfelli á hverjar 100 þúsund konur sem er um 15 prósentum meira en fimm árum áður. Halla segir þróunina áhyggjuefni en bendir einnig á að greining krabbameina hafi batnað. Ýmsir áhættuþættir geti líka haft áhrif eins og áfengisneysla, ofþyngd, hreyfingarleysi, hormónatengdir þættir og breytingar á barneignamynstri. „Góðu fréttirnar eru þær að meðferðir hafa batnað,“ segir Halla. Í dag er Bleiki dagurinn en þá eru landsmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma fyrir allar konur sem greinst hafa með krabbamein. Krabbamein Heilsa Embætti landlæknis Heilbrigðismál Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Sjá meira
Í dag er Bleiki dagurinn en þá eru landsmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma fyrir allar konur sem greinst hafa með krabbamein.
Krabbamein Heilsa Embætti landlæknis Heilbrigðismál Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Sjá meira