Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Lovísa Arnardóttir skrifar 12. október 2026 09:31 Sólveig Anna, lengst til hægri, segir Bjarna ekki hafa komið fram með heiðarlegum hætti og segir hann og Höllu hafa gert með sér skúffusamkomulag í síðustu viku. Vísir/Anton Brink og Vilhelm Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. „
Samtök atvinnulífsins ákváðu að friðþægja VR og fylgdarlið formanns félagsins, forystu fagfélaganna; í stað þess að halda trúnað við breiðfylkinguna (Efling, SGS, Samiðn og Byggiðn) var þeim sem sýnt höfðu fullkomið ábyrgðarleysi og þverbrotið allt sem hægt er að kalla lágmarksreglur í samskiptum aðila vinnumarkaðarins umbunað með þátttöku framkvæmdastjóra SA í gjörningnum. Það er augljós staðreynd sem engin heiðarleg manneskja getur neitað,“ segir Sólveig Anna í færslu sem hún skrifaði á Facebook fyrr í dag. Þar segir hún að þó svo að atvinnurekendur og verkafólk hafi ólíka hagsmuni hafi verið ákveðnar leikreglur í gildi og það hafi verið hægt að treysta því að orð standi, að það sem lagt er á borðið sé það sem í raun er í boði, og að mótaðilinn komi þegar allt kemur til alls fram af heiðarleika. Hún segir Sigríði Margréti hafa skilið þetta og þó svo að þær hafi tekist á af hörku hafi alltaf verið hægt að treysta henni. Það sama gildi ekki um Bjarna. „Nú er það traust algjörlega horfið. Bjarni Benediktsson hefur ekki verið lengi í starfi framkvæmdastjóra SA, en sá tími hefur dugað til að stroka það út svo ekkert er eftir. Í stað þess að koma fram af virðingu við Eflingu og forystu félagsins og sýna heiðarleika í samskiptum hefur hann boðið upp á framgöngu beint úr klækja-stjórnmálunum, í stað raunverulegra samningaviðræðna með þeim grunnreglum sem þar þurfa að vera í gildi,“ segir Sólveig Anna. Hún segir að í aðdraganda þess að hægt var að segja upp samningum vegna forsendubrests í síðustu viku hafi stjórn og trúnaðarráð Eflingar tekið upplýsta ákvörðun um að viðhalda ábyrgð og stöðugleika. Þeim hafi verið launaður sá trúnaður með svikum og skúffusamkomulagi sem sé geymt í skúffu ríkissáttasemjara. „Samtök atvinnulífsins hafa valið ófrið við Eflingu frekar en að halda áfram tilraun Sigríðar Margrétar til heiðarlegra samskipta við langstærsta félag verkafólks á landinu, það félag sem ætlast er til að geri mótandi kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þessu fylgja afleiðingar. Næstu kjarasamningar eru ekki langt undan – þá mun koma með skýrum hætti í ljós hvernig SA ætlar að takast að tryggja frið á vinnumarkaði með algjöru rofi í sambandi og trausti við Eflingu. Ég spái því að það muni ekki ganga vel,“ segir hún að lokum í færslu sinni. Ekki með Höllu á heilanum Sólveig Anna Jónsdóttir var til viðtals á Bítinu í morgun um þessi skúffusamkomulög og samband hennar við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, en Halla sagði á Sprengisandi í gær að Sólveig Anna væri með „hana á heilanum“. Sólveig Anna vísar því frá og segist frekar vera með „á heilanum“ stöðu verka- og láglaunafólks og stöðu félagsmanna Eflingar sem sé langstærsta stéttarfélag verkafólks landsins. Sólveig Anna segir skipta máli hvernig er farið fram, hvað er sagt og hvernig það er gert, hvort ábyrgð sé sýnd eða ábyrgðarleysi og hvort „orð skuli standa eða uppsetningar á leikritum“ séu mikilvægari. Sólveig Anna segir að henni þyki ótrúlegt að formaður VR og félagar hennar í fagfélögunum hafi í síðustu viku verið tilbúin til að undirrita samning við SA á síðustu stundu „fyrir ekkert“ eftir allt sem sagt og gert hafði verið. Hún segist komin á það, eftir að hafa hugsað vandlega um málið, að það hafi verið gert „skúffusamkomulag“. Það sé ekki óþekkt en að slík samkomulög séu aldrei gerð við samtök stétta- og láglaunafólks. Sólveig Anna segir svona samkomulag geta falið ýmislegt í sér og eftir að hafa verið átta ár í þessum bransa og tekið þátt í mörgum kjaralotum viti hún til þess að slík samkomulög séu gerð og segir iðnaðarmenn til dæmis þekkja það vel. Hún segist segja þetta því henni þyki atburðarásin síðasta fimmtudag í aðdraganda þess að fagfélögin og VR undirrituðu um framlengingu kjarasamnings eftir að hafa hótað ófriði á vinnumarkaði undarleg. Þau hafi ekið um bæinn með útprentaðar uppsagnir í skottinu, fundað stuttlega með forsætisráðherra og svo farið á fund SA og náð að semja. „Á síðustu mínútu er eitthvað undirritað til að forða fólki frá því að framkvæma hótanirnar sem var að segja upp samningum. Þess vegna er ég að segja þetta,“ segir Sólveig Anna. Skúffusamkomulög séu gerð og geymd hjá ríkissáttasemjara. „Mér finnst þetta bara svo ótrúleg atburðarás,“ segir hún en að það megi vel vera að staðreyndin sé sú að formaður VR og félagar hennar í forystu fagfélaganna hafi verið að bíða eftir því að þau yrðu „skorin niður úr snörunni sem þau hafi verið búin sjálf að hengja sig upp í“ og að Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi viljað leiðsinna þeim í því verkefni. „Það er auðvitað líka einstaklega líklegt,“ segir Sólveig Anna og að ekkert annað en þetta tvennt komi til greina. Ekki bara einhverjar stelpur að rífast Sólveig Anna segir það ekkert leyndarmál að það sé ósætti á milli formanns VR og Eflingar og þeir sem hafi komið sér inn í málið skilji það. Það sé auðvelt að gefa sér að um sé að ræða „eitthvað geðslag og atferlisvandamál“ hjá henni eða eitthvað „dæmigert stelpur rífast“. „En það er auðvitað ekki þannig, heldur er það vegna þess að framkoma formanns VR, bæði þegar hún var framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins og þegar vinkona hennar og félagi Drífa Snædal réð þar ríkjum, var auðvitað með miklum ólíkindum,“ segir Sólveig Anna og að það hafi verið gerðar á þessum tíma margar tilraunir, og margar árangursríkar, til að jaðarsetja Eflingu og hagsmuni þeirra. „Eftir að hún sagði sig frá þeim störfum fór hún um í fjölmiðlum og teiknaði upp mynd af mér og félögum mínum sem helstu vandamálum íslenskrar verkalýðshreyfingar. Þrátt fyrir að það sé óumdeilt og alls staðar hægt að sjá að Efling hefur náð mjög miklum árangri í kjarasamningsviðræðum og kjarasamningum síðustu ára fyrir hönd félagsfólks.“ Sólveig Anna segir staðreyndina þá að kaupmáttaraukning hjá verka- og láglaunafólki hafi verið raunveruleg undir hennar forystu og félaga hennar. Þá sé það líka staðreynd að hún hafi galopnað félagið og innleitt lýðræðisleg vinnubrögð. Það sé allt uppi á borðum hjá þeim og það viti allir sem eigi í samskiptum við þau að það sem þau segja, það gildir. Halla hafi grafið undan hreyfingunni Í síðasta lagi, hvað varðar afstöðu hennar í garð Höllu, segir Sólveig Anna að það að Halla hafi tekið við félaginu og farið fram með gagnrýnisverðum hætti, að hennar mati. „Ég tel að framferði hennar hafi auðvitað grafið undan orðspori þessarar hreyfingar,“ segir hún og gagnrýnir, til dæmis, að Halla hafi hækkað laun sín um mörg hundruð þúsund krónur á viðkvæmum tíma. Á sama tíma séu skilaboð ASÍ og verkalýðshreyfingar almennt að það eigi ekki að hækka laun umfram það sem samið er um í kjarasamningum. Forsætisráðherra hafi til dæmis sett lög til að takmarka launahækkanir dómara og alþingismanna en Halla hafi á sama tíma hækkað laun sín. „Það er auðvitað erfitt fyrir fólk sem er vant því að fara sínu fram að verða fyrir heiðarlegri gagnrýni, að þurfa að þola að gjörðir þeirra séu ræddar með opinskáum hætti,“ segir Sólveig Anna og að hún telji að það sé dálítið vandamálið hér. Innan verkalýðshreyfingarinnar hafi það áður verið þannig að það sé ekki rætt opinberlega sem gerist innan hennar en hún aðhyllist ekki slík vinnubrögð. Eigi að viðhalda stöðugleika „Ég get ekki fúnkerað sem effektívur formaður í félagi verka- og láglaunafólks nema það sé allt uppi á borðunum,“ segir hún og að þær leikreglur sem séu í gildi séu til staðar. Það sé sett ábyrgð á hennar félagsfólk að viðhalda stöðugleika og eigi þau að taka þátt í slíku samkomulagi verði það að gilda sem sé sett á borðið og komið fram við þau af heiðarleika. „Að trúnaður ríki um það sem er sagt og svo framvegis.