Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Lovísa Arnardóttir skrifar 23. september 2026 10:46 Málfríður segir umræðuna hafa tekið á og ítrekar að stofnendur hafi búið forritið til vegna þess að þau brenna fyrir lestri barna, ekki til að verða rík og fræg. Samsett Stofnendur Læsis hafa nú breytt stillingum í forritinu þannig að foreldrar geta falið hvatningu. Málfríður Bjarnadóttir, einn stofnandi Læsis-smáforritsins, sem hefur verið í umræðu síðustu daga, segir umræðuna hafa tekið á. Hún hafi, ásamt öðrum stofnendum, búið forritið til því hún brenni fyrir skólaþróun. Þau hafi unnið að forritinu á kvöldin og um helgar, meðfram fullu starfi. „
Álagið hefur oft verið mikið og tekið sinn toll af fjölskyldulífinu. Það sem hefur drifið okkur áfram er málstaðurinn, skólarnir og reynslusögur frá kennurum og foreldrum,“ segir Málfríður í færslu á Facebook-síðu sinni. Umræðan er sprottin út frá opnu bréfi sem Jóhannes Haukur Jóhannsson leikari skrifaði til Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um helgina. Þar sagði hann appið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýtti undir óþarfa samanburð á milli barna. Hann sagðist vilja fá lestrarheftið aftur. Fjöldi foreldra hefur frá þeim tíma lýst því yfir að þau séu afar hrifin af appinu og að jafnvel sé auðveldara að fá börnin til að lesa, með tilkomu þess. Það eru því skiptar skoðanir á því. Rúm þúsund hafa líkað við færsluna Málfríðar og um 170 skilið eftir athugasemd, nánast allt jákvæðar athugasemdir. Um 97 skólar nota forritið, 1.700 kennarar og um 26 þúsund foreldrar eða forráðamenn. Málfríður segir málið erfitt og í opinni færslu á Facebook-síðu sinni segir hún að málið sé persónulegt og hún finni sig knúna til að segja nokkur orð. Hún segir lengi hafa verið kallað eftir einhverri lausn til að halda betur utan um heimalestur og það hafi verið drifkraftur hennar og annarra stofnenda. Hún segir að sem dæmi hafi þau ávallt stillt verðinu fyrir notkun á forritinu í hóf og þau hafi ekki getað haft sitt lífsviðurværi af þessu. Trúi að þetta skipti máli fyrir lestur barna „Við erum ekki að þessu til að verða fræg eða rík, heldur vegna þess að við trúum því að þetta skipti máli fyrir lestur barna. Talandi um frægð, við Aníta erum reyndar báðar svo afskaplega lítið fyrir athygli að margir í okkar nánasta hring meira að segja höfðu ekki hugmynd um að við stæðum á bak við þessa lausn.“ Hún segir síðustu daga hafa tekið á og í slíkri hringiðu sé auðvelt að missa sjónar á markmiðinu. Hún kæri sig ekki um að vera dregin inn í deilur á samfélagsmiðlum og ætli ekki að taka þátt í þeim. Hún segir þau öll, sem standa að forritinu, deila áhyggjum annarra foreldra af skjánotkun barna, bæði sem kennarar og foreldrar. „Einmitt þess vegna á Læsir heima í síma foreldranna en ekki barnanna. Skráningin tekur innan við mínútu, barnið þarf aldrei að koma nálægt skjánum og lestrarstundin sjálf er áfram skjálaus. Já, það er hvatning í forritinu, límmiðar og áfangar. Hún er þar meðal annars vegna þess að foreldrar og kennarar óskuðu eftir henni þegar gömlu lestrarkortin með stimplunum og límmiðunum hurfu. Hún er líka þar vegna þess að okkur þótti skipta máli að heimalesturinn væri hvetjandi fyrir börnin sjálf og að þau hefðu eitthvað til að gleðjast yfir þegar þeim miðar áfram. Við erum ekki hafin yfir gagnrýni og tökum hana til okkar.“ Málfríður segir forritið hafa þróast áfram í samtali við bæði foreldra og kennara og til dæmis sé núna hægt að fela hvatninguna í forritinu. „Mér finnst mikilvægt að það komi fram að við erum að þróa verkfæri sem skólar geta valið að nota en það eru skólarnir sjálfir sem ákveða hvort og hvernig það er gert. Við gerum enga kröfu um að Læsir sé skylda fyrir alla og við höfum aldrei sagt að orðavinna, skriftaræfingar eða endurgjöf eigi að víkja,“ segir hún en það er eitt af því sem Jóhannes gagnrýndi, að skriftaræfingarnar fylgdu ekki lengur því þær hafi verið að finna í heftinu. Ákvarðanir þurfi að byggjast á staðreyndum Málfríður segist að lokum hafa áhyggjur af skólunum sem stöðugt séu að þróa sitt starf og leita nýrra leiða til að gera betur fyrir nemendur. „Það er eðlilegt að eitthvað henti ekki öllum en það á ekki að leiða til þess að enginn megi nota það. Ákvarðanir um skólastarf þurfa að byggjast á staðreyndum, reynslu og samtali, alltaf með hagsmuni barnanna að leiðarljósi,“ segir hún og bendir fólki á að hafa samband við skólana hafi það fyrirspurnir um notkun forritisins.
Skóla- og menntamál Læsi Börn og uppeldi Grunnskólar Tengdar fréttir Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. 17. september 2026 22:23 Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir hlutu Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir handritið að bókinni Bestu vinir. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn við Höfða í dag en á sjöunda tug handrita bárust í samkeppnina. 10. september 2026 17:06 Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Bein útsending verður á Vísi frá blaðamannafundi barna- og menntamálaráðuneytisins klukkan 11 þar sem farið verður yfir niðurstöðurnar. 8. september 2026 07:30 Mest lesið Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Sjá meira
Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. 17. september 2026 22:23
Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir hlutu Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir handritið að bókinni Bestu vinir. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn við Höfða í dag en á sjöunda tug handrita bárust í samkeppnina. 10. september 2026 17:06
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Bein útsending verður á Vísi frá blaðamannafundi barna- og menntamálaráðuneytisins klukkan 11 þar sem farið verður yfir niðurstöðurnar. 8. september 2026 07:30