Skoðun

Betri (um­ferðar) borg fyrir börn

Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar

Öryggi barna í umferðinni er meðal þess sem fékk mig til að bjóða mig fram í borginni í vor.

Við í Viðreisn ætlum að gera Reykjavík að betri borg fyrir börn og mikilvægur hluti af því er að gera umferðaröryggi að forgangsmáli. Í gær lögðum við í umhverfis- og skipulagsráði fram tillögu þess efnis að sviðið taki saman gögn sem eru nú þegar til á hinum ýmsu stöðum til að kortleggja hvar hættan fyrir börn í umferðinni við skóla og leikskóla er mest. Við óskuðum líka eftir því að kvartanir og ábendingar skólasamfélagsins væru teknar með í þessa vinnu. Það er nefnilega einstaklega mikilvægt að foreldrar geti treyst umferðinni fyrir börnunum sínum, annars aukast líkur á skutli og umferðin eykst enn meir.

Ákall úr fleiri áttum

Í gær birtu Samtök um bíllausan lífsstíl líka mikilvæga grein hér á Vísi sem fjallar um slys á börnum í umferðinni. Greinarhöfundur kallar þar eftir því að fólk láti heyra meira í sér þegar keyrt er á börn og ég gæti ekki verið meira sammála. Við getum ekki búið í borg þar sem það þykir eðlilegur fylgifiskur bílaumferðar að börn verði fyrir bíl. Í greininni er talað um gatnamót í mínu hverfi. Þar stóð ég við gangbraut þrjá vetur í röð, með fullt af öðrum foreldrum, til að vera viss um að börnin í hverfinu kæmust örugg í skólann. Eitthvað sem ætti að vera sjálfsagt að mínu mati. Í því tilfelli hafði þrýstingur skólasamfélagsins tilætluð áhrif og Reykjavíkurborg er nú byrjuð að laga tvær gangbrautir á þeim stað. Það er samt bara byrjunin því víða er pottur brotinn.

Fyrsta skrefið: skólarnir

Á þessu kjörtímabili viljum við horfa sérstaklega á svæði í kringum skóla og leikskóla og með því að kalla eftir gögnum viljum við geta mælt árangurinn.

Ábyrgð okkar sem stýrum borginni er mikil en betri (umferðar) borg fyrir börn er samfélagslegt verkefni og við verðum öll að hjálpast að. Reykjavík axlar sína ábyrgð með því að vanda til verka þegar við hönnum götur, stíga og gangbrautir eða ákvörðum umferðarhraða. Við sem erum með bílpróf verðum svo líka að axla ábyrgð á því hvernig við keyrum. Við verðum að hætta að horfa ofan í símana og einbeita okkur að akstrinum. Keyra hægar og muna að hámarkshraði er ekki „eini hraðinn sem má keyra þessa götu á“. Stundum kalla aðstæður eftir því að við keyrum hægar. Sérstaklega inni í hverfum þar sem börn eru alltaf að ferðast um og í myrkri á morgnanna þegar börn eru á leið til skóla.

Það er aldrei börnum um að kenna

Umfram allt þá getum við ekki kennt börnum um þegar illa fer. Þau eru að taka sín fyrstu skref sem gangandi og hjólandi vegfarendur. Við getum vissulega tryggt að þau séu vel merkt með endurskinsmerkjum og farið yfir umferðarreglurnar með þeim. En ef umhverfið er illa hannað og bílstjórar sýna þeim ekki tillit, einbeita sér ekki að akstrinum eða keyra alltof hratt þá eiga þau ekki séns og borgin okkar er þá hreinlega ekki nógu öruggur staður fyrir yngstu íbúa borgarinnar.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Viðreisnar og situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×