Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar 20. september 2026 07:02 Penelópa, kona Ódysseifs, óf á daginn og rakti upp á nóttunni til að halda biðlunum frá sér. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í sautján ár haft sama háttinn á, með þeirri nýbreytni að röðinni er snúið við. Ályktanir um fullveldi rekja vefinn upp í dagsbirtu, en þegar skyggir er sest við vefstólinn á ný og voðin lengist jafnt og þétt í átt til Brussel. Sagan hefst í desember 2008, þegar Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson mæltu með aðildarviðræðum í blaðagrein. Nokkrum mánuðum síðar var Bjarni orðinn formaður flokks sem var andvígur aðild, og má það kallast skjótur frami fyrir mann með þá skoðun. Þegar Alþingi samþykkti umsóknina sumarið 2009 sat varaformaður flokksins hjá. Sá varaformaður heitir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, gegnir nú embætti utanríkisráðherra fyrir annan flokk og þarf þar ekki lengur að sitja hjá. Icesave Svo kom Icesave. Bretar og Hollendingar héldu á lyklinum að aðildarferlinu, og í febrúar 2011 studdi formaðurinn þriðja samninginn að undangengnu „ísköldu mati“. Þjóðin reyndist heitfengari og hafnaði samningnum, og EFTA-dómstóllinn sýknaði Ísland tæpum tveimur árum síðar. Matið var sannarlega kalt. Hvort það var rétt er önnur saga. Atkvæðagreiðslu lofað Meistarastykkið er þó meðferð umsóknarinnar. Fyrir kosningarnar 2013 var kjósendum lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna, og það loforð fór sömu leið og flest loforð sem gefin eru í apríl. Tillaga um afturköllun sofnaði í nefnd veturinn eftir þótt stjórnin hefði drjúgan meirihluta. Í staðinn var sent bréf til Brussel án atbeina Alþingis, og ályktun þingsins frá 2009 stóð óhögguð líkt og gleymdur farangur á brautarpalli. Þar beið hún í ellefu ár, uns ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sótti hana og spurði þjóðina hvort halda skyldi viðræðunum „áfram“. Landskjörstjórn þótti orðalagið hæpið. Nú, þegar þjóðin hefur sagt nei, boðar Guðrún Hafsteinsdóttir þingsályktun um að draga umsóknina formlega til baka. Það er lofsvert framtak, þótt nokkra furðu veki að flokkur sem sat í ríkisstjórn frá 2013 til 2024 skuli fyrst nú uppgötva að verkinu var ólokið. EES-samningurinn Innan EES hefur vefnaðurinn gengið enn betur. Flokkurinn fór með utanríkisráðuneytið samfleytt í sjö ár og beitti neitunarheimild 102. greinar samningsins jafn oft og allir fyrirrennarar hans, það er að segja aldrei. Þriðji orkupakkinn rann í gegn 2019 þrátt fyrir uppreisn í grasrótinni og efasemdir þeirra lögfræðinga sem stjórnvöld leituðu sjálf til. Um losunarkerfið ETS var samið 2023 á þann veg að Ísland fékk tímabundna undanþágu fyrir flugið. Landið er að vísu varanlega statt í miðju Atlantshafi, en um það virðist minna hafa verið rætt. Skipaflutningarnir fengu enga undanþágu og greiða nú fullt gjald fyrir þá ósvífni að sigla til eyju. Bókun 35 Þá er komið að Bókun 35. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir lagði frumvarpið fram 2023, og má hún eiga að hún hefur aldrei farið í felur með skoðun sína. Félag sjálfstæðismanna um fullveldismál lagði þá fyrir flokksráðsfund tillögu um að utanríkisráðherra yrði hvattur til að draga frumvarpið til baka og að áréttaður yrði réttur Íslands til eigin lagasetningar. Tillagan var felld í EES-vinnuhópi fundarins og kom því aldrei til atkvæða hjá flokksráðinu sjálfu. Í hennar stað samþykkti fundurinn almenna ályktun um varðstöðu um fullveldi Íslands. Þar fór svo vel á með orðum og efndum að hvorugt þurfti að hitta hitt. Frumvarpið lifði það af. Sumarið 2025 studdi þingflokkurinn frumvarp núverandi ríkisstjórnar um sama efni, og um haustið skemmtu þingmenn hans sér konunglega við að núa Flokki fólksins sinnaskiptunum um nasir. Svo kom 29. ágúst. Eftir að 52,84 prósent kjósenda höfnuðu viðræðum baðst formaðurinn undan viðtali um afstöðu flokksins til bókunarinnar, og Guðlaugur Þór Þórðarson kallaði málið „smjörklípu“. Frumvarp sem var ábyrgt og nauðsynlegt í fyrra er orðið að viðbiti sem enginn vill kannast við. Annaðhvort var sannfæringin lítil þá eða kjarkurinn er lítill nú, og hvorugt fer flokki vel sem kennir sig við sjálfstæði. Verndartollar ESB Í nóvember lagði Evrópusambandið verndartolla á íslenskt kísiljárn, vöru frá ríki sem á að heita fullgildur þátttakandi á innri markaðnum. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði sambandið hafa „sýnt klærnar“ og tók fram í sömu andrá að hún hefði alltaf stutt EES-samninginn og myndi gera það áfram. Klærnar þurfa því ekki að óttast afleiðingar. Nú má spyrja hvort allt þetta sé ásetningur eða röð tilviljana. Ég læt lesendum eftir að meta það, enda skiptir svarið minna máli en ætla mætti. Forgangur Evrópuréttar er grundvallarskilyrði aðildar, og orku- og loftslagsmál eru heilir kaflar í aðildarviðræðum. Hver hindrun sem rutt er úr vegi innan EES er kafli sem loka má á fyrsta fundi. Aðildarsinnar segja sjálfir að Ísland hafi þegar tekið upp drjúgan hluta regluverksins, og þeir vita hverjum ber að þakka. Flokkur sem vinnur undirbúningsverkið af slíkri samviskusemi þarf enga leynilega stefnu. Árangurinn nægir. Penelópa beið eiginmanns síns í tuttugu ár og þekkti hann þegar hann kom aftur. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa beðið í sautján ár eftir flokknum sem þeir töldu sig vera að kjósa. Verði biðin mikið lengri er hætt við að þeir þekki hann ekki aftur, og sumir eru raunar þegar farnir að svipast um eftir öðrum bogmanni. Höfundur er læknir og sjálfskipaður fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður EES-samningurinn Sjálfstæðisflokkurinn Júlíus Valsson Mest lesið Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun