Enski boltinn

Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vott­orð

Andri Broddason skrifar
Granit Xhaka gerðist sekur um að falsa bólusetningarvottorð fyrir Covid-19.
Granit Xhaka gerðist sekur um að falsa bólusetningarvottorð fyrir Covid-19. Vísir/Getty

Granit Xhaka, leikmaður Sunderland, hefur fengið sekt upp á rúmlega 130 þúsund pund eða tæpar 16 milljónir íslenskra króna fyrir að falsa bólusetningarvottorð fyrir Covid-19.

Xhaka viðurkenndi að hafa falsað vottorðið í september og sagði að hann hefði gert mistök. Eftir að hann viðurkenndi brotið fékk hann ekki að vera með í landsleikjum með Sviss þar sem hann var undir rannsókn vegna málsins.

Hann þarf þó ekki endilega að borga sektina þar sem hún er skilorðsbundin sem þýðir að ef hann brýtur ekki á sér á næstu tveimur árum er hann laus við sektina. Hann tilkynnir þó að hann ætli að taka ábyrgð á gjörðum sínum.

Þrátt fyrir að þurfa ekki endilega að borga sektina ætlar Xhaka að bera ábyrgð á gjörðum sínum og viðurkennir að hafa ekki gert réttan hlut. Fölsunin var árið 2022 þegar Xhaka var leikmaður Arsenal og treysti hann ekki bóluefninu fyrir Covid-19 veirunni.

Þrátt fyrir að hafa ekki verið með svissneska landsliðinu í landsleikjaglugganum hafði það lítil áhrif á liðið þar sem Sviss vann alla sína leiki. Liðið mætti Norður-Makedóníu tvisvar, Skotlandi og Slóveníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×