Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 15:27 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. Vísir/Vilhelm Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi son sinn í fyrsta skipti á fund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ástralíu í síðustu viku. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór fyrir sendinefnd Íslands en ráðuneyti sjávarútvegsmála hefur fram að þessu farið með það hlutverk.
Alþjóðahvalveiðiráðið fundaði í Hobart á áströlsku eyjunni Tasmaníu í síðustu viku en það fundar nú annað hvert ár. Kristján Loftsson hefur setið fundi ráðsins á þeim tíma sem Ísland hefur verið aðili að því en nú bar hins vegar svo við að Loftur Kristjánsson, sonur Kristjáns, tók sæti hans. Loftur virðist hvorki á meðal stærstu hluthafa Hvals hf. né eiga sæti í stjórn fyrirtækisins miðað við nýjasta birta ársreikning þess fyrir árin 2024 til 2025. Sú nýlunda var einnig á ráðstefnunni í ár að formaður íslensku sendinefndarinnar var fulltrúi frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneyti sem fer með málefni hvalveiða hefur alla jafna haft formennsku í nefndinni. Auk fulltrúa utanríkisráðuneytisins og Lofts voru fulltrúar frá atvinnuvegaráðuneytinu, hvalaskoðunarfyrirtæki og Hafrannsóknastofnun í sendinefndinni. Dýraverndarsamtökin Hvalavinir sendu tvo áheyrnarfulltrúa á fundinn. Kristján Loftsson er 83 ára gamall. Hann sat síðasta fund Alþjóðahvalveiðiráðsins í Lima í Perú fyrir tveimur árum. Mikla athygli vakti þegar sonur Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi ráðherra, heyrðist segja á leynilegri upptöku að Kristján hefði greitt fyrir ferð Jóns á ráðstefnuna í Perú. Jón var ekki hluti af sendinefnd Íslands en sagðist hafa verið þar á vegum IWMC, alþjóðlegra samtaka sem styðja vísindaveiðar á hvölum. Fullyrti Jón að hann hefði greitt allan kostnað við ferðina sjálfur þvert á það sem sonur hans heyrðist segja að Kristján hefði greitt allan annan kostnað Jóns en flugferðina.
Hvalveiðar Hvalir Sjávarútvegur Utanríkismál Stjórnsýsla Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira