Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 08:00 Hundurinn virtist hrifinn af vinstri bakverðinum Sebastian Herrera. Getty/Craig Williamson Það getur ýmislegt gerst í Þjóðadeildinni í fótbolta og í gærkvöldi þurfti að stöðva leik Norður-Makedóníu og Skotlands þegar óboðinn gestur – hress og vinalegur hundur – komst einhvern veginn inn á völlinn.
Leikið var á Todor Proeski-leikvanginum í Skopje og voru Skotar komnir í 1-0, með marki frá Kieron Bowie, þegar hundurinn mætti óvænt inn á völlinn á 10. mínútu. A furry pitch invader made the North Macedonia vs. Scotland game pause for a bit 😂 pic.twitter.com/cV3GiCvmoD— ESPN FC (@ESPNFC) October 3, 2026 Ekki er ljóst hvernig hundurinn komst inn á völlinn en leikmönnum gekk illa að fá hann til að fara af vellinum. Hann skokkaði þó á endanum út fyrir hliðarlínu og svo í átt til ljósmyndaranna áður en hann var handsamaður og komið í burtu. „Það er nóg pláss fyrir hann í stúkunni. Þetta var mjög rólegur hundur. Bara í rólegheitagöngu,“ grínaðist James McFadden, fyrrverandi landsliðsmaður Skotlands, í beinni útsendingu BBC frá leiknum. Pitch invader at the North Macedonia v Scotland game tonight pic.twitter.com/HBZhYYF2Hv— FootballAwaydays (@Awaydays23) October 3, 2026 Leikurinn var aðeins stopp í um hálfa mínútu en honum lauk svo með 2-0 útisigri Skota. John McGinn skoraði seinn markið úr víti á 69. mínútu. Skotar voru manni færri frá 83. mínútu eftir að Scott McKenna fékk að líta rauða spjaldið en það kom ekki að sök. Sviss vann Slóveníu 2-1 í sama riðli og er efst með níu stig. Slóvenía og Skotland eru með fjögur stig hvort en Norður-Makedónía hefur enn ekki skorað mark og er án stiga á botni riðilsins.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira