Lífið

Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Bjarni Ben, Þóra Margrét, Inga Lind og Sigðurður Viðarsson voru meðal gesta á túnfiskfestivali Sushi Social.
Bjarni Ben, Þóra Margrét, Inga Lind og Sigðurður Viðarsson voru meðal gesta á túnfiskfestivali Sushi Social. Ari Páll Karlsson

Veitingastaðurinn Sushi Social hélt glæsilegt túnfiskfestival í síðustu viku þar sem skorinn var niður heill, ferskur bláuggatúnfiskur, gestir gæddu sér á fisknum og skoluðu honum niður með fljótandi veigum. Margt var um manninn og kíkti Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA og fyrrverandi forsætisráðherra, við ásamt fjölskyldu sinni.

Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til landsins frá Spáni og Fernando Chan, skurðarmeistari, skar niður með hefðbundinni japanskri skurðartækni.

Kraftlyftingarkonan Eygló Fanndal Sturludóttir var valin heiðursgestur og fékk að spreyta sig á skurðinum undir handleiðslu Chan.

Sérstakur túnfiskseðil var á boðstólnum þar sem gestir fengu að kynnast ólíkum hlutum bláuggatúnfisksins og boðið var upp fljótandi veigar auk rétta úr fisknum á borð við ceviche, tartar, nigiri, sashimi og steik.

Meðal gesta voru hjónin Bjarni Benediktsson og Þóra Margrét Baldvinsdóttir, Benedikt Bjarnason og Sunneva Einarsdóttir, Mikael Kaaber, Birgitta Líf og hjónin Birgitta Haukdal og Benedikt Einarsson. Ljósmyndarinn Ari Páll Karlsson fangaði stemminguna á mynd.

Fernando Chan og Inga Lind.Ari Páll Karlsson

Túnfiskurinn er ansi stór.Ari Páll Karlsson

Feðgarnir Benedikt Bjarnason og Bjarni Benediktsson fylgjast með ásamt Þóru Margréti Baldursdóttur.Ari Páll Karlsson

Túnfiskur getur verið algjört lostæti.Ari Páll Karlsson

Eyvindur, Hilmar Þór og Alexander Skjóldal.Ari Páll Karlsson

Ásgeir Kolbeinsson og Hera Gísladóttir með syni þeirra.Ari Páll Karlsson

Nuno, eigandi Sushi Social, og Eiríkur ÖnundarsonAri Páll Karlsson

Menn í góðum gír.Ari Páll Karlsson

Glæsilegur túnfiskur var borinn á borð.Ari Páll Karlsson

Eygló Fanndal fylgist með sérfræðingunum verka túnfiskinn.Ari Páll Karlsson

Heiðursgesturinn Eygló Fanndal mundaði hnífinn.Ari Páll Karlsson

Birgitta Haukdal, Inga Lind og Ásthildur Bára Jensdóttir.Ari Páll Karlsson

Anna Bergmann og Birgitta Líf pæjulegar.Ari Páll Karlsson

Mikael Kaaber, Berglind Alda og Eygló Fanndal Sturludóttir.Ari Páll Karlsson

Júlíus Jónasson og Eiríkur Önundarson.Ari Páll Karlsson

Guðjón Davíðsson hjá True North, Sigga Heimis og Sigþór Einarsson.Ari Páll Karlsson

Feðgarnir Bjarni Benediktsson og Benedikt Bjarnason.Ari Páll Karlsson

Inga Lind Karlsdóttir og Sigurður Viðarsson glæsileg saman.Ari Páll Karlsson

Ásthildur Bára og Daníel Charles Kavanagh.Ari Páll Karlsson

Prófessor Hulda Þórisdóttir í góðum hópi.Ari Páll Karlsson

Benedikt Einarsson og Birgitta Haukdal.Ari Páll Karlsson

Elli Cassada og Samúel Bjarki.Ari Páll Karlsson

Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga með einni glæsilegri vinkonu.Ari Páll Karlsson

Heidi Anette Öye, Annette Schou og Matthías Björnsson.Ari Páll Karlsson

Mæðginin Inga Lind og Haukur Árnason.Ari Páll Karlsson

Guðmundur Már Jónasson, Benedikt Einarsson, Páll Orri Pálsson, Orri Heiðarsson og Benedikt Bjarnason.Ari Páll Karlsson

Birgitta Haukdal, Benedikt Einarsson og Orri Heiðarsson.Ari Páll Karlsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.