Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar 20. október 2026 18:01 Hildur Björnsdóttir tók við embætti borgarstjóra Reykjavíkur 2. júní 2026 með áherslu á tafarlausan sparnað. Innan þriggja mánaða samþykkti meirihlutinn allt að 73% hækkun á verði hádegismáltíða eldri borgara og öryrkja – áður en eitt einasta alvarlegt skref hafði verið tekið til að stöðva sóunina innan borgarstjórnkerfisins. Á meðan héldu 11.000 starfsmenn og æðsta stjórn borgarinnar áfram í gjaldfrjálsri elhúsaðstöðu, salernispappír, niðurgreiddum máltíðum, ferðalögum, móttökum og dýru leiguhúsnæði. Það er ekki forgangsröðun. Það er flótti frá raunveruleikanum. Spurningin er um röð ákvarðana og skort á opnum gögnum. Borgin krafðist aukinnar kostnaðarþátttöku af notendum félagslegrar þjónustu áður en hún hafði rannsakað eigin rekstrarkostnað, hlunnindi og útgjöld af sömu alvöru. Hækkunin og áhrif hennar Almennt verð hádegismáltíðar lífeyrisþega hækkaði úr 1.100 eða 1.190 krónum í 1.900 krónur frá 1. september 2026. Hækkunin er 72,7% frá lægra viðmiði og 59,7% frá hærra viðmiði. Einstaklingur sem kaupir 20 máltíðir á mánuði greiðir 16.000 krónum meira í hverjum mánuði, eða 192.000 krónum á ári. Þetta er umtalsverð byrði á föstum lífeyri. Matarþjónusta við eldra fólk styður sjálfstæða búsetu, næringu og félagslega þátttöku. Alþýðusamband Íslands gagnrýndi hækkunina og benti á að félagsleg matarþjónusta sé ekki venjuleg söluvara. Áður en gjaldskrá er hækkuð þarf að meta bæði fjárhagsleg og samfélagsleg áhrif. Kærumál til Úrskurðarnefndar velferðarmála gæti leitt í ljós að synjun á gjaldalækkun og að málsmeðferðin styðjast ekki að fullu við birt ákvæði gjaldskrár nr. 936/2026. Túlkun borgarinnar bætir við skilyrði sem ekki er að finna í textanum. Rökstuðningurinn uppfyllir ekki kröfur 22. gr. stjórnsýslulaga. Þetta styrkir kröfuna um gagnsæi og fulla innri greiningu. Innri útgjöld og hlunnindi Á meðan matarverðið var hækkað hjá gamlingjunum héldu starfsmenn og yfirstjórn áfram í gjaldfrjálsri eldhúsaðstöðu: ókeypis salernispappír og aðrar rekstrarvörur keyptar í haugum á kostnað okkar skattgreiðenda, kaffistofum, fundaaðstöðu, bílastæðum, ferðalögum, móttökum og dýru leiguhúsnæði. Öryrkjar og eldri borgarar greiða sinn salernispappír sjálfir. Yfirstjórn borgarinnar fær hann frítt, meðal annars á kostnað þeirra. Sumir þeirra sem fá þessa gjáldfrjálsu þjónustu fá 8 til 10 sinnum hærri laun frá borginni en þau sem fá lægstu mögulegu ellilaun frá Tryggingastofnun ríkisins. Margir í þeim hópi misstu lífeyrissjóði sína og aleiguna í bankahruninu 2008. Niðurgreiðsla á máltíðum í Ráðhúsinu var meiri en sú sem þessir öryrkjar og eldri borgarar fengu. Eldhúsið á Vitatorgi fékk á sínum ekki nægan pening til að kaupa ódýrasta hráefnið á markaðnum alla daga vikunnar. Ný ýsa kom gul og grá á diskana og kjötbitarnir voru eins og hjólbarðagúmmí. Á meðan sat yfirstjórnin áfram á gullstalli skattpeninganna. Engin opinber sundurliðun á öllum þessum liðum lá fyrir þegar hækkunin var samþykkt. Rannsóknarforsendur benda á mögulegan árlegan sparnað í stjórnsýslu og rekstri upp á 1,71 milljarð króna. Þar á meðal eru endurskoðun leiguhúsnæðis, ráðgjöf, ferðalög og hagræðing fasteigna. Þessar tölur eru ekki staðfestur sparnaður en sýna stærðargráðuna. Fækkun borgarfulltrúa krefst lagabreytingar og eignasala er ekki endurtekinn sparnaður. Tillögur um opinbera sundurliðun og greiningarlegan samanburð Lagt er til að Reykjavíkurborg birti opinberlega og sundurliðað: heildarkjör og hlunnindi æðstu stjórnenda, kostnað við ferðalög, móttökur, ráðgjöf og leiguhúsnæði, og samanburð á kostnaði félagslegrar matarþjónustu yfirstjórnarinnar og innri starfsmannaþjónustu. Greiningarlegur samanburðurinn er skýr. Einstaklingur sem kaupir 20 máltíðir á mánuði greiðir 16.000 krónum meira á mánuði – 192.000 krónum á ári. Á sama tíma var engin opinber sundurliðun birtur á innri útgjöldum borgarinnar. Rannsóknarforsendur benda á 1,71 milljarð króna árlegan sparnað í stjórnsýslu og rekstri og 1,32 milljarð króna af tillögu um þjónustugjald starfsmanna (11.000 starfsmenn × 10.000 kr. × 12). Samtals 3,03 milljarðar króna á ári – 12,12 milljarðar króna yfir heilt kjörtímabil. 10.000 kr. gjald er 43,6% lægra en 17.735 kr. þjónustugjald þjónustuíbúðanna. Þetta er umtalsvert meiri byrði sem lögð er á einstaka lífeyrisþega. Engin skýring lá fyrir hvers vegna veikustu hóparnir áttu að greiða fyrst auk þess sem yfirstjórnin fékk meiri stuðning en öryrkjar og eldriborgarar? Spurningin er ekki hvort stjórnendur séu meira þurfandi. Spurningin er hvort borgin hafi rannsakað eigin útgjöld, laun og hlunnindi af sama alvöru og hún krafðist aukinnar greiðslu af notendum félagslegrar þjónustu. Svarið sem liggur fyrir er að það var ekki gert áður en hækkunin var samþykkt. Tillaga um 10.000 króna þjónustugjald Til samanburðar er lagt til að tekið verði til formlegrar skoðunar hvort allir starfsmenn borgarinnar geti greitt 10.000 krónur mánaðarlega fyrir skilgreinda sameiginlega þjónustu og aðstöðu, að því marki sem slíkt samræmist lögum og kjarasamningum. Miðað við 11.000 starfsmenn yrðu brúttótekjur 1,32 milljarðar króna á ári. Þetta er 43,6% lægra en þjónustugjald í þjónustuíbúðum aldraðra (17.735 krónur). Samanburðurinn sýnir mun á fjárhæðum en ekki að þjónustan sé sama eðlis. Markmiðið er að reyna á jafnræði í kostnaðarhugsun. Lögbundin vinnuvernd og nauðsynleg aðstaða eru skyldur vinnuveitanda og ekki gjaldskyld á sama grundvelli. Tillagan krefst sjálfstæðs lagamats. Liður Árlega Yfir 4 ár Þjónustugjald starfsmanna 1,32 ma.kr. 5,28 ma.kr. Stjórnsýsla og rekstur 1,71 ma.kr. 6,84 ma.kr. Samtals án sölu Ráðhúss 3,03 ma.kr. 12,12 ma.kr. Taflan sýnir brúttóútreikninga yfir heilt kjörtímabil. Raunverulegur nettóávinningur ræðst af framkvæmdarkostnaði, skörun liða og félagslegum áhrifum. Ráðhússleiðir (sala eða leiga) eru ekki innifaldar og krefjast sérstaks mats, en gæti skilað borgarsjóði milljörðum. Lokaorð Hækkun matarverðs lífeyrisþega um allt að 73% átti sér stað áður en heildstæð innri úttekt lá fyrir. Engin sundurliðun á hlunnindum, ferðalögum, salernispappír eða leiguhúsnæði. Engin skýring á því hvers vegna veikustu hóparnir áttu að greiða fyrst á meðan yfirstjórnin sat áfram á gullstalli skattpeninganna og fékk meiri niðurgreiðslu á máltíðum og hreinlætisaðstöðu en öryrkjar og eldri borgarar. Eldhúsið á Vitatorgi fékk ekki nægan pening til að kaupa ódýrasta hráefnið nema 6 daga vikunnar. Ný ýsa kom gul og grá og kjötbitarnir voru eins og hjólbarðagúmmí. Sparnaður sem byrjar á notendum félagslegrar þjónustu áður en stjórnkerfið hefur rannsakað eigin sóun er ekki forgangsröðun. Það er val sem þarf að snúa við. Borgarstarfsmenn og sérstaklega yfirstjórn eiga að stíga niður og greiða að fullu fyrir mat og rekstrarvörur sem keyptar eru á kostnað skattgreiðenda. Tillögurnar sem hér eru settar fram – 10.000 króna þjónustugjald til samanburðar, opinber sundurliðun á kjörum og hlunnindum, og óháð greining með mælanlegum niðurstöðum – eru settar fram til að knýja fram þá skoðun sem ekki fór fram. Hún ætlaði að spara strax. Hér eru tillögurnar. Nú þarf að leggja fram gögnin. Höfundur er byggingaverkfræðingur. Heimildir Gjaldskrá nr. 936/2026 fyrir matarþjónustu eldri borgara og öryrkja, Reykjavíkurborg. Ákvörðun Áfrýjunarnefndar velferðarráðs, 30. september 2026, og rökstuðningur 9. október 2026, mál VEL26090132. Úrskurðarnefnd velferðarmála, mál nr. 439/2021, 19. janúar 2022. Stjórnsýslulög nr. 37/1993, 7., 10., 12., 13. og 22. gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, 1. mgr. 76. gr. Lög um málefni aldraðra nr. 125/1999. Lög um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018. Alþýðusamband Íslands, umsögn um hækkun matarverðs, ágúst 2026. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026. Fréttir og tilkynningar Reykjavíkurborgar um ráðningarsamning borgarstjóra og ákvarðanir velferðarráðs, júní–ágúst 2026. Siðareglur lögmanna, 1. gr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun