Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar 19. september 2026 11:31 Framtíð heilsu okkar ræðst ekki aðeins af því hversu lengi við lifum, heldur hversu mörg ár við lifum við góða heilsu og færni. Stóru sigrarnir felast oft í litlum ákvörðunum sem teknar eru aftur og aftur. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Þetta er ein af lykilspurningunum á ráðstefnunni Heilsan til framtíðar sem fer fram þann 25. september. Svarið liggur ekki í einni töfralausn, einu bætiefni eða skammvinnu heilsuátaki. Það liggur í heildinni: næringu, hreyfingu, svefni, andlegri líðan, reglulegu eftirliti og góðu aðgengi að fagfólki. Við ráðum ekki við allt sem mætir okkur í lífinu. En við getum haft áhrif á margt og þar er skynsamlegt að byrja. Tökum D-vítamín samkvæmt ráðleggingum. Eins og svo oft þegar heilsa er annars vegar er meira ekki endilega betra. Treystum viðurkenndum ráðleggingum og leitum til fagfólks þegar spurningar vakna. Ráðleggingar um mataræði eru einmitt ráðleggingar, ekki boð og bönn. Best er að kynna sér þær og máta við eigin venjur og aðstæður. Sem dæmi er ráðlagt að neyta daglega um 350 til 500 millilítra eða gramma af mjólk eða mjólkurvörum, eða sambærilegra vara. Áherslan er þó ekki á eina vörutegund heldur mataræðið í heild. Við þurfum fjölbreytni: grænmeti, heilkorn, hnetur, ávexti og fisk fyrir þau sem vilja og geta borðað hann. Fituminni mjólkurvörur geta verið góður kostur, en fitumeiri vörur geta líka átt við. Sama gildir um kjöt: hófið skiptir meira máli en ströng boð og bönn. Skýrari skilaboð eiga hins vegar við um tóbak og áfengi. Tóbak ætti að forðast og halda áfengisneyslu í hófi, eða sleppa henni alveg. Forvarnir snúast einnig um að þekkja eigin stöðu. Láttu mæla blóðþrýstinginn. Það er einföld mæling sem getur gefið mikilvægar upplýsingar, enda er ógreindur háþrýstingur algengur og oft einkennalaus. Ræddu niðurstöðurnar við fagfólk og kannaðu hvort ástæða sé til að fylgjast með blóðsykri og blóðfitum. Ef þú tekur lyf er jafnframt skynsamlegt að ræða notkun bætiefna við lækni eða lyfjafræðing, því sum þeirra geta haft áhrif á virkni lyfja. Hreyfing snýst ekki aðeins um þol eða líkamsþyngd. Styrkur, jafnvægi og hreyfigeta skipta miklu fyrir heilbrigða öldrun. Leiðin að versnandi færni hefst stundum á bókstaflegu falli. Þess vegna borgar sig að æfa jafnvægi og styrk áður en vandamál koma upp því það er aldrei of seint að byrja. Ekki þarf að umbylta lífinu á einum degi. Byrjaðu á viðráðanlegri hreyfingu og auktu hana smám saman. Göngutúr, námskeið eða æfingafélagi getur hjálpað. Hugum líka að öxlum og öðrum liðum, sérstaklega í störfum þar sem setur eru langar og hreyfingar einhæfar. Sjúkraþjálfari getur metið stöðuna og kennt einfaldar æfingar sem styðja við styrk og hreyfanleika. Andleg heilsa er loks órjúfanlegur hluti heildarinnar. Það ætti að vera jafn eðlilegt að leita aðstoðar vegna andlegrar líðanar og líkamlegra einkenna. Heilsan til framtíðar verður ekki byggð í einu stóru átaki. Hún verður til úr raunhæfum ákvörðunum í hversdeginum, faglegri ráðgjöf og heilbrigðisþjónustu sem hjálpar fólki að varðveita heilsu, færni og lífsgæði sem lengst.Höfundur er doktor í tölfræði og prófessor í líftölfræði við Háskóla Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Heilbrigðismál Geðheilbrigði Matur Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun