Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Eiður Þór Árnason skrifar 21. september 2026 22:00 Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, segir það liggja fyrir hver beri ábyrgð á heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Aðsend - Vísir Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, hefur mjög miklar áhyggjur af stöðu mála innan SÁÁ og telur að stjórn samtakanna hafi gengið of langt í afskiptum sínum af faglegu starfi. Það sé ekki hlutverk félagaskipaðrar stjórnar að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni sem veitt er undir samningi við Sjúkratryggingar.
Pétur hefur fylgst náið með stöðunni hjá heilbrigðisstofnunum SÁÁ þar sem tíu félagsmenn Sálfræðingafélagsins eru starfandi. „Við sjáum fagfólk hverfa frá störfum og það er ekki að gamni sínu sem landlæknir kemur inn á gólf og tekur út starfsemina. Þannig að ég, bara eins og hver annar, hef haft mjög miklar áhyggjur af því að þjónustan sé starfhæf og jafnframt er það mjög alvarlegt þegar fagfólk fær ekki vinnufrið til að vinna vinnuna sína,“ segir hann í samtali við fréttastofu. Fullfjármagnað af ríkinu Starfsfólk Sálfræðingafélagsins hefur verið í samskiptum við trúnaðarmenn sína innan SÁÁ sem hafi sömuleiðis áhyggjur af stöðunni. „Það sem þarf að hafa í huga þegar staðan hjá stofnunum SÁÁ er metin í dag er að núgildandi samningur um heilbrigðisþjónustuna á milli SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands markar þau tímamót að heilbrigðisþjónustan sem stofnanir SÁÁ veita, það er að segja Vogur, Vík og göngudeildirnar, er fullfjármögnuð af ríkinu sem þýðir að SÁÁ þarf ekki lengur að safna fé til þess að halda Vogi eða göngudeildunum gangandi,“ segir Pétur. Þetta hafi verið mikilvæg breyting og bæði SÁÁ og heilbrigðisstarfsfólk þess séu skuldbundin til þess að framfylgja umræddum samningi. „Þar eru forstjóri SÁÁ, framkvæmdastjóri lækninga og fagstjórar með ábyrgðina og þeir hafa núna einn af öðrum verið að láta af störfum. Það gefur bara augaleið að það er ekki lengur verkefni þarna fyrir félagaskipuðu stjórn samtakanna SÁÁ. Það er ekkert verkefni fyrir hana í eftirliti með heilbrigðisþjónustu. Það er verkefni Sjúkratrygginga sem verkkaupa og embættis landlæknis að sjá til þess að þjónustan sé í samræmi við gildandi lög og reglur um heilbrigðisþjónustu og samning SÁÁ við Sjúkratryggingar,“ segir Pétur. „Eins og þetta horfir við mér þá er það þar sem hnífurinn stendur í kúnni. Það er að segja að þessi kosna stjórn félagasamtakanna SÁÁ virðist vera að reyna að hlutast til um heilbrigðisstarfsemina og þar eiga þau bara ekkert erindi.“ Gagnrýna afskipti Pétur tekur þar með undir kröfur fyrrverandi og núverandi stjórnenda á meðferðarsviði SÁÁ sem hafa farið fram á að formaður og framkvæmdastjórn SÁÁ dragi úr afskiptum sínum af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna og horfi frá fyrirhuguðum breytingum. Meðal þeirra er Þóra Björk Ingólfsdóttir sálfræðingur sem hætti sem fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur eftir að starfslokasamningur var gerður við yfirmann hennar, Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, þáverandi forstjóra SÁÁ. Þóra, Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga, og Elín Þórdís Meldal, aðstoðarfagstjóri á Vogi, hafa stigið fram og sakað formann og framkvæmdastjórn um óeðlileg afskipti af faglegu starfi. Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hefur hafnað þessu. Fram hefur komið að hún og framkvæmdastjórn vilji til að mynda koma á fót nýrri meðferð fyrir fólk með spilafíkn, meðferð fyrir aðstandendur og auka almennt stuðning og fræðslu. Um heilbrigðisþjónustu sé að ræða Elín, aðstoðarfagstjóri á Vogi, telur að ágreiningur fylkinganna liggi að einhverju leyti í því að formaður SÁÁ líti svo á að þessar fyrirhuguðu viðbætur liggi fyrir utan þá heilbrigðisþjónustu sem er í dag fjármögnuð af ríkinu. Þar með líti stjórnin svo á að ekki sé um afskipti af faglegu starfi að ræða. Elín er ósammála þessu og segir engan vafa á því að slík úrræði myndu heyra undir heilbrigðisþjónustuna og bæði verða þróuð og sinnt af fagfólki. „Þetta er ekkert annað en heilbrigðisþjónusta, einmitt það sem er verið að tala um að hún eigi ekki að vera að vasast með puttana í,“ hefur Elín áður sagt um fyrirætlanir formannsins í samtali við Vísi. „Hvar ætlar hún að ná í þetta fagfólk til þess að vera með þessi meðferðarúrræði? Ef hún er að fara að sækja það í meðferðina hjá okkur þá er það fólk í greiddri þjónustu frá SÍ, það gengur ekki. Hún er að tala um heilbrigðisþjónustu sem hún er að pressa forstjórann í að fá að setja upp á vegum samtakanna,“ sagði Elín. Þarna liggi óeðlileg afskipti að hennar mati. Anna sagði í Kastljósi RÚV í síðustu viku að fyrrverandi forstjóri hefði ekki viljað framfylgja stefnu hennar og framkvæmdastjórnarinnar.
SÁÁ Tengdar fréttir Hótuðu að loka Vogi Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. 20. september 2026 10:01 Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“ 19. september 2026 16:00 Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að mikilvæg þekking glatist á sérhæfðri fíknimeðferð með brotthvarfi yfirstjórnarinnar. Búið er að ráða í stöðuna hennar. 18. september 2026 12:44 „Ég er hreinlega mjög hrædd“ „Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“ 17. september 2026 08:00 Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra. Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna. 16. september 2026 16:07 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira
Hótuðu að loka Vogi Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. 20. september 2026 10:01
Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“ 19. september 2026 16:00
Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að mikilvæg þekking glatist á sérhæfðri fíknimeðferð með brotthvarfi yfirstjórnarinnar. Búið er að ráða í stöðuna hennar. 18. september 2026 12:44
„Ég er hreinlega mjög hrædd“ „Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“ 17. september 2026 08:00
Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra. Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna. 16. september 2026 16:07