“ Skoða klofning af alvöru Hvað varðar þing ASÍ og hvort Efling kljúfi sig frá því segir hún það flókið mál. Þingið hefjist eftir tvo daga. Þar hafi Halla lagt til að varaforsetum verði fækkað úr þremur í einn. Sólveig Anna segir þetta „augljóslega“ í þeim tilgangi að Halla verði eini varaforseti sambandsins og aðför að henni og félögum hennar í Eflingu. Sólveig Anna segir verða forvitnilegt að fylgjast með þessu. Hvað varðar klofning úr ASÍ segir hún að hennar mati hafi hún ávallt verið á því að Eflingu sé betur borgið innan þess og segir hafa verið gott samstarf við núverandi forseta, Finnbjörn A. Hermannsson, en hún geti samt sem áður ekki annað en skoðað þetta og velt því fram af fullri alvöru hvað verka- og láglaunafólk græði á því að vera í ASÍ. Þau hafi til dæmis aðkomu að Bjargi húsnæðisfélagi og ef þau myndu stíga þetta skref þyrfti að semja um þetta til dæmis og um að Efling fengi sjálfstæða aðkomu að þjóðhagsráði. Hún sagði þetta því ekki gerast á miðvikudag og ef slíkur áfangi ætti að eiga sér stað þyrfti mikinn undirbúning. Spurð hvort hún sjái tækifæri til að ná sáttum segir Sólveig Anna það ekki í hennar verkahring og að allt frá Eflingu sé uppi á borði. Hún telur það ekki þeirra að finna lausnina. „Það að Alþýðusambandið sé klofið þýðir einfaldlega að stéttahagsmunirnir sjást núna með ótrúlega skýrum hætti.“ Það séu stéttaátök í samfélaginu og það sé halli á verka- og láglaunafólk og þess vegna þurfi þau að standa sig vel í sinni baráttu og ekki vera með bull. „En þessi barátta hefur oft og tíðum verið hvað hörðust innan vébanda Alþýðusambandsins, þar sem tekist er á um það hvort setja eigi hagsmuni verka- og láglaunafólks, sem er til dæmis eini hópurinn sem er að glíma við mikið atvinnuleysi, ofar öðrum hagsmunum eða hvort á að ýta verka- og láglaunafólki til hliðar, segja því að draga vagninn en þurfa að sætta sig við alls konar klæki og pretti til að tryggja að millistéttarhóparnir og þau sem enn ofar eru í stigveldinu fái að halda sínu forskoti á okkur.“ Opin fyrir því að ná sáttum Sólveig Anna segir að til að laga þetta verði að vera vilji til staðar hjá forystunni en hún sjái ekki að sú mynd eigi eftir að dragast upp núna. Hún segist opin fyrir því að ná sáttum og þau hafi reynt að leggja sitt af mörkum en hafi ekki fengið mikið til baka.“ Sólveig Anna segir að fyrir framhaldið muni skipta máli hver verði kjörinn forseti ASÍ. Hún segir hvorugan þann sem er í framboði hafa sett sig inn í mál verka- og láglaunafólks og hún viti því ekki hvernig þau muni greiða atkvæði. Hún segir ólíklegt að það komi fram þriðja framboðið en það sé hægt að bíða með það fram á síðustu stundu.
Kjaramál ASÍ Vinnumarkaður Tengdar fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjudag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum. 9. október 2026 12:02 „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. 8. október 2026 19:08 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag. 8. október 2026 08:04 Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Fleiri fréttir Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Sjá meira
Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjudag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum. 9. október 2026 12:02
„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. 8. október 2026 19:08
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag. 8. október 2026 08:04