Skoðun

Ein­kunna­kerfi í öng­stræti

Jón Pétur Zimsen skrifar

Markmið mennta- og barnamálaráðherra var að einfalda einkunnakerfi grunnskólanna, gera það samræmdara og auka jafnræði við útskrift. Þessi markmið munu ekki nást með þeim breytingum sem kynntar hafa verið.

Enn verða útskriftarnemar fyrir barðinu á ósamræmi í námsmati. Ekki er tekið á vandanum sem við blasir heldur er vont bókstafakerfi dulbúið sem 1–10 tölukvarði sem það alls ekki er.

Flækjan bitnar síðan á nemendum og starfsfólki skólanna sem eiga að vinna með kerfið.

Ráðherra er ákveðin vorkunn enda bókstafakerfið skrifað í aðalnámskrá. Gildandi aðalnámskrá hefur verið dragbítur á skólastarfi frá 2011. Inntak hennar er víða huglægt, flókið og fjarlægt daglegu skólastarfi og skólum hefur reynst erfitt að innleiða hana með samræmdum hætti.

Hvernig vinnutæki er aðalnámskrá ef kennarar þurfa meira en áratug til að ná sameiginlegum skilningi á því hvernig tækið á að virka?

Undirritaður hefur árum saman bent á hið augljósa:

Gera þarf nýja aðalnámskrá sem leggur áherslu á grunnþætti skólastarfs en hverfur frá háfleygu orðskrúði og tískubylgjum sem erfitt er að festa hendur á og mæla. Kennarar, nemendur og foreldrar eiga að geta nýtt aðalnámskrána til að styðja við nám nemenda, hún á ekki að vera hindrun.

Til þess að nemendur njóti raunverulegs jafnræðis og samræmis þarf góð samræmd próf, bæði framfara- og lokapróf, þar sem viðeigandi viðmið aðalnámskrár eru undir, en ekki aðeins afmarkaður hluti eins og í Matsferli.

Slík próf geta aukið félagslegan hreyfanleika og gefið nemendum, foreldrum og skólum samanburðarhæfar upplýsingar um framfarir og raunverulega stöðu nemenda.

Samræmið verður að felast í því hvað er kennt, hvað er metið og hvernig það er metið, ekki hvort niðurstaðan er birt með bókstöfum, litum eða tölustöfum.

Til þess að breyta þessu þarf sýn, þekkingu, hugrekki og getu. Ég veit að ráðherra er umhugað um að hjálpa nemendum og vonandi verða næstu skref til að bæta stöðuna en ekki flækja hana.

Höfundur er þingmaður og fyrrverandi skólastjóri.




Skoðun

Sjá meira


×