Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 10. október 2026 11:02 Bandalag íslenskra listamanna kallar eftir því að íslenska ríkið þrói stuðningskerfi sem tryggir sjálfstætt starfandi listafólki aukið afkomuöryggi milli verkefna. Markmiðið er að skapa sjálfbært starfsumhverfi þar sem listafólk getur framfleytt sér af starfi sínu, haldið áfram að skapa og miðlað þekkingu sinni án þess að búa stöðugt við fjárhagslega óvissu vegna óreglulegra tekna. Listin er samofin lífi okkar og samfélagi. Hún endurspeglar samtímann, varðveitir menningararfinn og gefur okkur ný sjónarhorn á heiminn og hvert annað. Hún tengir fólk þvert á kynslóðir, tungumál og ólíkan bakgrunn og styrkir tilfinningu okkar fyrir því að tilheyra samfélagi. Menning og listir eru því ekki aðeins verðmæti sem verða mæld í krónum og aurum, heldur ein af undirstöðum heilbrigðs lýðræðis og samfélags þar sem fólk getur vaxið og mótað framtíðina. Að baki hverju listaverki liggur margra ára nám, rannsóknir, þekkingaröflun og ótal vinnustundir. Samt býr listafólk við þau starfsskilyrði að það fær ekki sanngjarnar greiðslur fyrir vinnu sína. Samfélagið nýtur verðmætanna sem listin skapar, en þeir sem skapa listaverkin sitja eftir án viðunandi launa og fjárhagslegs öryggis. Við teljum sjálfsagt að laun endurspegli menntun og reynslu og að fólk þurfi ekki að vinna launalaust eða undir taxta. Þessi krafa á ekki síður við um listafólk. Það er hvorki ásættanlegt né sjálfbært að listafólk beri sjálft fjárhagslega áhættuna af því að halda menningarlífinu gangandi. Það ósýnilega Á bak við listsköpunina liggur mikil vinna sem sjaldan sést eða er greitt fyrir. Verkefnin eru ólík, vinnan sveiflukennd og óvissan stöðug. Sjaldnast er hægt að vita hvort launuð vinna bjóðist í næsta mánuði, hvað þá eftir hálft ár. Samt heldur vinnan áfram, hvort sem greitt er fyrir hana eða ekki. Listafólk tekur oft að sér illa launuð eða ólaunuð verkefni í von um ný tækifæri og tengsl. Í litlu samfélagi þar sem listasenan er fámenn getur jafnframt verið erfitt að hafna verkefnum eða gera kröfu um sanngjörn laun af ótta við að fá síður boð um frekara samstarf eða ný verkefni. Þegar rætt er um atvinnu listafólks er gjarnan horft til þess sem almenningur sér og upplifir: myndlistarsýninga, kvikmynda, byggingarlistar, hönnunar, tónleika, leiksýninga og bókaútgáfu. En á bak við hvert verkefni liggur mikil vinna sem sjaldan sést eða er greitt fyrir. Listafólk þróar hugmyndir, stundar rannsóknir, skrifar styrkumsóknir, gerir fjárhagsáætlanir, sinnir bókhaldi og leitar að næstu tækifærum. Þessi vinna er forsenda þess að mörg launuð verkefni verði að veruleika. Listafólk getur því unnið fulla vinnuviku án þess að fá greitt fyrir hana, enda koma tekjurnar oft í óreglulegum skömmtum og endurspegla ekki alla vinnuna sem liggur að baki. Þegar háskólamenntun skilar ekki tilætluðum ávinningi Í íslensku samfélagi er lögð rík áhersla á menntun og hún talin mikilvæg fjárfesting til framtíðar. Því stingur það skökku við að listafólk, sem hefur lokið háskólanámi og oft fleiri en einni háskólagráðu, búi við kjör sem endurspegla hvorki menntun þess né sérþekkingu. Greining BHM á fjárhagslegum ávinningi háskólamenntunar dregur fram alvarlegt misræmi milli menntunar og tekna listafólks. Fjárhagslegur ávinningur af listmenntun er lítill og tekjur fólks með listmenntun eru oft lægri en þeirra sem aðeins hafa lokið stúdentsprófi. Ef samfélagið leggur áherslu á menntun og væntir þess að listafólk skapi verðmæti og auðgi menningarlíf þjóðarinnar verður það jafnframt að tryggja raunhæfar forsendur fólks til að starfa við fag sitt og framfleyta sér. Annars er hætta á að fjárfesting í menntun og þekkingu skili ekki þeim ávinningi sem hún á að gera. Hvar liggur ábyrgðin? Ábyrgðin á sjálfbærri listasenu liggur hjá ríkinu, sveitarfélögunum og listastofnunum sem byggja starfsemi sína á opinberu fé og vinnu listafólks. Stjórn BÍL hefur kallað eftir keðjuábyrgð í menningargeiranum, þannig að allir sem koma að fjármögnun og framkvæmd menningarverkefna tryggi sanngjörn starfskjör listafólks, óháð rekstrarformi. Hvað getum við lært af öðrum löndum? Þann 8. október tók ég þátt í ráðstefnu í Árósum í Danmörku þar sem starfskjör listafólks voru til umræðu. Þar voru kynnt þrjú ólík kerfi sem taka mið af ótryggum tekjum og sérstöðu listastarfa: það írska Basic Income for the Arts, hið belgíska Working in the Arts og hið franska Régime des salariés intermittents du spectacle. Írska kerfið er sérstaklega áhugavert. Tilraunaverkefnið hófst árið 2022 með það að markmiði að draga úr tekjuóöryggi listafólks, gefa því meiri tíma til listsköpunar og minnka þörfina á að vinna utan listgreinanna til að framfleyta sér. Rúmlega 9.000 listamenn sóttu um og rúmlega 8.200 uppfylltu skilyrði þátttakenda. Af þeim voru 2.000 valdir með slembiúrtaki og fengu reglulegar greiðslur í þrjú ár. Niðurstöður tilraunaverkefnisins sýndu jákvæð áhrif á listsköpun og velferð þátttakenda. Kostnaðar- og ábatagreining sem birt var árið 2025 mat jafnframt að fyrir hverja evru sem hið opinbera lagði í verkefnið varð til samfélagslegt virði upp á 1,39 evrur. Þar var meðal annars horft til aukinnar listsköpunar, bættrar velferðar og skatttekna. Írska kerfið vekur þó einnig spurningar um samfellu. Greiðslutímabilið er þrjú ár og þeir sem hafa fengið greiðslur geta ekki sótt um fyrir næsta tímabil, en geta sótt um aftur fyrir tímabilið þar á eftir, sex árum eftir að fyrra greiðslutímabilið hófst. Ekki er tryggt að þeir fái greiðslur á ný. Þótt fyrirkomulagið gefi fleirum tækifæri til stuðnings tryggir það því ekki samfellt fjárhagslegt öryggi til lengri tíma. Belgíska kerfið Working in the Arts veitir listafólki, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, aðgang að sérstakri félagslegri vernd. Franska kerfið Régime des intermittents du spectacle er ætlað tilteknum hópum listafólks og tæknifólks sem vinna í stuttum, tímabundnum ráðningum. Með sérstöku fyrirkomulagi innan atvinnuleysistryggingakerfisins geta þau fengið tekjutryggingu milli ráðninga, að uppfylltum skilyrðum um meðal annars lágmarksfjölda vinnustunda. Þessi kerfi eru ólík en eiga það sameiginlegt að viðurkenna að hefðbundin launakerfi ná ekki utan um veruleika verkefnabundins listastarfs. Við þurfum ekki að afrita kerfi annarra landa, heldur læra af reynslu þeirra og þróa íslenska leið sem tekur mið af aðstæðum hér á landi og tryggir raunhæft afkomuöryggi til lengri tíma. Afkomuöryggi sjálfstætt starfandi listafólks á Íslandi Starfslaun listamanna eru mikilvæg en ná ekki til allra og tryggja ekki fjárhagslegt öryggi milli verkefna. Flestir fá starfslaun í sex eða níu mánuði. Mánaðarleg greiðsla árið 2026 er 580.000 kr. sem verktakagreiðsla, en eftir greiðslu launatengdra gjalda samsvarar hún um 420.000 kr. í laun. Til samanburðar er viðmið Skattsins fyrir reiknað endurgjald sjálfstætt starfandi listamanns hátt í 800.000 kr. á mánuði. BÍL kallar eftir varanlegu stuðningskerfi sem brúar bilið milli verkefna og tryggir sjálfstætt starfandi listafólki aukið afkomuöryggi til framtíðar. Kerfið þarf að taka mið af ólíkum listgreinum og byggjast á skýrum skilyrðum um virka og faglega listsköpun, meðal annars með viðmiðum um lágmarksfjölda vinnustunda á ári. Þannig yrði tekið mið af því að listafólk getur verið í fullu starfi þótt það hafi ekki launað verkefni í hverjum mánuði. Skilyrði atvinnuleysisbótakerfisins taka ekki nægilegt mið af eðli þessa starfs. Þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur þurfa að sinna kröfum um virka atvinnuleit, mæta á fundi og taka þátt í úrræðum á vegum kerfisins, á sama tíma og þeir sinna fullri vinnu við listsköpun og þróun verkefna. Þessar kröfur samræmast illa starfsaðstæðum þeirra og geta torveldað þeim að sinna faglegu starfi sínu. Það er bæði ósanngjarnt og óásættanlegt að kerfið taki ekki mið af þessum veruleika. Nýtt kerfi ætti ekki að koma í stað starfslauna eða styrkja, heldur vera viðbót við núverandi stuðning. Með því mætti tryggja meiri samfellu í listsköpun, draga úr fjárhagslegri óvissu og skapa listafólki betri skilyrði til að þróa þekkingu sína og miðla henni áfram. Þannig helst mikilvæg þekking í landinu og samfélagið nýtur áfram ávinningsins af þeirri reynslu og færni sem byggst hefur upp hér. Fjárfesting í listum er fjárfesting í framtíðinni Fjölbreytileiki er mikilvægur fyrir samfélag þar sem ólíkt fólk hefur tækifæri til að búa, starfa og taka þátt í mótun þess. Þegar húsnæðiskostnaður hækkar og afkoma listafólks er ótrygg vegna ólaunaðrar vinnu og lágra launa verður sífellt erfiðara að lifa af listsköpun. Það getur leitt til þess að listafólk neyðist til að yfirgefa þau svæði þar sem það hefur byggt upp starfsvettvang sinn. Þannig er hætta á að samfélög verði einsleitari og minna rými verði fyrir ólíkar raddir. Stuðningur við frumsköpun er því ekki aðeins stuðningur við listafólk heldur einnig fjárfesting í fjölbreyttu og lifandi samfélagi. Þegar listafólk getur ekki lifað af starfi sínu neyðist það til að draga úr listsköpun, skipta um starfsvettvang, hverfa frá faginu eða leita tækifæra erlendis. Þá tapast þekking og reynsla sem byggst hefur upp hér á landi og samfélagið fer á mis við verðmætin sem listalífið skapar. Við þurfum að líta á afkomuöryggi listafólks sem langtímafjárfestingu í verðmætasköpun samfélagsins, en jafnframt sem réttlætis- og jafnréttismál sem snýr að mannréttindum og launajafnrétti. Allt listafólk á að hafa raunhæfan möguleika á að framfleyta sér af starfi sínu og fá sanngjarnt greitt fyrir vinnu sína. Ótrygg afkoma getur viðhaldið ójöfnuði og takmarkað hverjir hafa raunveruleg tækifæri til að starfa við listsköpun. Það er samfélaginu dýrkeypt að tryggja ekki listafólki grundvallarskilyrði til að lifa af starfi sínu. Á tímum óvissu og sundrungar eru listir og menning mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Þær skapa rými fyrir ólíkar raddir, efla skilning og styrkja tengsl fólks. Verðmæti slíkrar fjárfestingar verða aldrei að fullu metin til fjár. Höfundur er forseti BÍL - Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun