Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar 24. september 2026 16:01 Lengi skiptust gæði Íslands á milli þeirra sem áttu útgerð og jarðir. Árið 1900 voru 71% bænda leiguliðar. Alþýðan var í fjötrum valdsins. Þeirra sem áttu. Upp úr 1900 fór stétt þeirra sem átti ekkert nema hendur og vilja til verka að taka sér pláss. Vitaskuld í óþökk ríkjandi valdhafa og eigenda Íslands. Ekkert fer meira í taugarnar á handhöfum valdsins en að alþýðan hafi sjálfstæð tækifæri til vaxtar. Verkalýðurinn uppgötvaði mátt samstöðunnar. Verkalýðsfélög voru stofnuð. Þeim eigum við flest það besta í okkar samfélagi að þakka. Tækifæri til mennta og almenna heilbrigðisþjónustu. Upp úr þessum jarðvegi spruttu stjórnmálahreyfingar vinstri- og jafnaðarmanna. Nú er hún Snorrabúð stekkur. Ferðaþjónustan er akur þar sem þúsund blóm fá dafnað. Fólk sem á fátt annað en góðar hugmyndir og dugnað hefur getað skapað sér og öðrum lífsviðurværi með þrautseigju og botnlausri vinnu. Engin handstýrð stjórnvaldsaðgerð, minkur, refur, lax eða togaraútgerðir, hafa reynst landsbyggðinni betri stuðningur en sjálfsprottin ferðaþjónusta. Þetta fer óstjórnlega í taugarnar á valdhöfum, ekki síst þeim sem nú stjórna. Undir forystu jafnaðarmanna, skilgetins afkvæmis stéttar sem átti ekkert nema hugmyndir og viljann til verka, er farið með loga um helsta akur þessarar sömu stéttar. Fyrirvaralausar hækkanir gjalda, nýir skattar, samráðsleysi og endurteknar rangfærslur um atvinnugreinina. Andúð og fyrirlitning stjórnvalda í dag er af sömu rót og fyrr. Hún er andúð valdsins gagnvart fólki sem finnur sér leið til vaxtar utan valdsviðs þeirra. Lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Af þeim skal reytt. Á þeim skal barið. Heggur sú er hlífa skyldi. Höfundur starfar við ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Lengi skiptust gæði Íslands á milli þeirra sem áttu útgerð og jarðir. Árið 1900 voru 71% bænda leiguliðar. Alþýðan var í fjötrum valdsins. Þeirra sem áttu. Upp úr 1900 fór stétt þeirra sem átti ekkert nema hendur og vilja til verka að taka sér pláss. Vitaskuld í óþökk ríkjandi valdhafa og eigenda Íslands. Ekkert fer meira í taugarnar á handhöfum valdsins en að alþýðan hafi sjálfstæð tækifæri til vaxtar. Verkalýðurinn uppgötvaði mátt samstöðunnar. Verkalýðsfélög voru stofnuð. Þeim eigum við flest það besta í okkar samfélagi að þakka. Tækifæri til mennta og almenna heilbrigðisþjónustu. Upp úr þessum jarðvegi spruttu stjórnmálahreyfingar vinstri- og jafnaðarmanna. Nú er hún Snorrabúð stekkur. Ferðaþjónustan er akur þar sem þúsund blóm fá dafnað. Fólk sem á fátt annað en góðar hugmyndir og dugnað hefur getað skapað sér og öðrum lífsviðurværi með þrautseigju og botnlausri vinnu. Engin handstýrð stjórnvaldsaðgerð, minkur, refur, lax eða togaraútgerðir, hafa reynst landsbyggðinni betri stuðningur en sjálfsprottin ferðaþjónusta. Þetta fer óstjórnlega í taugarnar á valdhöfum, ekki síst þeim sem nú stjórna. Undir forystu jafnaðarmanna, skilgetins afkvæmis stéttar sem átti ekkert nema hugmyndir og viljann til verka, er farið með loga um helsta akur þessarar sömu stéttar. Fyrirvaralausar hækkanir gjalda, nýir skattar, samráðsleysi og endurteknar rangfærslur um atvinnugreinina. Andúð og fyrirlitning stjórnvalda í dag er af sömu rót og fyrr. Hún er andúð valdsins gagnvart fólki sem finnur sér leið til vaxtar utan valdsviðs þeirra. Lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Af þeim skal reytt. Á þeim skal barið. Heggur sú er hlífa skyldi. Höfundur starfar við ferðaþjónustu.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar